Segist ekki samþykkja kaup Landsbankans á TM nema bankinn verði einkavæddur
Í yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna, sem birt var í apríl 2022, kemur fram að eign­ar­hald á Lands­bank­anum verði óbreytt. Enginn vilji er hjá ráð­herrum Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks til að selja hluti í Lands­bank­anum á þessu kjör­tíma­bili. Mynd: Golli

Segist ekki samþykkja kaup Landsbankans á TM nema bankinn verði einkavæddur

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að rík­is­fyr­ir­tæki eigi ekki að kaupa trygg­inga­fé­lag. Hún ætlar að óska skýr­inga frá Banka­sýslu rík­is­ins, stofnun sem var sett á fót til að koma í veg fyrir að stjórn­mála­menn skiptu sér af rekstri rík­is­banka, á kaupum Lands­bank­ans á TM. Samkvæmt eig­enda­stefnu má ekki selja hluti í Lands­bank­anum fyrr en allt hlutafé í Íslands­banka hefur verið selt.

„Þessi við­skipti verða ekki að veru­leika með mínu sam­þykki, nema sölu­ferli Lands­bank­ans hefj­ist sam­hliða. Ég hef óskað skýr­inga á mál­inu frá Banka­sýslu rík­is­ins sem heldur um eign­ar­hluti rík­is­ins í bank­anum og setur almenn við­mið um áherslur í rekstri auk þess að fylgja eftir eig­enda­stefnu rík­is­ins.“ Þetta segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í færslu á Facebook í kvöld. 

Tilefnið er til­kynn­ing sem birt var fyrr í kvöld um að Kvika banki hefði tekið til­boði Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, í allt hlutafé TM trygg­inga hf., eins af fjórum stórum trygg­inga­fé­lögum lands­ins. Lands­bank­inn greiðir 28,6 millj­arða króna sam­kvæmt til­boð­inu fyrir og fer greiðslan fram með reiðufé. Það 1,8 millj­arði króna yfir bók­færðu virði TM í bókum Kviku í lok síð­asta árs. 

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir Helgu Björk Eiríks­dóttur, sem er að fara að hætta sem for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, að bank­inn starfi á sam­keppn­is­mark­aði …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Ríkistjórnarflokkarnir setja þessa dagana á svið hvern skrípaleikinn á fætur öðrum. Hlýtur að styttast í kosningar.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Ætlar þessi fíflagangur engann endi að taka?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár