„Þetta er móðgun við okkur“

Heimildin ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrifað undir undir­skrifta­listann: Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætis­ráðherra til þess einfald­lega að spyrja: hvers vegna? Svörin voru marg­vísleg en þau átta sem svöruðu símanum höfðu marg­víslegar ástæður fyrir því en áttu það öll sameiginlegt að treysta ekki Bjarna sökum ferils hans sem stjórn­málamanns og sér í lagi síðustu mánuði þar sem hann hefur farið frá því að vera fjármála­ráðherra yfir í það að vera utan­ríkis­ráðherra og loks forsætis­ráðherra.

Styðja Bjarna ekki sem forsætisráðherra
Styðja Bjarna ekki sem for­sæt­is­ráð­herra Rétt tæp­lega 40 þús­und manns hafa skrifað undir það að styðja Bjarna Bene­dikts­son ekki sem for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Golli

Þegar þetta er skrifað, nákvæmlega þessi setning, hafa 38.074 manns skrifað undir undir­skrifta­listann Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætis­ráðherra. Svona til að setja þá tölu í eitthvað samhengi þá búa rétt tæplega 38 þúsund manns í Kópavogi. Heimildin hafði samband við fólk sem hafði skrifað undir, með nafni, en töluverður fjöldi þeirra sem hafa skrifað undir gerðu það nafnlaust, einfald­lega til að spyrja hvers vegna viðkomandi gerði það. 

„Sko. Bjarni Benediktsson er gjör­spilltur stjórn­málamaður og á ekki að stjórna þessu landi. Þetta er móðgun við okkur,“ sagði Guðrún Theodórs­dóttir dósent í Háskóla Íslands en hún var sú fyrsta sem svaraði af þeim átta sem Heimildin náði tali af. Hún segist ekki hafa verið lengi að hugsa sig um að skrifa undir en þegar hún svaraði símanum voru 33.538 undir­skriftir komnar á listann.

„Hann er glæpa­maður,“ nefndi Hálfdán Árnason, sem er 37 ára gamall, þegar hann var …

Kjósa
86
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Olof Sverrisdottir skrifaði
    Ánægð með þessa grein... Gott að heyrist í fólkinu sem vill ekki Bjarna og hvers vegna..
    1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Enginn stjórnarþingmaður lætur illa yfir þessu, það sýnir siðspillinguna á Alþingi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár