Stjórnarskipti höfðu engin áhrif á fylgið – Þriðjungur styður stjórnarflokkanna

Sam­fylk­ingin er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins, og hefur nú mælst með mark­tækt meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fimmtán mán­uði í röð. Flokkur for­sæt­is­ráð­herra er með nán­ast sama fylgi og Framsókn fékk í síð­ustu kosn­ingum og Vinstri græn eru áfram í hættu að falla af þingi.

Stjórnarskipti höfðu engin áhrif á fylgið – Þriðjungur styður stjórnarflokkanna
Ólík staða Flokkur Kristrúnar Frosta­dóttur stefnir í sína bestu kosn­ingu frá árinu 2009 og að fara lang­leið­ina með að þre­falda fylgi sitt. Flokkar Bjarna Bene­dikts­sonar og Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar stefna í verstu nið­ur­stöðu sína frá því að þeir voru stofn­aðir. Mynd: Golli

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 17,5 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Maskínu á fylgi flokka, sem birt var í dag. Það er 6,9 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Vinstri græn hafa tapað enn meira fylgi á þeim tíma sem lið­inn er frá því að síð­asta var kosið, eða 7,5 pró­sentu­stigum, og fylgi flokks­ins mælist nú ein­ungis 5,1 pró­sent. Litlu þyrfti að skeika til að flokk­ur­inn næði ekki yfir þann þrösk­uld sem er nauð­syn­legt að klífa til að fá upp­bót­ar­þing­menn og sá mögu­leiki er raun­veru­legur að flokk­ur­inn nái ekki inn manni á þing. Þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokkur, mælist með 10,4 pró­sent fylgi sem er 6,9 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum haustið 2021. 

Sam­an­lagt mæl­ast stjórn­ar­flokk­arnir þrír með 33 pró­sent fylgi sem er það minnst sem þeir hafa mælst með í könn­unum Maskínu, og tafa tapað 21,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. Þeir hafa ekki náð að mæl­ast með yfir 40 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi síðan á fjórða árs­fjórð­ungi 2022, eða fyrir einu og hálfu ári síðan. 

Þegar skipt var um for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni í síð­asta mán­uði, þar sem Bjarni Bene­dikts­son tók við af Katrínu Jak­obs­dóttur, var gefið sterkt til kynna að stjórnin ætl­aði sér að sitja út kjör­tíma­bilið, sem tekur enda haustið 2025 að óbreyttu. Ljóst má vera að breyt­ing­arnar hafa engu breytt um fylgi stjórn­ar­flokk­anna. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra hefur meira og minna verið á þeim slóðum sem það er nú frá síð­asta hausti. 

Samfylkingin marktækt stærst fimmtánda mánuðinn í röð

Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokkur lands­ins líkt og hún hefur gert linnu­laust frá því í lok árs 2022. Nú mælist fylgi 27,3 pró­sent og stendur í stað milli mán­aða. Flokk­ur­inn hefur bætt við sig 17,4 pró­sentu­stigum það sem af er kjör­tíma­bili og er það stjórn­mála­afl sem hefur bætt við sig lang­mestu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. 

Í könnun Maskínu kemur fram að maí sé fimmt­ándi mán­uð­ur­inn í röð þar sem mark­tækur munur mælist á fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar og næst stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í nýj­ustu könn­un­inni mælist sá munur um tíu pró­sentu­stig. 

Leiða má að því líkur að fylgis­tap Sjálf­stæð­is­flokks­ins hald­ist að ein­hverju leyti í hendur við umtals­verða fylg­is­aukn­ingu Mið­flokks­ins, sem mælist nú með 12,6 pró­sent fylgi og hefur þar með bætt við sig 7,2 pró­sentu­stigum frá því að kosið var síð­ast. 

Viðreisn hefur líka bætt aðeins við sig og er nú að mæl­ast með 9,4 pró­sent fylgi, eða 1,1 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi. Píratar eru nán­ast á sama stað og haustið 2021 með 8,4 pró­sent en Flokkur fólks­ins hefur tapað mark­tæku fylgi, farið úr 8,8 í 5,6 pró­sent það sem af er kjör­tíma­bili. Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi ekki ná inn á þing eins og er þar sem fylgi hans mælist 3,9 pró­sent. 

Dreifing atkvæða svipuð en nýir flokkar í efstu sætum

Athygl­is­vert er að dreif­ing atkvæða er alls ekki ólík því sem hún var í kosn­ing­unum 2021, flokk­arnir hafa bara skipt um sæti á þeim dreif­ing­ar­lista. Sam­fylk­ingin hefur tekið við hlut­verki Sjálf­stæð­is­flokks sem stærsti flokkur lands­ins með 27,3 pró­sent, en flokkur núver­andi for­sæt­is­ráð­herra fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Sá flokkur er svo nýi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn enda fylgi hans nú nán­ast það sama og flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fékk haustið 2021. Mið­flokk­ur­inn tekur við hlut­verki Vinstri grænna sem þriðji stærsti flokkur lands­ins með nákvæm­lega sama fylgi og sá síð­ar­nefndi fékk í síð­ustu kosn­ingum, 12,6 pró­sent. Vinstri græn setj­ast að saka skapi á botn list­ans með fylgi sem rétt dugar inn á þing og dugar, í besta falli, til að ná þremur þing­mönnum. 

Helsti mun­ur­inn er sá að miðju­moðs­flokk­unum, sem mæl­ast með átta til tíu pró­sent fylgi, fækkar úr fjórum í þrjá. Framsókn er mætt á þær slóðir í stað Sam­fylk­ingar og þar eru áfram á fleti Viðreisn og Píratar. Flokkur fólks­ins fellur hins vegar niður úr þeim fylg­is­ramma og er nú mun nær því að falla af þingi en að hífa fylgið sitt upp í tveggja stafa tölu.

Könnunin var gerð dag­anna 30. apríl til 23. maí 2024 og svar­endur voru 3.349 tals­ins.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár