Pítsurnar standa fyrir sínu

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar ræddi við gang­andi veg­far­endur um vin­sældir Domino's pítsa á Íslandi. Ástæður vin­sæld­anna segja þeir vera þröngan gæð­ara­mma, hjarð­hegðun og hag­stæð til­boð.

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar spurði gang­andi veg­far­endur í miðbæ Reykja­víkur um afstöðu þeirra til Domino's og af hverju þessi skyndi­biti nýtur svona gríð­ar­legra vin­sælda á Íslandi. Við­mæl­end­urnir höfðu allir lagt það í vana sinn að borða pít­s­urnar ein­hvern tíma á lífs­leið­inni og voru sam­mála um að þær væru nokkuð góðar. 

Tilboðin góð til að fæða marga munna

Þor­steinn Har­alds­son giskar á að hann fái sér Domino's á um 10 daga fresti. Hann segir það yfir­leitt tengj­ast börn­unum sínum svo Meat and Cheese og Hawaii verði oft­ast fyrir val­inu. Spurður hvað honum finn­ist um pít­s­urnar segir Þor­steinn þær bara mjög góðar, þær séu ágætar fjöl­skyldu­pít­sur.

Af hverju held­urðu að þetta sé vin­sæl­asti skyndi­bit­inn á Íslandi?

„Ég held það sé nú einmitt út af því það er hægt að fá ágætis til­boð. Ég held að flestir nýti sér það sem þurfa að fæða marga munna.“

Hefur prófað allan matseðilinn

Starri Reyn­is­son giskar á að hann borði pít­sur frá Domino's á um tveggja vikna fresti. Hann segir það mjög breyti­legt hvað hann fái sér á þær og kveðst dug­legur í til­rauna­starf­sem­inni. „Yfir­leitt panta ég nú eitt­hvað af mat­seðli.“ Hann telur þó að hann hafi smakkað liggur við allan mat­seð­il­inn. Aðspurður segir Starri að pít­s­urnar standi yfir­leitt fyrir sínu. „Þetta er ekki það besta sem maður fær en alltaf nokkuð solid.“

Starri telur að gríð­ar­legar vin­sældir pítsanna stafi af því hvað gæð­ara­mm­inn er þröngur hjá Domino's. Fólk viti alveg að hverju það sé að ganga. „Ef maður pantar ann­ars staðar frá þá kannski fær maður eitt­hvað geggjað en mögu­lega er meiri áhætta. Maður getur líka fengið eitt­hvað veru­lega slakt.“

Botninn aðeins of þykkur

Ingi­björg Ein­ars­dóttir seg­ist borða Domino's sjaldnar en hún gerði fyrir 20 árum, en þá fékk sér hún þær á hverjum föstu­degi. Hún fær sér gjarnan ananas, skinku, sveppi og kannski æti­þistla á þær. Ingi­björg kveðst hafa enga skoðun á pít­s­unum sjálfum, en við­ur­kennir að henni þyki botn­inn aðeins of þykkur á þeim.

„Ég hef aldrei velt því fyrir mér, ég ætla ekki að reyna að svara því,“ segir hún þegar hún er spurð af hverju pít­s­urnar njóti svona mik­illa vin­sælda á Íslandi.

Telur vinsældirnar stafa af hjarðhegðun

Árni Ing­ólfs­son seg­ist hafa slitið við­skiptum sínum við Domino's fyrir um tveimur árum, sökum þess að fyr­ir­tækið tekur ekki við reiðufé. Honum þyki pít­s­urnar þó alveg frá­bærar. Hann er vegan og fékk sér því svartar ólífur, papriku og þistil­hjörtu á þær.

„Þetta er ekk­ert ósvipað og það að láta sprauta sig í Laug­ar­dals­höll“
Árni Ing­ólfs­son

Spurður af hverju hann telji Domino's vera vin­sælasta skyndi­bit­ann segir Árni að hann haldi að það skrif­ist á hjarð­hegðun. Þær séu oft pant­aðar á vinnu­stöðum til dæmis. „Þetta er ekk­ert ósvipað og það að láta sprauta sig í Laug­ar­dals­höll. Hjarð­hegð­unin er svo rík í fólki,“ segir hann. 

Domino's ❤️

Eitt er víst að Domino's virð­ist eiga sér­stakan sess í hjörtum lands­manna og virð­ist sú vænt­um­þykja vera gagn­kvæm, líkt og sjá má á með­fylgj­andi mynd­bandi sem Marteinn Elí Brynj­ólfs­son tók.

Marteinn Brynj­ólfs­son
Kjósa
-4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Ömurlegt!
    1
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Er Heimildin svo illa stödd fjárhagslega að nú er farið að birta svona auglýsingar sem 'fréttir'? Þetta er önnur svona auglýsing fyrir þetta tiltekna fyrirtæki í dag frá sitt hvorum 'fréttamanninum'!

    Ég mun klárlega segja upp áskrift að miðlinum ef þetta heldur svona áfram. Það er alveg geirneglt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár