Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu

Árið 2021 keypti hópur fjár­festa í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Þorpið 6 ehf. lóðir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ártúns­höfða í Reykja­vík fyrir 7,4 millj­arða króna. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­indin seld fyrir ell­efu millj­arða króna án þess að nokkuð hafi verið byggt á svæð­inu. Við­skiptin sýna vel hvernig fjár­festar geta hagn­ast ævin­týra­lega með því að kaupa og selja lóðir og bygg­ing­ar­rétt­indi á til­tölu­lega skömmum tíma.

Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu
Græddu um tvo millj­arða á þremur árum Þorpið vist­fé­lag hafði hug á því að reisa íbúðir á lóð­inni þegar félagið festi kaup á lóða­rétt­ind­unum árið 2021 fyrir 7,4 millj­arða króna. Svo fór að lokum að lóðin var seld með um tveggja millj­arða króna hagn­aði. Mynd: Heimasíða Þorpsins vistfélags

Hópur fjár­festa sem keypti lóðir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ártúns­höfða í Reykja­vík hagn­að­ist um vel á annan millj­arð króna á tæp­lega þremur árum á við­skiptum með þessi rétt­indi án þess að hafa byggt nokkuð á svæð­inu. Um var að ræða heim­ildir til að byggja um 80 þús­und fer­metra af hús­næði. Til stendur að byggja íbúðir á lóð­unum.

Við­skiptin fóru fram í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Þorpið 6 ehf., sem er dótt­ur­fé­lag fyr­ir­tækis sem heitir Þorpið vist­fé­lag. Félagið greiddi um 7,4 millj­arða fyrir lóða­rétt­indin árið 2021. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­indin seld fyrir 11 millj­arða króna til fast­eigna­fé­lags­ins Skugga 4. ehf., sem er í eigu fjár­fest­is­ins Krist­jáns Gunnars Rík­harðs­sonar. Með til­liti til verð­lags­breyt­inga og greiðslu af lánum má ætla að hagn­að­ur­inn af við­skipt­unum nemi vel á annan millj­arð. 

Vert er þó að taka fram að enn á eftir að ganga end­an­lega frá söl­unni á lóða­rétt­indum Þorpsins 6. ehf. Frá því að …

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Í boði pírata, viðreisnar og Dags ?... ekki sjallanna ?... en rannsóknarblaðamenn hafa víst ekki áhuga á að rannsaka slík mál ???
    -1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þarf ekki nema eitt varnaglaákvæði í sölusamninga svona gerninga til að tryggja að ekki sé um spákaupmennsku að ræða. Borgin hafnaði því að slíkt ákvæði væri sett inn... eins og svo oft. Svo geltið að borgarstarfsmönnum en ekki spákaupmönnunum... því þeir eru afleiðing spillingar... borgarstarfsmenn orsökin. Og Ingi ? Finndu út hverjir settu ekki inn varnaglana... því það er rétta fréttin... þetta er skúbbið .... ekki frétt... og ekki verra að spyrja hvort varnaglar séu staðalákvæði í dag eða hvort spillingin heldur áfram.
    4
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Ætti að vera búið að byggja heilu hverfin t.d. Geldinganes Álfsnes en kjörnir fulltrúar eru ekkert að hugsa um hag almennings m.a. þess vegna þarf alsherjar uppstokkun í Íslenskum stjórnmálum
    2
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Þorpið hefur komið víða við og verðugt rannsóknarefni hvernig Runólfur tengist þeim sem stjórnað hafa lóðamálum borgarinnar undanfarinn áratug. Gufunesæfintýrið er eitt af því sem gaman væri að fara í saumana á. Það var upphafið að blekkingunni um ,,vistvænt" samfélag. Hugtak sem Dagur og Samfylkingin voru svo ginnkeypt fyrir að þau úthlutuðu ókeypis lóðum til félagsins.
    3
    • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
      Það kemur fram að lóðirnar voru ekki ókeypis en spillingarfnykur er í loftinu.
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár