Lóð keypt af hjúkrunarheimilinu fyrir fimmtung af því sem hún seldist á

Hjúkrunar­heimilið Sóltún var notað til að veita dóttur­félagi þess seljendalán árið 2014 til að kaupa lóð af því. Verðið sem hjúkrunar­heimilið seldi lóðina á nam einungis tæplega 1/5 hluta af því sem lóðin var á endanum seld á árið 2022. Með þessu móti myndaðist hagnaðurinn af sölu lóðarinnar í öðru félagi en hjúkrunar­heimilinu.

Seljendalán frá hjúkrunarheimilinu
Selj­enda­lán frá hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún veitti öðru félagi innan sam­stæðu þess selj­anda­lán til að kaupa lóð sem heim­ilið áttii. Svo var lóðin seld á 1300 millj­ónir, rúm­lega fimm­falt hærri upp­hæð en verðið sem Sóltún fékk fyrir hana. Þórir Kjart­ans­son og Arnar Þórisson eru stærstu eig­endur Sóltún en Halla Thorodd­sen er fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Eigendur Sóltúns seldu lóð við hlið þess út úr hjúkrunar­heimilinu fyrir 1/5 af þeim 1.300 milljónum sem þeir fengu svo fyrir jörðina þegar þeir seldu hana til Mata-systkinanna svokölluðu árið 2022. Jörðin var seld inn í dóttur­félag rekstrar­félags hjúkrunar­heimilisins, Öldungs ehf. Dóttur­félagið heitir Sóltún 4. ehf. Eigendur Sóltúns eru félög í eigu Þóris Kjartans­sonar, Arnars Þóris­sonar og Önnu Birnu Jens­dóttur. 

Þá létu þeir hjúkrunar­heimilið lána dóttur­félagi þess fyrir kaup­verðinu, 178 milljónir króna með víkjandi láni. Slík lán eru stundum veitt á milli tengdra aðila og víkja þau fyrir kröfum annarra lánardrottna ef svo ber undir. 

„Til­gangur með lán­veit­ing­unum að styðja við frek­ari upp­bygg­ingu á starf­semi félags­ins til fram­tíðar.“
Lánið útskýrt í árs­reikn­ingi Sóltúns

Forstjóri segir viðskiptin eðlileg

Þessi viðskipti áttu sér stað árið 2014 og átti hjúkrunar­heimilið að fá lánið endur­greitt með vöxtum um haustið 2016. …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Þú vísar í grein í Morgunblaðinu sem aðeins er opin áskrifendum. Og síðan er þessi grein birt hér í Heimildinni sem líka er aðeins opin áskrifendum. Hvernig samræmist þetta opinni og heiðarlegri blaðamennsku og hvernig standa lesendur gagnvart svona mismunun?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár