Mynd: Golli

Stórkostlega spennt fyrir nýjum kafla

Emilíana Torrini er nýbúin að gefa út sóló­plöt­una Miss Flower – sem fjallar um sam­nefnda konu sem neit­aði hverju bón­orð­inu á fætur öðru. Af því til­efni bauð rit­höf­und­ur­inn Guðrún Eva Mínervu­dóttir henni í heim­sókn – í sam­tal um allt og sitt­hvað umfram það.

Við sem þótt­umst komin til vits og ára á tíunda ára­tugnum munum eftir því þegar Emilíana Torrini steig fyrst fram á sjón­ar­sviðið, hversu sam­band hennar við tón­list og laga­smíðar virt­ist sjálf­sagt og eðli­legt. Það var líkt og alltaf hefði verið sjálf­gefið að hlut­verk Emilíönu í heim­inum væri að fremja tón­list.

Núna nær okkur í tíma, á mánu­dags­morgni í júlí, situr Emilíana við eld­hús­borðið heima hjá mér og þegar ég les þessi byrj­un­ar­orð fyrir hana fer hún að hlæja. Það er heils­hugar hlátur sem dregur ský frá sólu.

   „Fremja tón­list,“ hlær hún. „Það er geggjað, eins og að fremja ódæði eða morð!“  

   Listin er hættu­leg, sam­sinni ég. En hvenær vissir þú það? Hvenær og hvernig fædd­ist vissan um að þú værir músi­kant?

   „Kannski var það ekki endi­lega alger full­vissa til að byrja með, en það var svo nátt­úru­legt að vera stöðugt að syngja. Og gera hljóð. Taktur kom eðli­lega …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár