Enn inni í myndinni að kaupa einingahús fyrir Grindvíkinga

Nokkur fjöldi íbúða er enn í boði fyrir Grind­vík­inga hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og tölu­verður fjöldi til við­bótar í boði fyrir þá á Leigu­torgi. Ágætt fram­boð er auk þess á til­búnum bygg­ing­ar­lóðum. Inn­við­a­ráðu­neytið segir að m.a. í ljósi þessa þurfi að meta sér­stak­lega hvort þörf sé á frek­ari kaupum á hús­næði fyrir Grind­vík­inga.

Enn inni í myndinni að kaupa einingahús fyrir Grindvíkinga
Logar Orkuver og vin­sæl­asti ferða­manna­staður lands­ins eru í skjóli nýbyggðra varn­ar­garða frá eld­gos­inu sem staðið hefur yfir í Sund­hnúka­gíga­röð­inni í 20 daga. Þar eru þó fáir og engir ferða­menn í augna­blik­inu. Nokkru sunnar er heilt bæj­ar­fé­lag, mann­laust að mestu. Mynd: Golli

Rúmlega 30 íbúðir eru enn í boði hjá hinum óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lögum Bríeti og Bjargi og dreifast þær um suð­vest­ur­horn lands­ins. Jafn­framt eru að jafn­aði um 200 íbúðir í boði fyrir Grind­vík­inga á Leigu­torgi. „Þá er búist við því að stór hópur Grind­vík­inga kjósi að selja íbúð­ar­hús sín Þórkötlu, nýju fast­eigna­fé­lagi á vegum rík­is­ins, og nýta eigið fé og hús­næð­is­lán til að kaupa eða byggja annað heim­ili. Við það losnar frekar um hús­næði hjá Bríeti og Bjargi. Það þarf því að meta það sér­stak­lega hvort þörf er á frek­ari kaupum á hús­næði að svo komnu máli.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um hús­næð­is­mál Grind­vík­inga. Heim­ildin spurði sér­stak­lega út í það hvort ríkið væri að skoða kaup á ein­inga­húsum fyrir Grind­vík­inga, líkt og gert var fyrir Eyjamenn í kjöl­far eld­goss­ins í Heimaey fyrir hálfri …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raunir Grindvíkinga

Erum eiginlega að byrja upp á nýtt
FréttirRaunir Grindvíkinga

Erum eig­in­lega að byrja upp á nýtt

Enda­lausar áhyggjur af fötl­uðum syni og aldr­aðri móður hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðnir eru síðan hár­greiðslu­meist­ar­inn Guðrún Krist­jana Jóns­dóttir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyldan ætlar ekki að flytja þangað aftur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þegar mað­ur­inn féll ofan í sprung­una,“ segir hún. Sprungan sem klauf svo íþrótta­húsið, annað heim­ili sona hennar, gerði að end­ingu úts­lagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár