Segir að inngrip í kaup Landbankans á TM hefðu verið fordæmalaus

Tekist var á um ábyrgð og viðbrögð ráðherra við fyrir­huguðum kaupum Lands­bankans á TM í Alþingi í dag. Þingmenn stjórnar­andstöðunnar gagnrýndu ráðherra fyrir að hafa ekki gripið til aðgerða áður en tilkynnt var bindandi kaup­tilboð Lands­bankans síðastliðinn sunnudag.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að allar vanga­veltur um það hvort hún hafi sofið á verðinum um fyrir­huguðum kaupum Landsbankanns á TM vera til þess fallna að afvega­leiða umræðuna.  Taldi Þórdís Kolbrún kjarna málsins vera að banki í eigu ríkisins hafi tekið ákvörðun sem gangi þvert gegn vilja stjórn­valda. Eigenda­stefna ríkisins sé að ríkið dragi úr eignar­haldi sínu á fjármála­markaði.  

Þetta kom fram í munnlegri skýrslu um málið sem Þórdís Kolbrún flutti fyrir þingið fyrr í dag. Þar staðfesti hún einnig að bankaráð Lands­bankans hafi samþykkt kröfu Banka­sýslu ríkisins að fresta aðalfundi, fram átti að fara í dag, um fjórar vikur.

Þá sagði ráðherra að bankaráð Lands­bankans hefði átt að tilkynna Banka­sýslu ríkisins um viðskiptin áður en bindandi kaup­tilboð var gert. Sömuleiðis nefndi ráðherra að almennt sé gert ráð fyir því að þýðingar­miklar ákvarðanir á borð við fyrrnefnd viðskipti séu lögð fyrir á hluta­hafafundi.

Ef upplýsingar hefðu farið eftir réttum boðleiðum og ratað fyrir hluthafa, þar sem ríkið er stærsti hlut­hafinn, taldi ráðherra að málið hefði endað með öðrum hætti. Hins vegar hafi engin formleg samtöl né upplýsinga­gjöf, milli Banka­sýslunar og bankráðsins, átt sér frá því 20. júlí fyrra.  

Hvers vegna beitti ráðherra sér ekki fyrr í málinu?

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni fyrir­spurnir um fyrri ummæli ráðherra um fyrir­huguð kaup Lands­bankans á TM væru ekki tilraun til þess að draga athyglina frá kjarna máls.

Taldi Jóhann Páll mikilvægt að fá upplýst hvað hafi gerst á vikum sem liðu milli þess þegar ráðherra kom fram í hlaðvarps­þættinum Þjóðmál, 2. febrúar síðastliðinn og lýsti sig andsnúin kaupunum, og þegar tilkynnt var um kaupin síðastliðinn sunnudag. 

Þá nefndi Jóhann Páll að ráðherra hafi sérstaka heimild til þess að beina tilmælum til Banka­sýslu ríkisins vegna einstakra mála. Í ljósi afstöðu ráðherra, sem hún tjáði sig um mörgum vikum fyrir kaupum, spurði Jóhann Páll ráðherra hvers vegna ráðherra hafi ekki gripið fyrr inn í og reynt að koma í veg fyrir kaupin. „Hvers vegna beitti ráðherra þá ekki þeim laga­heimildum sem hún sannarlega hefur til þess að reyna að hindra að kaupin næðu fram að ganga?“ 

Í svari sínu sagði Þórdís ekki vita til þess að umrædd laga­heimild hafi nokkurn sinni verið beitt áður. „Í mínum huga er hér verið að snúa hlutum á hvorf. Það er bankaráð sem hefur skýra skyldu til þess að upplýsa Banka­sýsluna, bæði með vísan í reglur, almenna eigenda­stefnu og sérstakan samning þar á milli og þar að leiðandi er ljóst að bankaráð átti að upplýsa Banka­sýslu um það sem þarna var á ferðinni.“

Ber traust til bankastjóra þrátt fyrir nýlegar vendingar

Í ræðu sem Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hélt spurði þingmaður ráðherra hvað hann hyggist gera til þess að byggja upp traust til fjármála­kerfisins. 

„Því miður þá hafa stjórnar­athafnir Sjálfstæðis­flokksins miklu frekar rýrt traustið og við getum hér rifjað upp ýmis mál,“ sagði Sigurjón og nefndi í því samhengi sölu ríkisins á Borgun og Lindar­hvolsmálið. Þau mál hafi ekki verið til þess fallin að byggja upp traust almennings. 

Því næst spurði hann hvernig ráðherra myndi bregðast við umræðunni sem hafi rýrt traust til Lands­bankans og nefndi þar aðgerðir sem var beitt í kjölfar sölu eignar­hlutum í Íslands­banka. „Þar var gerð krafa um það að banka­stjóri viki úr starfi og farið í alsherjar hrein­gerningu.“

Í svari sínu sagði Þórdís Kolbrún að þó svo upplýsinga­gjöf í kringum kaup Lands­bankans á TM hafi mátt vera betri, taldi hún heilt yfir hafi stjórn­endur Lands­bankans hafa staðið sig vel í sínum störfum. „Þannig það ríkir þokkalegt traust, og reyndar ágætt traust um þá starfsemi og ég geri ráð fyrir því að svo verði áfram.“

Í andsvari sínu lýsti Sigurjón furðu yfir svörum ráðherra um að það ríki traust þó svo verið væri að ræða að bankinn hafi gengið gegn eigenda­stefnu ríkisins í algjöru samráðs­leysi. „Þetta fer ekki saman hæstvirtur ráðherra,“ sagði Sigurjón sem taldi ráðherra þurfa ígrunda svör sín betur. 

Innihaldslausar hótanir

Í fyrir­spurn sinni til ráðherra velti Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingmaður Pírata, vöngum yfir ummælum ráðherra í fyrr­nefndri Facebook-færslu þar sem ráðherra sagði að kaupin myndu ekki ganga eftir á sinni vakt nema ríkið myndi leggjast í einka­væðingu á Lands­bankanum. 

„Hvers vegna talaði ráðherra eins og hún hefði það einhvern veginn í hendi sér að fara einkavæða Lands­bankann þegar fyrir liggur að ríkis­stjórnin hefur sammælst um að gera það ekki?“

Taldi Þórhildur Sunna ummæli ráðherra vera innan­tómar hótanir, og spurði ráðherra hvað henni gekk til með ummælum sínum. 

Í svari sínu sagði Þórdís Kolbrún að engar hótanir fælust í ummælum sínum í téðri Facebook-færslu. Í færslunni hafi ráðherra einungis verið að tjá skoðun sína á sölunni, hún væri ekki samþykk henni. Ef málið hefði ratað fyrir hluthafa­fund, samkvæmt venju, hefði ráðherra komið skoðun sinni til skila. „Eða telur hátt­virtur þingmaður að eigandinn eigi yfir höfuð ekki að hafa neina skoðun á því hvort þessi viðskipti fari í gegn eða ekki?“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Afskiptaleysi ráðherra og bankasýslunnar er eðlilegt að túlka þannig að ríkið virði sjálfsákvörðunarrétt bankans þó að ráðherra sé persónulega á móti kaupum bankans á TM.

    Það er vanræksla af hálfu ráðherra og bankasýslunnar að beita sér ekki fyrir því að þessi kaup eigi sér ekki stað eftir að þeim varð ljós áhugi bankans á þessum viðskiptum.

    Ég sé ekki að bankaráð hafi brotið lög. Ráðið upplýsti um áform sín löngu áður en af þeim varð og lét svo vita þegar viðskiptin höfðu átt sér stað. Engar athugasemdir höfðu komið frá bankasýslunni sem hafði ekki heldur fengið nein tilmæli frá ráðherra.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það vantar í þessa umræðu að upplýsa okkur eigendurna hvaða áhrif þessi kaup hafa á verðmæti bankans.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    „Í svari sínu sagði Þórdís ekki vita til þess að umrædd lagaheimild hafi nokkurn sinni verið beitt áður. Í mínum huga er hér verið að snúa hlutum á hvorf.“

    Og hvaða andskotans máli skiptir það hvort þessari lagaheimild hafi verið beitt eður ei ?
    Fyrst lagaheimildin er til staðar og ráðherfan var áður búin að segja sig andsnúna kaupunum, þá hefði hæfur ráðherra ekki hugsað sig tvisvar um og BEITT heimildinni.
    Þetta svar ráðherfunar er bara skítlélegt yfirklór á fordæmalausri vanhæfni þórdísar.
    Og það er hún sjálf sem er að snúa hlutunum á hvolf!
    1
  • JDK
    Jóna Dóra Karlsdóttir skrifaði
    Maður er verulega hugsi. Eru hugsanleg ættar- eða vinatengsl eitthvað að spila inní hjá einhverjum? Það er oft það fyrsta sem kemur upp í hugann. En hvað veit maður? Erfitt að botna í samskiptaleysi stofnana. Eiginlega bara orðlaus yfir vinnubrögðunum. Eru einhverjir á fullum launum við að gera alls ekki neitt, hlusta ekki neitt og sjá ekki neitt? Mér dettur í hug starfsmenn, ef þeir eru þá fleiri en einn, Bankasýslunnar. Já maður spyr sig.
    4
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Er það regla hjá Sjálfstæðisflokknum að segjast ekkert vita um það sem hefur verið fréttaefni í marga mánuði, til þess að góður möguleiki sé að lögsækja samfélagið fyrir rangar eða engar upplýsingar?
    Þessi farsi er ekki sá eini! Skulum við nefna …….??
    Getur verið að Sjálfstæðisflokkurinn sé að undirbúa jarðveginn fyrir núverandi eigendur TM??
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár