Sjálfstæðisflokkurinn mælst með minna en 20 prósent fylgi samfleytt í meira en ár

Sjálfstæðisflokkurinn mælst með minna en 20 prósent fylgi samfleytt í meira en ár

Vinstri græn hafa aldrei mælst með minna fylgi í könnun Maskínu og yrðu minnsti flokk­ur­inn á þingi ef kosið yrði í dag, ef þau kæmust yfir höfuð inn. Sam­fylk­ingin mælist nú stærri en nokkru sinni áður á kjör­tíma­bil­inu og Mið­flokk­ur­inn er stöð­ugur í kjör­fylgi sínu frá 2017.

Í fyrstu fylgiskönnun Maskínu síðan að for­sæt­is­ráð­herra­skipti urðu, og rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar tók við, þá dal­aði fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, flokks nýja for­sæt­is­ráð­herr­ans, og fylgi Vinstri grænna, flokks gamla for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur. Fylgi þriðja stjórn­ar­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks, jókst llít­il­lega á milli mán­aða og hefur raunar ekki mælst hærra síðan í mars 2023.

Fylgi Vinstri grænna hefur hins vegar aldrei mælst lægra í könn­unum Maskínu og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær sína næst verstu mæl­ingu frá upp­hafi. Sam­an­lagt fygi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nú undir þriðj­ungi og lækkar milli mán­aða.

Verst er staða Vinstri grænna, sem misstu for­mann­inn sinn í for­seta­fram­boð fyrr í mán­uð­inum. Nú segj­ast ein­ungis fimm pró­sent svar­enda ætla að kjósa þann flokk, og þarf afar lítið til svo að hann nái ein­fald­lega ekki inn á þing, og hann er nú sá flokkur af þeim átta sem eiga full­trúa á þingi sem fæstir svar­endur gætu hugsað sér að kjósa.

Frá síð­ustu kosn­ingum hafa Vinstri græn tapað 7,6 pró­sentu­stigum af fylgi, meira en nokkur annar flokkur. Staðan er enn verri ef hún er borin saman við kosn­ing­arnar 2017, þegar flokk­ur­inn ákvað að leiða rík­is­stjórn þeirra flokka sem setið hafa alla tíð síðan. Þá fékk hann 16,9 pró­sent atkvæða, vel rúm­lega þrefalt það sem Vinstri græn mæl­ast nú með. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er líka í brekku þrátt fyrir að hafa loks tekið við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, en því hefur flokk­ur­inn ekki haldið nema í nokkra mán­uði á árinu 2017 frá því að Geir H. Haarde baðst lausnar fyrir ráðu­neyti sitt í lok árs 2009. Fylgi flokks­ins nú mælist 17,2 pró­sent. 

Eina skiptið sem það hefur mælst minna í könn­unum Maskínu var í jan­úar þegar það fór niður í 16,6 pró­sent. Það sem meira er þá hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki mælst með yfir 20 pró­sent fylgi í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins síðan í mars 2023, eða í 13 mán­uði sam­fleytt. Hann hefur aldrei fengið svo lítið fylgi í kosn­ingum og fékk 24,4 pró­sent atkvæða haustið 2021, eða 7,2 pró­sentu­stigum meira en fylgið sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með.

Framsókn hress­ist, líkt og áður sagði, milli mán­aða og mælist nú með 10,7 pró­sent fylgi. Það er þó 6,6 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Sam­an­dregið hafa stjórn­ar­flokk­arnir því allir tapað um og yfir sjö pró­sentu­stigum af fylgi hver það sem af er kjör­tíma­bili, en kosið verður í síð­asta lagi haustið 2025. Sam­an­lagt fylgis­tap þeirra nemur nú 21,5 pró­sentu­stigi.

Samfylkingin aldrei mælst hærri

Það er ekki langt frá þeirri fylg­is­aukn­ingu sem Sam­fylk­ingin hefur náð í á kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn mælist nú með ein­ungis 5,6 pró­sentu­stigum minna fylgi en allir stjórn­ar­flokk­arnir til sam­ans, eða 27,3 pró­sent. Það er 16,4 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum og mesta fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur mælst með í könn­unum Maskínu á kjör­tíma­bil­inu, en hún hefur stöðugt mælst stærsti flokkur lands­ins í öllum könn­unum frá því í lok árs 2022. Senni­leg­ast verður að telja að Sam­fylk­ingin sé að taka nýtt fylgi sitt í stórum dráttum frá Fram­sókn­ar­flokki og Vinstri grænum.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hefur verið að festa sig í sessi sem þriðji stærsti flokkur lands­ins á und­an­förnum mán­uðum og auð­velt að álykta að stór hluti þess fylgis sem horfið hefur frá Sjálf­stæð­is­flokknum hafi færst yfir á hann. Flokk­ur­inn mælist nú á svip­uðum stað og þegar kosið var 2017, með 11,6 pró­sent fylgi, en hann fékk ein­ungis 5,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021. 

Þriðji flokk­ur­inn sem mælist nú með meira fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum er Viðreisn með 10,2 pró­sent. Sú fylg­is­aukn­ing er þó hóf­legri en hjá bæði Sam­fylk­ingu og Mið­flokki. Píratar eru að mæl­ast nán­ast í kjör­fylgi með 8,5 pró­sent en eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem hefur tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu sem ein­hverju nemur er Flokkur fólks­ins, sem mælist nú með 5,3 pró­sent fylgi.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn er skammt undan Vinstri grænum og Flokki fólks­ins með 4,1 pró­sent fylgi en hann náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum. 

Könnunin fór fram dag­ana 5. til 16. apríl 2024 og voru 1.746 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Þrír af hverjum fjórum vantreysta forsætisráðherra

Katrín Jak­obs­dóttir, sem alla tíð hefur verið vin­sæl­asti liðs­maður rík­is­stjórn­ar­innar sam­kvæmt mæl­ingum, til­kynnti föstu­dag­inn 5. apríl að hún ætl­aði að hætta sem for­sæt­is­ráð­herra og fara í for­seta­fram­boð. Katrín hafði þá leitt rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks frá því síðla árs 2017. Eftir nokk­urra daga stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður var ákveðið að halda sam­starf­inu áfram eftir brott­hvarf Katrínar og að Bjarni myndi taka við sem leið­togi rík­is­stjórn­ar­innar. 

Það var rök­stutt með því að hann væri for­maður þess flokks sem er stærstur í sam­starf­inu og fékk flest atkvæði í kosn­ing­unum 2021.

Gagn­rýnendur hafa hins vegar bent á að Bjarni sé, sam­kvæmt mæl­ingum Maskínu, langóvin­sæl­asti stjórn­mála­maður þjóð­ar­innar. Í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem Heim­ildin greindi frá i des­em­ber í fyrra kom fram að 75 pró­sent lands­manna van­treystu honum. 

Sú staða hefur lítið breyst eftir að hann varð for­sæt­is­ráð­herra. Í könn­unum sem Maskína lét gera fyrir Heim­ild­ina eftir breyt­ing­arnar á rík­is­stjórn­inni kom fram að 73 pró­sent van­treysta Bjarna sem for­sæt­is­ráð­herra og að sjö af hverjum tíu sögð­ust nei­kvæðir gagn­vart breyt­ing­unum sem gerðar voru á stjórn­inni. Einungis níu pró­sent sögð­ust treysta rík­is­stjórn­inni betur eftir að Bjarni Bene­dikts­son sett­ist í stól for­sæt­is­ráð­herra og 84 pró­sent töldu að hún myndi gera minna gagn en sú sem sat áður eða engu breyta.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LEK
    Logi Elfar Kristjánsson skrifaði
    Ég nota lykilorðið logi@ugla.is og kannast ekki "logi27"
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár