Þessi grein birtist fyrir meira en mánuði.

Nýtingin er stærsta áhættan við fleiri virkjanir

Á með­an Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ir að virkja þurfi meira til þess að nýta sjálf­bæra orku bet­ur seg­ir Halla Hrund Loga­dótt­ir, orku­mála­stjóri og for­setafram­bjóð­andi, að stærsta áhætt­an við fleiri virkj­an­ir sé að ork­an nýt­ist ekki inn í þau verk­efni sem stjórn­völd hafa sett á odd­inn.

Nýtingin er stærsta áhættan við fleiri virkjanir
Orkan og náttúran Tilvist náttúrunnar og orkunnar er samofin að mati Hölly Hrundar Logadóttur, orkumálastjóra og forsetaframbjóðanda. „Stundum erum við að búa til orku úr náttúrunni. Báðar þessar auðlindir þurfa að eiga sitt einstaka virði einar og sér en við verðum að hugsa að tilvist þeirra er samofin.“ Mynd: Golli

Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri og forsetaframbjóðandi, segir að markmið orkuskipta muni nást í gegnum betri nýtingu. „Stærsta áhættan við nýja framleiðslu, fleiri virkjanir, í samhengi við orkuskiptin, er að orkan sé ekki að nýtast inn í þau verkefni sem stjórnvöld hafa sett á oddinn. Huga þarf að hvötum þannig að orkan rati í þessa málaflokka ásamt því að styðja við atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni,“ segir Halla Hrund í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Heimildarinnar. 

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það ólíðandi að talað sé um orkuskort og sagði í fyrstu viðtölum sem hann veitti eftir að hann tók við sem forsætisráðherra í síðustu viku að virkja þurfi meira til að nýta sjálfbæra orku betur. 

En er það svo?  

Halla Hrund hugsar sig vel um áður en hún tekur til máls. „Ef það á að ná markmiðum orkuskipta gerist það í gegnum betri nýtingu, mögulega í gegnum breytingar á samningum fyrirtækja við sína viðskiptavini, það er að orkuframleiðendur ákveði að selja til orkuskiptaverkefna í staðinn fyrir að selja til einhverra aðila, eða með nýrri framleiðslu.“

Stjórnvöld hafa sett markmið um að Ísland verði laust við olíu árið 2040. Halla Hrund segir að orkuskiptin verði að gerast í ólíkum skrefum. „Fyrsta skrefið, þar sem tæknin er komin lengst, eru orkuskipti á landi. Það er tiltölulega auðvelt í sjálfu sér, það er lítið af orku sem þarf og tæknin er til staðar. Næsta skref er orkuskipti á hafi, þar er tæknin minna þróuð en margt að gerast. En það eru alls konar breytingar sem þarf að hafa í huga, það þarf að hugsa um aðgengi að eldsneyti í höfnum, endurhönnun skipa og margt sem þarf að huga að í þeirri umbreytingu. Skref þrjú er síðan orkuskipti í flugi. Þar fylgjum við alþjóðlegum stöðlum. Þetta eru þessi skref. Ég held að stærsta tækifærið okkar núna, við erum fremst í orkumálum að mörgu leyti, við eigum að klára orkuskiptin á landi því það er líka áframhaldandi saga að miðla og þessi saga skiptir okkur máli í alþjóðlegu samhengi. Þetta er eitt af þeim sviðum sem við höfum verið að leiða á og við eigum að halda áfram að byggja á þeirri sögu með áþreifanlegum árangri. En við þurfum að halda áfram til að vera áfram leiðandi á þessu sviði.“

Tilvist náttúrunnar og orkunnar er samofin 

Halla Hrund er með stórt náttúruhjarta, eins og hún kemst sjálf að orði. En hvar endar náttúran og orkan byrjar? „Í okkar samhengi erum við að nýta náttúruna í orkumálum á Íslandi. Alveg eins og í allri auðlindanýtingu, í landbúnaði erum við að nýta náttúruna, í orkumálum erum við að nýta náttúruna. Sem fiskveiðiþjóð erum við að nýta náttúruna. Það sem ég lærði fyrir austan er að við erum alltaf að hugsa hvernig við getum verið að nýta auðlindirnar okkar en samt verið að skila landinu af okkur í betra horfi eða með fleiri tækifærum fyrir komandi kynslóðir. Það þýðir að það er alltaf eitthvert jafnvægi. Í samhengi við orkumál og náttúru á Íslandi er stundum mikilvægt að hafa svæði þar sem auðlindin sjálf er náttúran sjálf. Stundum erum við að búa til orku úr náttúrunni. Báðar þessar auðlindir þurfa að eiga sitt einstaka virði einar og sér en við verðum að hugsa að tilvist þeirra er samofin.“    

Viðtalið við Höllu Hrund í heild sinni má nálgast hér

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Viktor Traustason tekur lítið mark á skoðanakönnunum
Fréttir

Vikt­or Trausta­son tek­ur lít­ið mark á skoð­ana­könn­un­um

Vikt­or Trausta­son for­setafram­bjóð­andi seg­ist taka lít­ið mark skoð­ana­könn­un­um enn sem kom­ið er. Í síð­asta þætti Pressu mætti Vikt­or ásamt öðr­um fram­bjóð­end­um til þess að ræða fram­boð sitt og helstu stefnu­mál sín. Vikt­or tel­ur sig geta náð kjöri og benti á að flest­ar kann­an­ir hafi ver­ið fram­kvæmd­ar áð­ur en hon­um gafst tæki­færi á að kynna sig fyr­ir kjós­end­um.

Mest lesið

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
1
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Domino's-þjóðin Íslendingar
5
Skýring

Dom­ino's-þjóð­in Ís­lend­ing­ar

Guð­fað­ir og stofn­andi Dom­ino´s á Ís­landi, Birg­ir Bielt­vedt, hef­ur enn og aft­ur selt hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu og er út­gerð­ar­kon­an Guð­björg Matth­ías­dótt­ir nú orð­inn stærsti hlut­haf­inn. Birg­ir er rauði þráð­ur­inn í æv­in­týra­legri sögu pitsu­fyr­ir­tæk­is­ins á Ís­landi sem hef­ur kom­ið sér í ein­staka mark­aðs­stöðu á skyndi­bita­mark­að­in­um á Ís­landi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
4
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
8
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
5
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár