Óvinsælasta ríkisstjórn Íslands í 15 ár og minnsta fylgi Framsóknar frá upphafi

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar minnkar í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup en flokk­ur­inn er enn stærsti flokkur lands­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur aðeins einu sinni mælst með jafn lít­inn stuðn­ing og sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist í fyrsta sinn í sögu hennar undir 30 pró­sentum. Rík­is­stjórnin er jafn­framt sú óvin­sælasta sem Ísland hefur átt í rúm­lega 15 ár.

Óvinsælasta ríkisstjórn Íslands í 15 ár og minnsta fylgi Framsóknar frá upphafi
Formenn stjórn­ar­flokk­anna Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, for­maður Vinstri grænna, Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins leiða rík­is­stjórn­ina. Allir þrír flokk­arnir missa fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. VG nær ekki inn þing­manni, Framsókn jafnar minnsta fylgi sitt og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stefnir í verstu nið­ur­stöðu frá upp­hafi.

Sam­fylk­ingin er enn stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup sem greint var frá á RÚV í gær­kvöld. Flokk­ur­inn tapar samt sem áður mestu fylgi milli mæl­inga. Sam­fylk­ingin mælist með 26,9 pró­sent fylgi, þremur pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn mæld­ist með í maí. Þetta er minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með síðan í mars 2023. 

Þjóð­ar­púls Gallup/Heim­ildin

Ýmsar breyt­ingar eru á fylgi flokka milli mán­aða. Aðrir flokkar sem mæl­ast með minna fylgi nú eru Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, fylgi hans minnkar um 2,5 pró­sentu­stig, og fylgi Sós­í­alista­flokks­ins minnkar um 0,2 pró­sentu­stig og mælist nú 3,5 pró­sent.  

Á sama tíma hækkar fylgi Við­reisnar og Flokks fólks­ins um nær tvö pró­sentu­stig hjá hvorum flokki. Ríflega níu pró­sent kysu og næstum átta pró­sent Flokk fólks­ins. Fylgi ann­arra flokka breyt­ist lítið milli mán­aða. 

Framsókn jafnar minnsta fylgið og Sjálfstæðisflokkurinn stefnir í verstu niðurstöðu frá upphafi

Þegar rýnt er í nið­ur­stöður Þjóð­ar­púls­ins má ráða ýmis­legt í stöðu stjórn­mála­flokka lands­ins.  Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að mæl­ast með sitt minnsta fylgi í könn­unum Gallup frá upp­hafi, 6,6 pró­sent. Flokk­ur­inn hefur aðeins einu sinni áður mælst með nákvæm­lega jafn lítið fylgi, það var í sept­em­ber 2018. Flokk­ur­inn myndi fá fjóra þing­menn að óbreyttu. Þetta yrði lang­versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi ef staðan í könn­unum myndi raun­ger­ast í kosn­ingum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nú mælst með undir 20 pró­sent fylgi í könn­unum Gallup sleitu­laust síðan í sept­em­ber í fyrra, og með undir 19 pró­sent fylgi í fimm af sex mán­uðum þessa árs. Hann hefur aldrei fengið undir 23,7 pró­sent í þing­kosn­ingum og stefnir því í sína verstu nið­ur­stöðu frá upp­hafi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ein­ungis einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum ekki verið sá flokkur sem naut mest stuðn­ings í kosn­ingum, í fyrstu kosn­ing­unum eftir hrunið árið 2009. Nú mælist hann 8,4 pró­sentu­stigum minni en Sam­fylk­ingin.

Þjóð­ar­púls­inn er önnur könn­unin í röð þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar fylgi, en flokk­ur­inn mælist með 15 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Maskínu. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir fylgis­tapið í könn­unum vís­bend­ingu til að líta inn á við og setja auk­inn kraft í hægri­stefn­una, eins og hún kemst að orði í sam­tali við mbl.is. Hún segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa fórnað og miklu í sam­starfi við flokka sem eru á önd­verðum meiði í stjórn­mál­unum. 

Aukinn kraft til hægriÁslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, vill að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn setji auk­inn kraft í hægri­stefn­una.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn hafa starfað saman í rík­is­stjórn frá 2017. Vinstri græn hafa leitt sitj­andi rík­is­stjórn þangað til í apríl þegar Katrín Jak­obs­dóttir hætti og fór í for­seta­fram­boð sem hún tap­aði. Fylgi Vinstri grænna mælist áfram mjög lítið og annan mán­uð­inn í röð er flokk­ur­inn með of lítið fylgi til að ná inn manni. Í maí var fylgi 3,3 pró­sent en nú fjögur pró­sent. Þetta eru tvær verstu mæl­ingar sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið í könn­unum Gallup.

Fylgi ríkisstjórnarinnar í fyrsta sinn undir 30 prósentum

Rík­is­stjórnin sem er í dag með 38 þing­menn af 63, myndi fá 17 ef kosið yrði í dag sam­kvæmt Þjóð­ar­púls­inum. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna sem að henni standa mælist í fyrsta sinn í sögu hennar undir 30 pró­sent, eða 29,1 pró­sent. Þeir fengu 54,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælst nú tæp­lega 28 pró­sent sam­kvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup. Síðasta skiptið sem stuðn­ingur við rík­is­stjórn mæld­ist undir 30 pró­sent var í maí 2012, þegar rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sat að völdum. Frá alda­mótum hefur það raunar ein­ungis gerst tvisvar að rík­is­stjórnir hafi farið undir 30 pró­sent stuðn­ing. Í fyrra skiptið í jan­úar 2009, þegar hrun­stjórn Geirs H. Haarde, sam­an­sett af Sjálf­stæð­is­flokki og Sam­fylk­ingu, fór í niður í 26 pró­sent og svo vorið 2012 hjá áður­nefndri stjórn Jóhönnu, sem var skipuð Sam­fylk­ingu og Vinstri grænum. Rík­is­stjórn hefur ekki mælst með jafn lít­inn stuðn­ing síðan í jan­úar 2009, þegar rík­is­stjórn Geirs H. Haarde var við það að falla. Þetta er því óvin­sælasta rík­is­stjórn sem Ísland hefur átt í rúm­lega 15 ár, og senni­lega sú næst óvin­sælasta í sög­unni að hrun­stjórn­inni und­an­skil­inni.

Miðflokkurinn klár í kosningar 

Mið­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst með meira fylgi í könn­unum Gallup, alls 14,5 pró­sent. Það er níu pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins segir vera kom­inn tíma á kosn­ingar, en þær verða í síð­asta lagi haustið 2025, eftir rúmt ár. Sig­mundur Davíð spáir því að Vinstri græn muni sprengja rík­is­stjórn­ar­sam­starfið í haust. „Eins og sak­ir standa þá myndi ég veðja á það verði VG eft­ir lands­fund þeirra í októ­ber,“ seg­ir Sig­mund­ur í sam­tali við mbl.is. 

Formaður Mið­flokks­insSig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er klár í kosn­ingar og spáir því að Vinstri græn sprengi rík­is­stjórn­ar­sam­starfið í haust.

Sam­fylk­ingin dalar mest allra flokka milli mán­aða og hefur ekki mælst minni síðan í mars í fyrra, eða í 15 mán­uði. Hún er samt sem áður enn langstærsti flokk­ur­inn sam­kvæmt mæl­ingum með 26,9 pró­sent og myndi bæta við sig 17 pró­sentu­stigum milli kosn­inga að óbreytta, sem er meira en nokkur annar flokkur.

Viðreisn hefur ekki mælst með meira fylgi en nú, alls 9,4 pró­sent, síðan í apríl 2022. Flokk­ur­inn er yfir kjör­fylgi sem var 8,3 pró­sent. Píratar eru á nákvæm­lega sama stað og þeir voru í síð­asta mán­uði og sýna mik­inn stöð­ug­leika í fylgi, sem er þarna á milli átta og níu pró­sent. Það þýðir að þeir eru í kjör­fylgi, en þeir fengu 8,6 pró­sent haustið 2021.

Flokkur fólks­ins er aðeins að hress­ast og er kom­inn á svip­aðan stað og í byrjun árs með 7,7 pró­sent en eru ekki búin að ná kjör­fylg­inu sem var 8,9 pró­sent. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist minnstur allra með 3,5 pró­sent, sem er svipað og hann hefur verið að mæl­ast með á kjör­tíma­bil­inu. Hann hefur ekki mælst með yfir fimm pró­sent fylgi, sem myndi tryggja jöfn­un­ar­þing­mann, síðan snemma á síð­asta ári.

Þjóð­ar­púls Gallup sýnir að fjórir flokkar hafa bætt við sig frá síð­ustu kosn­ingum og þeir eru allir í stjórn­ar­and­stöðu, Sam­fylk­ingin og Mið­flokk­ur­inn lang­mestu (sam­an­lagt 26 pró­sentu­stigum), en Viðreisn og Píratar mun minna. Allir aðrir flokkar myndu tapa fylgi og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir lang­mestu, eða 25,1 pró­sent. Sam­fylk­ingin, ein og sér, mælist með nán­ast sama fylgi og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sam­an­lagt, eða 26,9 pró­sent á móti 29,1 pró­sent.


Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 3.–30. júní 2024. Heild­ar­úr­taks­stærð var 8.786 og þátt­töku­hlut­fall 47,3 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir af handa­hófi úr við­horfa­hópi Gallup.
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár