Á Íslandi „Pabbi, ég vil vera hér,“ sagði Yazan við pabba sinn þegar fjöl­skyldan var lent í Keflavík. Mynd: Golli

Missti göngugetuna níu ára og missir „himnaríki“ ellefu ára

Þó að læknar telji mik­il­vægt að hinn ell­efu ára gamli Yazan, sem er með ágengan vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm, haldi áfram í lækn­is­með­ferð telur Kæru­nefnd útlend­inga­mála ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að vísa honum til lands sem hann hefur sem stendur engin rétt­indi í. „Ég hef unnið við þetta í næstum 8 ár og aldrei séð svona afger­andi lækn­is­vott­orð,“ segir tals­maður fjöl­skyld­unnar. Sex sam­tök og fjöl­margir Íslend­ingar hafa mót­mælt fyr­ir­hug­aðri brott­vísun.

Þegar hinn 11 ára gamli Yazan Aburajab Tamimi mætti í Hamra­skóla í fyrsta sinn síð­asta haust beið hans bréf þar sem krakk­arnir í bekknum hans buðu hann vel­kom­inn. Bréfinu fylgdu tvö tusku­dýr, annað hvítt og hitt app­el­sínugult. Yazan var hissa. Það var langt síðan honum hafði liðið eins og hann væri vel­kom­inn. „Þið hljótið að hafa farið með mig til himna­ríkis,“ sagði Yazan við for­eldra sína, Ferial og Mohsen.

Í heima­land­inu, Palest­ínu, hafði Yazan verið úthýst úr skól­anum og hann hafði helst ekki viljað hitta vini eða ætt­ingja af ótta við það hvað þeim myndi finn­ast um hann af þeirri ástæðu að hann var hættur að geta gengið.

Það hafði hann ekki gert síðan hann féll á kné á heim­ili fjöl­skyld­unnar í Palest­ínu nokkrum dögum eftir níu ára afmælið sitt. „Ég finn ekki fyrir fót­leggj­unum mínum,“ hafði hann æpt á for­eldra sína.

Þau reyndu að róa dreng­inn sinn niður en …

Kjósa
60
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, hvað segir hann um svona aðferðafræði.
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Ráðamenn virðast blindir er mannsal fer fram.
    Getur verið að einverjir á þeim bæ hugnist það.

    Hér þarf einungis ástúð sem foreldrar veita.

    Er mannvonska ráðandi hjá ráðamönnum?
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Haldið áfram að hjálpa þessu blessaða barni, ekki síður foreldrunum!
    8
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er til skammar, þetta folk stendur i Erfiðum malum og kvi ekki að lofa þeim að vera um kyrt a Islandi. Það er Fasistalikt af þessi mali og það illa ræður ferðini i þessu mali. Grimd og illgirni eru þarna a ferðini. Lofum þessu folki að vinna ur sorginni a Islandi. Brottvisun er lugaleg vinnubrögð
    7
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Það er sem vanti alla mennsku í það fólk sem þarna heldur um tauma.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár