Kolbeinn Sigþórsson, fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður í knattspyrnu, var sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barnungri stúlku í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
RÚV greinir frá en dómurinn verður birtur síðdegis í dag.
Kolbeini hafði verið gefið að sök að hafa brotið kynferðislega gegn barnungri stúlku í sumarhúsi í júnímánuði árið 2022 og nýtt sér yfirburði sína yfir henni. Kolbeinn neitar sök.
Móðir stúlkunnar kærði Kolbein fyrir hönd hennar og krafðist þess að Kolbeinn greiddi stúlkunni miskabætur upp á þrjár milljónir króna auk vaxta.
Fréttin hefur verið uppfærð
Athugasemdir