Án endurgreiðslunnar hefði útgáfa íslenskra bóka sennilega hrunið

Salan á nýjum bókum í prent­uðu formi hefur dreg­ist mjög mikið saman og hratt. Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir, fram­kæmda­stjóri For­lags­ins, telur að án end­ur­greiðsl­unnar núna væri staðan skelfi­leg. Nýlega var tekin saman skýrsla á vegum Menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins um áhrif þess­ara laga sem sýni ótví­rætt: „að án end­ur­greiðsl­unnar hefði útgáfa íslenskra bóka senni­lega hrunið.“

Án endurgreiðslunnar hefði útgáfa íslenskra bóka sennilega hrunið
Hefði orðið skelf­ing Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins, segir að sala prent­aðra bóka hafi dreg­ist mikið saman og telur að án end­ur­greiðsl­unnar núna væri staðan skelfi­leg. Mynd: Golli

Það er mikil áskorun að gefa út bækur núna. Salan á nýjum bókum í prent­uðu formi hefur dreg­ist mjög mikið saman og hratt,“ segir Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins í við­tali við Heim­ild­ina.  „Þessi þróun hefur gerst hratt.“

Þá berst talið að áhrifum þess að lög um end­ur­greiðslu vegna útgáfu bóka á íslensku tóku gildi – til þess ætluð að efla bóka­út­gáfu með því að styðja við bóka­út­gef­endur með end­ur­greiðslu á hluta útgáfu­kostn­aðar. Sig­þrúður segir end­ur­greiðsl­una hafa skipt sköpum á und­an­förnum árum eftir að sala á prent­uðum bókum fór að drag­ast saman. Þá vó hún upp á móti og gerði að verkum að áfram var hægt að gefa út metn­að­ar­fullar bækur.

„Annað tekjumódel fyrir útgefendur og höfunda“

 Af til­viljun opn­aði hún nýlega á að giska tíu ára gamlan sölu­lista og segir að slá­andi munur hafi verið á sölu­hæstu bók­unum þá og nú. Þáttur í dvín­andi sölu er hljóð­bóka­væð­ingin. „Lest­ur­inn hefur auð­vitað að ein­hverju leyti flust yfir í hljóð­bækur, mest á ýmiss konar léttum bók­menntum og afþr­ey­ingu en líka öðru efni. Þetta þýðir allt annað tekju­módel fyrir útgef­endur og höf­unda. Þetta er breyt­ing sem er að ger­ast alls staðar í kringum okkur og útgef­endur eiga mjög erfitt með að stýra. En við reynum auð­vitað að láta þró­un­ina ganga upp, bæði fyrir okkur og aðra sem að verk­unum koma. Við erum að læra á þetta.“

Sig­þrúður segir söl­una á skáld­sögum fyrir jólin til dæmis hafa minnkað mjög mikið: „ ... frá því að ég hóf störf í bóka­út­gáfu, sem þýðir að það er erf­ið­ara að taka áhættu. Færri bækur draga vagn­inn.“ Hún tekur fram að salan hafi verið farin að dala mikið áður en hljóð­bæk­urnar tóku flugið hér á landi svo það sé ekki eina skýr­ingin. „ Og tals­vert af hlust­un­inni hefði lík­lega aldrei skilað sér í lestri. Að sumu leyti er tvennt ólíkt að lesa á pappír og hlusta, og margir telja að hóp­ur­inn sem hlustar hafi ekki endi­lega lesið mikið áður en hljóð­bækur urðu svona aðgengi­legar, en það er erfitt að vita fyrir víst.“

„Það er mikil áskorun að gefa út bækur núna. Salan á nýjum bókum í prent­uðu formi hefur dreg­ist mjög mikið saman og hratt,“
Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir

„Staðan væri skelfileg“

Sig­þrúður telur að án end­ur­greiðsl­unnar núna væri staðan skelfi­leg. Nýlega hafi verið tekin saman skýrsla á vegum Menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins um áhrif þess­ara laga sem sýni ótví­rætt:  „að án end­ur­greiðsl­unnar hefði útgáfa íslenskra bóka senni­lega hrunið.“

Þess í stað kom í ljós að útgáfan hafði eflst á sumum sviðum þau þrjú ár sem fyr­ir­komu­lagið hafði verið við lýði. „Einkum útgáfa á íslenskum skáld­verkum og barna­bókum. Sama sam­an­tekt leiddi hins vegar í ljós að þýð­ingum fækkar og sala á þeim stendur alls ekki undir kostn­aði. Og það er auð­vitað ekki gott fyrir örmarkað eins og okkar. Við þurfum að fá þýð­ingar, helst frá sem fjöl­breyttustum svæðum.“

 Grunnurinn að tungumálinu og viðfangi þess

Sig­þrúður áréttar að end­ur­greiðslan sé ekki kostn­að­ar­söm í sam­an­burði við sam­bæri­legan stuðn­ing við aðrar list­greinar, ekki síst kvik­mynda­iðn­að­inn.

„Miðað við hvað bók­menntir eru mikil und­ir­staða undir annað og um leið rótin að sjálfs­mynd okkar. Og auð­vitað grunn­ur­inn að tungu­mál­inu og við­fangi þess, segir hún og bendir auk þess á afleidd störf, þar sem margir komi að gerð hverrar bókar: „ ... hönn­uðir, sölu­fólk, þeir sem sjá um fram­leiðslu fram­leiðslu, bók­salar og svo fram­vegis.“

Hún segir Forlagið ekki vaxa í þeim skiln­ingi að útgáfu­bókum fjölgi. Markaður sé að drag­ast saman og þá sé ekki hægt að gefa út enda­laust af bókum. Forlagið standi samt styrkum fótum og ráði við flókin verk­efni.

„Við þurfum samt alltaf að vera á tánum til að staðna ekki, rétt eins og allir útgef­endur alls staðar í heim­inum. Það er dýrt að gefa út bók sem eng­inn vill kaupa.“

 Forlagið er langstærsta bóka­út­gáfa lands­ins en það er ekki sjálf­gefið að slíkur rekstur gangi vel. „Bóka­út­gáfa hér á landi hefur í gegnum tíð­ina notið sér­kenni­lega lít­illa styrkja miðað við hvað umhverfið er krefj­andi. Hvað við erum að gefa út fyrir ofboðs­lega lítið mál­sam­fé­lag. Þegar salan fór að drag­ast saman var mjög erfitt að láta útgáf­una bera sig. Það er eng­inn sem grípur okkur ef við eyðum um efni fram.“

„Bæði höf­undar og útgef­endur þurfa opin­beran stuðn­ing, við þurfum að fjár­festa í menn­ing­unni og tungu­mál­inu.”
Margrét Tryggva­dóttir

 

Margrét Tryggva­dóttirFormaður Rit­höf­unda­sam­bands Íslands.

„Íslenskan er örtungumál í útrýmingarhættu”

Í svip­aðan streng tekur for­maður Rit­höf­unda­sam­bands Íslands, Margrét Tryggva­dóttir, aðspurð um vægi end­ur­greiðslna­kerf­is­ins: „End­ur­greiðsl­urnar eru mik­il­vægur stuðn­ingur til bók­mennta og bóka­út­gáfu á Íslandi eins og annar opin­ber stuðn­ingur. Íslenskan er örtungu­mál í útrým­ing­ar­hættu og við getum ekki látið mark­aðslög­mál­unum það eftir að ráða örlögum hennar. Við þurfum að geta notað tungu­málið á öllum sviðum mann­lífs­ins og öflug bók­menn­ing skiptir þar höf­uð­máli. Bæði höf­undar og útgef­endur þurfa opin­beran stuðn­ing, við þurfum að fjár­festa í menn­ing­unni og tungu­mál­inu.”

 Sig­þrúður leggur jafn­framt áherslu á mik­il­vægi bóka­út­gáfu fyrir tungu­málið. „Þetta er okkar tungu­mál. Ef við ætlum að tjá okkur um alla mögu­lega hluti verðum við að gera það á því tungu­máli sem við kunnum best. Og ef við ætlum að halda tungu­mál­inu lif­andi verðum við að skrifa á því.”

 Viðtalið við Sigþrúði má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár