Fuglarnir missi hreiðrin sín vegna veðurs

Í Mývatns­sveit hrann­ast snjó­skafl­arnir upp og ekki er hægt að hreyfa nema stærstu bíl­ana við Nátt­úru­rann­sókna­stöð­ina við Mývatn. Unnur Þóra Jök­uls­dóttir segir sorg­legt að sjá fugl­ana berj­ast við vind­inn. Þeir séu að missa hreiðrin sín.

Fuglarnir missi hreiðrin sín vegna veðurs
Frá Skútu­stöðum í Þing­eyj­ar­sýslu fyrr í dag. Mynd: Unnur Jökulsdóttir

App­el­sínugul við­vörun er í gildi á stærstum hluta lands­ins í dag, að öðrum kosti gul. Á sumum stöðum er tals­vert um snjó. Einn þeirra er Mývatns­sveit þar sem skafl­arnir hrann­ast upp með til­heyr­andi afleið­ingum fyrir dýra­lífið. 

Unnur Þóra Jök­uls­dóttir, starfs­maður hjá Nátt­úru­rann­sókna­stöð­inni við Mývatn, segir að byrjað hafi að snjóa lít­il­lega í gær og í nótt hafi svo farið að blása upp. „Í morgun þegar ég leit út um glugg­ann þá var allt orðið alhvítt og komnir skaflar í kringum húsið – þannig það var ekki hægt að hreyfa nema stærsta bíl­inn,“ segir hún. 

Unnur hefur unnið á svæð­inu í 20 ár og býr þar á sumrin. „Ég hef alveg oft lent í því að það snjói eitt­hvað í júní. En það hefur yfir­leitt verið part úr degi og svo er það horfið dag­inn eftir. Það er aldrei svona mikið og lengi í einu eins og það er …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár