Forseti Alþingis fundar aftur með þingflokksformönnum rétt fyrir þingfund

Þing­flokks­for­menn munu funda með for­seta Alþingis rétt fyrir þing­fund – í annað skiptið í dag. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir þetta óvenju­legt. Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt að dag­skrá þings­ins hald­ist með hefð­bundnum hætti eftir að for­sæt­is­ráð­herra baðst lausnar.

Forseti Alþingis fundar aftur með þingflokksformönnum rétt fyrir þingfund
Fyrsti þing­fundur eftir páska­frí verður í dag klukkan 15. Mynd: Golli

Forseti Alþingis fund­aði með for­mönnum þing­flokk­anna stuttu fyrir hádegi í dag. Mun annar slíkur fundur eiga sér stað klukkan hálf þrjú til að fara yfir stöð­una – hálf­tíma áður en fyrsti þing­fundur að loknu páska­fríi á að hefj­ast. 

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að það sé óvenju­legt að þing­flokks­for­menn séu kall­aðir á fund for­seta þings­ins rétt fyrir þing­fund, á meðan þing­flokks­fundum stendur.

Segir hún að Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, virð­ist ætla að halda sig við hefð­bundna dag­skrá þings­ins. En sam­kvæmt þeirri dag­skrá mun rík­is­stjórnin flytja þó nokkur mál síðar í dag. Þetta hefur verið gagn­rýnt harð­lega af stjórn­ar­and­stöð­unni í fjöl­miðlum vegna þess að stjórnin flokk­ast í raun til starfs­stjórnar, ekki eig­in­legrar rík­is­stjórnar.

Sigmar Guð­munds­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að Birgir hafi ekki slegið neitt út af borð­inu á fund­inum með þing­flokks­for­mönn­unum í morgun. Forseta þings­ins þætti ekk­ert athuga­vert við …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár