Tveir ungir menn „settir á guð og gaddinn“ eftir alvarlegar líkamsárásir á Þjóðhátíð

For­eldrar tveggja ungra manna sem urðu fyrir alvar­legum lík­ams­árásum á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum segja að árás­irnar hafi ekki verið skráðar í dag­bók lög­reglu. Fagfólk á staðnum hafi sett syni þeirra sem fengu þung höf­uð­högg og voru með mikla áverka „á guð og gadd­inn“ eftir að gert hafði verið að sárum þeirra í sjúkra­tjaldi. Sauma þurfti um 40 spor í and­lit ann­ars þeirra. Hinn nef- og enn­is­brotn­aði. Móðir ann­ars manns­ins hefur óskað eftir fundi með dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins.

Tveir ungir menn „settir á guð og gaddinn“  eftir alvarlegar líkamsárásir á Þjóðhátíð
Eiga strangt bata­ferli fyrir höndum Móðir 19 ára manns sem varð fyrir lík­ams­árás á Þjóð­há­tíð segir að sonur hennar og hinn ungi mað­ur­inn sem ráð­ist var á á hátíð­inni eigi strangt bata­ferli fyrir höndum. Þeir séu undir miklu álagi og for­eldr­arnir reyni eftir bestu getu að vernda þá.

Ofbeld­is­maður sonar míns gekk laus í tæpa tvo sól­ar­hringa eftir árás­ina og gengur enn laus. Lögregla keyrði son minn í sjúkra­tjaldið eftir árás­ina en virð­ist ekki hafa skráð atvikið, sagð­ist ekk­ert geta gert. Ég hringdi í 1 1 2 að kvöldi sunnu­dags, tæpum sól­ar­hring eftir árás­ina og var gefið sam­band við fjar­skipta­mið­stöð. Þar er mér sagt að hringja á  þriðju­dags­morg­unn. Ég spyr þá hvort ofbeld­is­mað­ur­inn eigi að fá að ganga laus í Herj­ólfs­dal en það var fátt um svör.“

Þetta segir faðir ungs manns sem varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás  aðfara­nótt sunnu­dags á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum. Sonur hans er 21 árs. Hann er nef­brot­inn og enn­is­brot­inn eftir árás­ina. Faðirinn segir að ókunn­ugur maður hafi ráð­ist á hann og skall­aði hann í and­litið. Síðan hafi hann gripið um háls sonar síns og kýlt hann marg­sinnis í and­litið. 

Hinn ungi mað­ur­inn er 19 ára og var að sögn móður hans lam­inn með gler­flösku í and­litið laust eftir mið­nætti aðfara­nótt mánu­dags. Hann skarst mjög illa eins og sjá má á myndum sem þau hafa sent Heim­ild­inni og móðir hans segir að sauma hafi þurft 38 spor í and­litið á honum. Hún segir að lög­fræð­ingar sem fjöl­skyldan hafi ráð­fært sig við síð­ustu daga segi að um stór­fellda lík­ams­árás sé að ræða, glæp sem varði allt að sextán ára fang­elsi.

Þung höfuðhögg

Ungu menn­irnir þekkj­ast ekki en þeir og fjöl­skyldur þeirra hafa hist eftir árás­irnar til að styðja við hvert annað og ráða ráðum sínum um fram­haldið. Þau eru mjög ósátt við það sem þau kalla aðgerða­leysi lög­reglu og ann­arra sem hafi átt að bregð­ast við og gæta öryggis gesta hátíð­ar­innar. Faðir 21 árs manns­ins segir son sinn hafa fengið þung höf­uð­högg og móðir 19 ára manns­ins segir hann hafa rot­ast í árásinni og að læknir í sjúkra­tjald­inu hafi talið að hann væri með heila­hrist­ing. Þrátt fyrir þetta hafi þeim verið vísað út úr sjúkra­tjald­inu eftir að gert hafi verið að sárum þeirra. Þeir hafi ekki fengið frek­ari aðhlynn­ingu. Þá virð­ist sem atvikin hafi ekki verið skráð í dag­bók lög­reglu.

Karl Gauti Hjalta­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum segir að kannað verði „hvort ein­hverjir lög­reglu­menn hafi fengi vit­neskju um þetta og hverslags vit­neskju.“ 

Hann segir einnig að þessi atvik kalli á að farið verði betur yfir feril slíkra mála með heil­brigð­is­starfs­fólk­inu sem var að vinna í dalnum til að öruggt sé að allar upp­lýs­ingar um alvar­legar lík­ams­árásir ber­ist til réttra aðila. 

„Hvernig má það vera að svona alvar­leg árás sé hvergi skráð, að eng­inn til­kynni hana. Er verið að þagga hlut­ina niður? “
Móðir 19 ára manns sem varð fyrir lík­ams­árás á Þjóð­há­tíð

Móðir yngri manns­ins hefur óskað eftir fundi með dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins. Hvorki for­eldr­arnir né ungu menn­irnir, synir þeirra, vilja koma fram undir nafni enn sem komið er.  „Við þurfum að vernda strák­ana, þeir eru undir miklu álagi og eiga strangt bata­ferli fyrir höndum,“ segir hún. 

„Gert að bera ábyrgð á stórslösuðum litla bróður sínum“

Móðir yngri manns­ins sem ráð­ist var á lýsir atvik­inu svona:

„Til allrar ham­ingju kom í ljós að ekki hafði blætt inn á heil­ann“ Móðir 19 ára manns­ins sem lam­inn var með gler­flösku segir að sú hugsun hafi stöðugt leitað á hana síð­ustu daga. Nógu slæmt hafi verið að hann hefði verið sendur út úr sjúkra­tjald­inu með heila­hrist­ing, illa átt­aður og mikið slas­aður.

 „Sonur minn var að labba gegnum mann­mergð­ina í átt til vina sinna nálægt svið­inu í dalnum þegar ein­hver réðst skyndi­lega að honum og lamdi hann með gler­flösku í höf­uðið. Hann rot­að­ist, fékk heila­hrist­ing og það þurfti að sauma 38 spor í and­litið hans. Lögregla á staðnum sagði að ef hann vildi gefa skýrslu eða kæra þyrfti hann að koma á lög­reglu­stöð og ef hann væri ekki í ástandi til þess þyrfti hann að gera það þegar heim væri komið. Læknir sem gerði að sárum hans sá ekki ástæðu til að senda hann á sjúkra­hús né til­kynna atvikið til lög­reglu. Það tók tvær klukku­stundir að sauma saman skurð­ina í and­liti drengs­ins míns og að því loknu var honum vísað út úr sjúkra­tjald­inu.“

Eldri bróður hans sem er 22 ára hafi verið falin ábyrgð á yngri bróður sínum. „Honum var gert að bera ábyrgð á stórslös­uðum litla bróður sínum. Sem betur fer fengu þeir athvarf hjá konu í einu af hvítu tjöld­unum í dalnum. Hann hringdi í okkur for­eld­rana og sagði okkur frá því sem hafði gerst og síðan vakti hann yfir bróður sínum og pass­aði að hann sofn­aði ekki. Enda var hann með heila­hrist­ing.“

Það sama hafi gerst með hinn unga mann­inn segir konan, „fag­fólk á staðnum setti ungu menn­ina, sem voru með mikla áverka og höfðu fengið þung höf­uð­högg, á guð og gadd­inn“.

Ekki náð­ist í for­stjóra HSU við vinnslu frétt­ar­innar. 

Starfsfólki bráðamóttöku hafi verið brugðið 

Klukkan sex að morgni mánu­dags­ins 5. ágúst, segir konan að sonur hennar sem ráð­ist var á hafi lagt af stað heim á leið með Herjólfi. 

„Eldri sonur minn spurði bæði lög­reglu og fólk sem starf­aði þarna við örygg­is­gæslu hvort ein­hver gæti keyrt þá niður á höfn en það var ekki hægt. Þeim var sagt að hringja á leigu­bíl. Eftir margar árang­urs­lausar til­raunir til að fá leigu­bíl löbbuðu þeir niður á höfn,“ segir mamma þeirra.

Þegar sonur hennar sem ráð­ist var á kom til Reykja­víkur leit­aði hann á bráða­mót­töku. „Þar var hann í rann­sóknum í fimm klukku­stundir. Læknum og hjúkr­un­ar­fólki þar var brugðið þegar ég sagði þeim að hann hefði verið saum­aður saman í sjúkra­tjald­inu, síðan vísað þaðan án frek­ari eft­ir­fylgni og að bróðir hans hefði setið yfir honum þar til hann komst um borð í Herjólf.“   

Daginn eftir fór sonur hennar til augn­læknis. „Til allrar ham­ingju kom í ljós að ekki hafði blætt inn á heil­ann og hann er óbrot­inn. Hann er hins vegar með blæð­ingu í auga sem verður skoðuð betur á næstu dögum,“ segir móðir hans og bætir við að sú hugsun hvað hefði gerst ef blætt hefði inn á heila hafi leitað stöðugt á hana síð­ustu daga.   

„Þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.“ Nógu slæmt hafi verið að hann hefði verið sendur út úr sjúkra­tjald­inu með heila­hrist­ing, illa átt­aður og mikið slas­aður.

Ráðlagt að fara í  „dauðagáminn“  og hvíla sig þar eftir árásina

Faðir hins manns­ins sem varð fyrir lík­ams­árás hefur svip­aða sögu að segja. Sonur hans hafi nef- og enn­is­brotnað þegar maður réðst á hann þegar hann var á leið á sal­erni inni í dal. Faðirinn segir árás­ina hafa verið skyndi­lega og alger­lega óvænta. „Hann átti sér einskis ills von þegar ókunn­ugur maður réðst á hann og skall­aði hann í and­litið. Sonur minn vankast við það og þá tekur mað­ur­inn um háls­inn á honum og kýlir hann margoft í and­litið.“ 

Ósáttur við að sonur hans hafi ekki verið sendur á sjúkra­húsið um nótt­inaUngi mað­ur­inn fór sjálfur á spít­al­ann í Eyjum dag­inn eftir og síðar þann dag komu nið­ur­stöður úr mynd­grein­ingu. Honum var sagt að þetta væri alvar­legt og að hann ætti að fara beint á bráða­mót­töku í Reykja­vík.

Hann segir að eftir að fólk sem varð vitni að árásinni hafði náð að stöðva árás­armann­inn hafi son­ur­inn og kærastan hans gengið í átt að lög­reglu­bíl sem hafi verið lagt skammt frá. Kærastan hafi sagt lög­reglu­mönn­unum hvað hefði gerst. „Lögregla skutlar þeim þá í sjúkra­tjaldið. Þar var önnur auga­brúnin saumuð saman og honum síðan sagt að hann mætti fara.“ 

Þegar sonur hans hafi verið kom­inn út úr sjúkra­tjald­inu hafi hann lagst í grasið, enda hafi hann enn verið vank­aður. Þá hafi ein­hver sem var að vinna í sjúkra­tjald­inu bent þeim að að fara með hann í svo­kall­aðan dauða­gám, „þar gæti hann legið á dýnu og þar væri skjól og lík­legt að ein­hver gæti fylgst með honum.“ 

Faðirinn er mjög ósáttur við að sonur hans hafi ekki verið sendur á sjúkra­húsið til nán­ari skoð­unar. Þangað hafi hann hins vegar farið sjálfur dag­inn eftir því kærust­unni hafi lit­ist illa á ástand hans. Frænka hans sem var á bíl keyrði hann þangað.  „Þar var hann settur í mynda­töku. Síðdegis fara þau í ferj­una. Þegar þau voru komin upp á fasta­landið, eru rétt við Hvols­völl fengu þau sím­tal frá spít­al­anum í Eyjum og þeim sagt að fara beint á bráða­mót­töku í Reykja­vík því þetta væri alvar­legt. Hann væri brot­inn í enn­inu á milli augn­anna.“ 

„Ég spyr þá hvort ofbeld­is­mað­ur­inn eigi að fá að ganga laus í Herj­ólfs­dal en það var fátt um svör“
Faðir ungs manns sem varð fyrir lík­ams­árás á Þjóð­há­tíð

Hann hafi síðan farið í frek­ari rann­sóknir. „Þá kom í ljós að brot í sam­gangi í augn­tófta­veggi, brot í enn­is­holu og nef­brot.“ 

Báðir ungu menn­irnir fóru því á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Heim­ildin hafði sam­band við lækni þar. Hann vildi ekki tjá sig um hvort þar hefði verið tekið á móti þolendum lík­ams­árása sem áttu sér stað á Þjóð­há­tíð. „Við sinntum nokkrum ein­stak­lingum sem voru á Þjóð­há­tíð en megum ekki tjá okkur frekar um þau mál.“

Árásirnar hafi ekki verið skráðar í dagbók lögreglu 

Móðirin og fað­ir­inn segja að lög­regla í dalnum hafi verið upp­lýst um báðar árás­irnar. Þrátt fyrir það virð­ist málin ekki hafa verið skráð í dag­bók lög­reglu. „Sonur minn og kærasta hans fengu far með lög­regl­unni í sjúkra­tjaldið eftir árás­ina. Þar var þeim sagt að lög­reglan gæti ekk­ert gert. Vinur sonar míns ræddi við lög­reglu­mann í Eyjum fyrir hádegi á mánu­deg­inum. Hann skrif­aði niður upp­lýs­ingar en engin form­leg skrán­ing virð­ist hafa verið gerð,“ segir faðir manns­ins.  

Móðir hins unga manns­ins segir að lög­regla hafi ekki verið kölluð til, hún hafi ekki skráð árás­ina í dag­bók þó að eldri bróðir hans hafi leitað til lög­reglu og spurt hvort það ætti ekki að taka af honum skýrslu. Læknir í sjúkra­tjaldi hafi ekki heldur til­kynnt árás­ina til lög­reglu.

„Finnst fólki í lagi að þarna sé ungur maður sund­ur­skor­inn í and­liti og það þurfi ekki að skrá neitt?“
Móðir ungs manns sem varð fyrir lík­ams­árás á Þjóð­há­tíð


Hún segir fjöl­skyld­una alla og vini sonar sína í áfalli. En að þau séu líka reið vegna þess sem hún kallar aðgerð­ar­leysi þeirra sem áttu að bregð­ast við.  „Hvernig má það  má það vera að svona alvar­leg árás sé hvergi skráð , að eng­inn til­kynni hana. Er verið að þagga hlut­ina niður? Finnst fólki í lagi að þarna sé ungur maður sund­ur­skor­inn í and­liti og það þurfi ekki að skrá neitt?“ spyr móð­irin. 

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum:  „Ég var engu að leyna“ 

Sem fyrr segir átti fyrri árásin sér stað á aðfara­nótt sunnu­dags og hin síð­ari laust eftir mið­nætti aðfara­nótt mánu­dags­ins. Þann dag þegar flestir gestir Þjóð­há­tíðar voru á heim­leið sagði Karl Gauti Hjalta­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum í fjöl­miðlum að hátíðin hefði gengið vel og ekk­ert mjög alvar­legt komið upp á.

Tekið til rann­sóknar án tafar ef maður verður „sann­ar­lega fyrir árás“ segir Karl Gauti Hjalta­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum

„Lík­ams­árásir ein­hverjar en ekki mjög alvar­legar sem við höfum heyrt af,“  sagði lög­reglu­stjór­inn í við­tali sem birt var á vef  RÚV um klukkan 10:30 á mánu­dags­morgn­inum. Rétt fyrir hádegi var birt frétt á mbl þar sem haft var eftir Karli Gauta að hann hafi enn sem komið var ekk­ert stórt mál í hönd­unum eftir Þjóð­há­tíð. Engin alvar­leg mál hafi komið á borð lög­reglu síð­asta kvöldið, ekki frekar en hin fyrri. Hátíðin hafi verið með róleg­asta móti.  „En auð­vitað eins og ég hef alltaf sagt þá er alltaf ein­hver ágrein­ing­ur og pústr­ar og ein­hver fíkni­efni smá­veg­is en ekk­ert stórt,“ sagði Karl við mbl. 

Móðirin er mjög ósátt við þessar full­yrð­ingar lög­reglu­stjór­ans og sakar hann um að „draga upp glans­mynd af hátíð­inni.“  

Karl Gauti segir í sam­tali við Heim­ild­ina að lík­lega hafi hann ekki vitað af þessum árásum þegar hann svar­aði fjöl­miðlum þennan dag. 

„Ég heyrði af lík­ams­árásum seinni part­inn mánu­dag­inn 5. ágúst, að það væru aðilar í Reykja­vík slas­aðir eftir árásir í Vest­manna­eyjum. Ég var engu að leyna. Það hringdi aðstand­andi á stöð­ina á mánu­dag­inn en hvort ég var búin að fara í við­tal áður en ég vissi af þessu, man ég ekki. En ég var engu að leyna. Það er öruggt mál, enda erum við allir af vilja gerðir að finna árás­ar­að­ila í svona alvar­legum málum. Við erum að vona að það sé myndefni til af þessu, við erum að bíða eftir upp­tökum úr dalnum.“  

Það var móðir yngri manns­ins sem hringdi á lög­reglu­stöð­ina í Eyjum þennan mánu­dags­morg­unn. Hún segir að það hafi verið rétt eftir klukkan 9.  Frétt RÚV er birt einum og hálfum tíma síðar, frétt mbl tæpum þremur tímum síðar og rétt fyrir klukkan tvö birt­ist frétt á Vísi þar sem Karl Gauti sagði að það hafi verið ein­hver ölv­un­ar­tengd mál, engar lík­ams­árásir hafi verið kærðar en að öðru leyti hafi Þjóð­há­tíð farið prýði­lega fram. Vinur sonar manns­ins hafði rætt við lög­reglu um hádegi þennan dag og móðir yngri manns­ins hafði sem fyrr segir hringt á lög­reglu­stöð­ina klukkan níu um morg­un­inn. 

„Ég var að óska eftir upp­lýs­ingum um atvikið en fékk þau svör að engin lík­ams­árás hefði verið til­kynnt. Lögregla á staðnum sem eldri sonur minn tal­aði við til að fá upp­lýs­ingar um hvernig þeir ættu að snúa sér í mál­inu hafði ekki skráð atvikið. Það er því ekki nema von að lög­reglu­stjór­inn segi í fjöl­miðlum að hátíðin hafi gengið glimr­andi vel, ef ekk­ert er skráð eða til­kynnt þá lítur allt svaka­lega vel út í fjöl­miðlum,“ segir móð­irin.

„Menn hafi haldið að hann hafi dottið“

Spurður hvers vegna árás­irnar hafi ekki verið skráðar í dag­bók lög­reglu segir Karl Gauti, lög­reglu­stjóri í Eyjum, að það þurfi að kanna það betur. „Kanna hvort ein­hverjir lög­reglu­menn hafi fengi vit­neskju um þetta og hverslags vit­neskju. Verk­lagið er auð­vitað það að ef ein­hver maður verður sann­ar­lega fyrir árás og er til dæmis skor­inn eins og þessi maður þá er það tekið til rann­sóknar án tafar. En hvort hann hafi talað nógu skýrt eða það hafi legið fyrir að hann hafi orðið fyrir árás, það er annað mál.“

Hann segir að sér skilj­ist að þegar ungi mað­ur­inn sem er með fjölda opinna skurða í and­liti komi í sjúkra­tjaldið hafi 
„menn haldið að hann hafi dottið eða að gleri hafi verið kastað í hann en hann var með skurði út um allt and­lit. 

Áverk­arnir séu án vafa eftir árásMóðir 19 ára manns­ins segir að læknar á bráða­mót­töku Land­spít­ala hafi sagt að sjá mætti á áverk­unum að þeir væru án nokk­urs vafa eftir árás.

Ég er búinn að sjá myndir og þetta er ekki fal­legt.  Okkur þykir þetta afskap­lega leitt. Við við­ur­kennum það að okkur fannst mjög leitt að heyra þetta og við viljum grípa ofbeld­is­menn­ina.“ 

Blk: En ef menn eru illa átt­aðir og eiga erfitt með að greina frá því sem gerð­ist? For­eldr­arnir segja að þeir hafi báðir fengið þung höf­uð­högg og að sögn móður drengs­ins sem skarst illa í and­liti sögðu læknar á bráða­mót­töku að sjá mætti á áverk­unum að þeir væru án nokk­urs vafa eftir árás.  

Karl Gauti: Já þá á að taka niður alla­vega nöfn og kenni­tölu og tala við vitni sem eru nálægt. 

Blk: En af hverju var það ekki gert?

Karl Gauti: Ég ætla ekki að láta neitt hafa eftir mér um það. Við skulum fyrst fá vit­neskju um það hvað gerð­ist nákvæm­lega. 

Blk: Ber lækni skylda til að til­kynna lög­reglu ef grunur leikur á að sjúk­lingur hafi orðið fyrir lík­ams­árás? 

Karl Gauti: Nei ég held að það sé ekki aug­ljóst. Fer eftir því hvernig áverkar koma. En við erum að rann­saka þetta mál og ég get ekki tjáð mig meira um það. Við fengum hins vegar sann­ar­lega að vita af því seinna hjá yfir­stjórn­inni en mér skilst að aðil­inn hafi ekki tjáð sig um þetta og að það hafi verið talið að hann hafi dottið eða hafi verið kastað í hann flösku úr skar­anum.

Blk: En það þurfti að sauma 40 spor í and­litið á honum. 

Karl Gauti: Já við vitum af þessu og erum að kanna þetta og erum að vinna fyrir þetta fólk. Við erum búin að bjóða þessu fólki að koma til Eyja í kæru­skýrslu, að minnsta kosti öðrum aðil­anum en við erum að reyna að gera okkar besta að hafa upp á myndefni til að finna árás­ar­að­il­ann og vitnum.

Blk: Telurðu að það hafi verið næg gæsla og að heil­brigð­is­þjón­ustan hafi verið nægi­lega vel mönnuð á svæð­inu? 

Karl Gauti: Það var alltaf einn læknir og tveir hjúkr­un­ar­fræð­ingar í sjúkra­tjald­inu og svo var sjúkra­húsið með við­bragð. En í til­efni af þessum tveimur atvikum þurfum við að fara yfir feril slíkra mála með heil­brigð­is­starfs­fólki í dalnum þannig að öll vit­neskja um alvar­legar lík­ams­árásir ber­ist til réttra aðila.

 „Á ofbeldismaður að ganga laus í dalnum í tvo sólarhringa?“  

For­eldrar ungu mann­anna segja að það hafi þurft að ganga eftir því dögum saman að flýta kæru­mót­töku.

Faðirinn segir að á meðan sonur hans og kærastan hans hafi verið á bráða­mót­tök­unni í Reykja­vík á sunnu­dags­kvöld­inu hafi þau reynt að hringja í lög­regl­una í Vest­manna­eyjum en að á heima­síðu hennar hafi komið fram að þar yrði opnað á mánu­dags­morgn­inum klukkan átta. Rétt fyrir mið­nætti á sunnu­deg­inum seg­ist fað­ir­inn hafa farið beint af bráða­mót­tök­unni á lög­reglu­stöð­ina Hverf­is­götu til að athuga hvort hægt væri að leggja fram kæru. Hann hafi kom­ist þar inn í and­dyri í vest­ur­enda stöðv­ar­innar en allt hafi verið læst. „Ég hringi þar dyra­bjöllu en eng­inn svarar.“ Þá hafi hann hringt í 1 1 2 og verið gefið sam­band við fjar­skipta­stöð. „Þar er mér sagt að það sé bara hægt að hringja í 444-1000 á þriðju­dags­morgn­inum klukkan átta og biðja um við­tals­tíma. „Á ofbeld­is­mað­ur­inn að ganga laus í dalnum í tvo sól­ar­hringa?“ spurði ég þá.“  

Hann seg­ist hafa fengið sama svar, að hringja á þriðju­dag. Þá hafi vinur sonar hans farið á lög­reglu­stöð­ina í Eyjum í hádeg­inu á mánu­deg­inum til að til­kynna árás­ina en að svo virð­ist sem hún hafi ekki verið skráð heldur þá. „Maður spyr sig hvort lög­reglan á Heimaey hefði ekki átt að sýna þessu aðeins meiri áhuga. Þó væri ekki nema skýrslu­taka næsta morgun. Vitandi að það sé laus ofbeld­is­maður á svæð­inu.“ 

Faðirinn er mjög ósáttur við þessi vinnu­brögð, seg­ist alltaf hafa borið virð­ingu fyrir störfum lög­reglu þar starfi upp til hópa gott fólk sem sinni erf­iðum verk­efnum en hann sé mjög hugsi yfir því hve erfitt hafi verið að leggja fram kæru.

„Í til­efni af þessum tveimur atvikum þurfum við að fara yfir feril slíkra mála“
Karl Gauti Hjalta­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum
segir að farið verði yfir feril mála með heil­brigð­is­starfs­fólki í dalnum þannig að öll vit­neskja um alvar­legar lík­ams­árásir ber­ist til réttra aðila

Sem fyrr segir sagði Karl Gauti lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum í frétt á Vísi sem birt var rétt fyrir klukkan tvö mánu­dag­inn 5. sept­em­ber að engar lík­ams­árásir hafi verið kærðar. Faðir manns­ins sem var ráð­ist á segir að það sé „ekki að furða að engar lík­ams­árásir voru kærðar þegar ekki er boðið upp á að kæra.“ 

Skýrslutaka hafi fyrst átt að fara fram mánuði eftir árásirnar 

Það var ekki fyrr en nokkrum dögum eftir að Þjóð­há­tíð lauk sem ungu menn­irnir fengu tíma í kæru­mót­töku, segja for­eldr­arnir.  

„Þeir fengu tíma í kæru­mót­töku 4. og 5. sept­em­ber, einum mán­uði eftir að árás­irnar voru framdar. Vitni verða óáreið­an­legri eftir því sem líður lengra frá atburði og slík máls­með­ferð hefði skaðað rann­sókn­ar­hags­muni mál­anna,“ segir móðir yngri manns­ins.

Spurður um þetta segir Karl Gauti að hann tjái sig ekki um verk­lag ann­arra emb­ætta.   

„En ég er búin að gefa fyr­ir­mæli hér um að bjóða báðum aðilum til Eyja og þá getum við tekið við kæru strax. Við erum allir af vilja gerðir að taka á móti kæru og upp­lýs­ingum um þetta þannig að rann­sóknin geti verið eins árang­urs­rík og unnt er. Það er alltaf leið­in­legt þegar fólk slasast svona illa. Við reynum okkar besta til að stemma stigu við ofbeldi á hátíð­inni.“

Lögregla hafi nú áttað sig á alvarleika árásarinnar

For­eldr­arnir stað­festa við Heim­ild­ina að síð­ast­lið­inn þriðju­dag, rúmri viku eftir Þjóð­há­tíð lauk hafi þeim með tölvu­pósti frá lög­reglu­emb­ætt­inu í Eyjum verið boðið að koma þangað í skýrslu­töku. 

Móðirin segir að skriður hafi ekki kom­ist á málin fyrr en eftir mikla eft­ir­fylgni hennar og þegar lög­reglu­menn hafi áttað sig á alvar­leika árás­ar­innar. „Þegar lög­regla var búin að fá atvika­lýs­ingu var hún sam­mála um að hraða þyrfti máls­með­ferð­inni og skýrslu­tökum var þá flýtt,“  segir hún og bætir við að nú sé mál sonar hennar loks komið í eðli­legt ferli, honum hafi meðal ann­ars verið til­nefndur rétt­ar­gæslu­maður. 

Hún segir mik­il­vægt að velta við öllum steinum. Verk­ferla vegna Þjóð­há­tíðar verði greini­lega að bæta þannig að gestir hátíð­ar­innar geti í fram­tíð­inni treyst því að gæsla sé vel mönnuð sem og sjúkra­tjaldið og að lög­regla bregð­ist strax við og skrái alvar­leg atvik. Hún hefur sent dóms­mála­ráð­herra bréf og óskað eftir því að fá að hitta hana til að ræða þessi mál. Hún seg­ist ekki enn vera búin að fá svar en að hún von­ist eftir góðu sam­tali við ráð­herrra sem og aðra sem komi að umgjörð Þjóð­há­tíðar.

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Samkvæmt greininni vissi lögreglan af þessum atvikum. Þađ var einusinni til brandari sem lýsti ráđningu hjá lögreglu, sem sagt, kveikt er á kerti sem sett er á hægri öxl þess sem á ađ ráđa, þá er blásiđ í vinstra eyrađ, ef slöknar á kertinu er viđkomandi ráđinn. Hver blés í vinstra eyra KGH ?
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Banna þessa helvítis brennivínshátíð ef þeir geta ekki tryggt öryggi fólks þarna
    3
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er greinilega þegjandi samkomulag milli svokallaðra viðbragðsaðila að gera ekkert sem gæti styggt gæsina sem verpir gulleggjunum. Sjálfur lögregustjórinn kom í fjölmiðla og sagði að ekkert markvert hefði skeð.
    4
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Og enn einu sinni fáum við í andlitið sígildan frasa dómsmálaráðherra, "Við tjáum okkur ekki um einstök mál".
    3
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Nýjustu fréttir af þessu máli að ,,opinbera " kerfið á Suðurlandi segir ekkert skrítið við neitt ?
    3
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Það á ekki að kalla þetta ,, líkamsárás" þar sem lögreggluembættum ber að skrá árásir á höfuð og eða nýrnasvæði sem ,, tilraun til manndráps". Hef persónulega reynslu af svona máli,. Vildi bara benda á þetta þar sem kerfið virkar mun hraðar ef atvikið er rétt skráð í lögreggluskyrslu.
    3
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þvílík ómenning! Þessar útihátíðar eru peningaplokk ekkert annað, ungmennin eru í stórhættu! Svo er reynt að þagga niður í þeim sem eru sárir til að skemma ekki "stemninguna".
    8
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvenær ætlar lögreglan í Vestmannaeyjum að viðurkenna að þeir nenna ekki að sinna gestum á þjóðhátíð ?

    ,,Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum segir að kannað verði „hvort einhverjir lögreglumenn hafi fengi vitneskju um þetta og hverslags vitneskju.“

    Fólk er stórslaslað og þarf í aðgerð á andliti og lögregla veit ekkert ?
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu