Umferðarhnúturinn á Sæbraut skynjurum að kenna

Gríð­ar­leg umferð hefur verið á Sæbraut­inni í Reykja­vík síð­ast­liðnar vikur. Sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borgar segir þetta vera vegna ótengdra skynjara á gatna­mótum við braut­ina. Tekið hafi tíma að ráða bót á því vegna fálið­unar og veik­inda. Fram­kvæmda­stjóri Strætó segir ferðir stræt­is­vagna sem leið áttu eftir Sæbraut­inni hafa verið allt að rúmum klukku­tíma á eftir áætlun.

Umferðarhnúturinn á Sæbraut skynjurum að kenna
Við­gerðir í gær var unnið hörðum höndum við að koma skynj­urum við umferð­ar­ljósin í lag. Mynd: Golli

Und­an­farnar vikur hefur síð­deg­is­um­ferðin á Sæbraut í Reykja­vík verið ein­stak­lega þung. Þegar öku­menn freist­uðu þess að keyra í austur eftir göt­unni lentu þeir í því að sitja þar löngum stundum fastir. Hafði þetta í för með sér að tals­verð umferð rataði inn í íbúða­hverfin í Laug­ar­dalnum, íbúum til lít­illar hrifn­ingar. 

Guðbjörg Lilja Erlends­dóttir, sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, segir að umferð­ar­teppu síð­ustu vikna megi rekja til þess að skynjarar á gatna­mótum við Sæbraut virki ekki sem skyldi. Vinnu lauk við teng­ingu þeirra um hádeg­is­bil á fimmtu­dag. Var von­ast eftir því að vanda­málið leyst­ist í kjöl­farið á því.

Sökudólgurinn ekki fjöldi bíla

Vega­gerðin er í sam­vinnu við Reykja­vík­ur­borg með umferð­ar­ljósa­kerfið. G. Pétur Matth­í­as­son, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar, segir að umferð hafi verið með sama móti upp á síðkastið og í fyrra. „Það bendir ekk­ert til þess að það sé eitt­hvað meiri umferð. Miðað við laus­legar tölur frá umferð­ar­telj­ur­unum í byrjun árs. Það er bara svipað og í fyrra.“ Skynjar­arnir eigi því sök á tepp­unum, ekki auk­inn fjöldi bíla.

„Það sem skynjar­arnir gera er að þeir lengja græna tím­ann á þá strauma sem er við­var­andi eft­ir­spurn eftir. Þegar skynjar­arnir eru óvirkir þá erum við ekki að fá þessa leng­ingu á tím­ann,“ segir Guðbjörg Lilja í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún segir vanda­málið hafa verið uppi síð­ustu þrjár til fjórar vik­urnar. Þetta megi rekja til þess að í upp­hafi árs var umferð­ar­ljósa­bún­aði skipt út á svæð­inu. Fram­kvæmdin var þó ekki full­kláruð sem hafði í för með sér miklar umferð­ar­tafir. 

„Það bendir ekk­ert til þess að það sé eitt­hvað meiri umferð. Miðað við laus­legar tölur frá umferð­ar­telj­ur­unum í byrjun árs. Það er bara svipað og í fyrra.“
Guðbjörg Lilja Erlends­dóttir,
sam­göngu­stjóri Reykja­víkur

Guðbjörg Lilja seg­ist ekki viss um það hve mikil áhrif bil­unin hefur á tíma­lengd ferða á háanna­tíma. „Það eru 40 þús­und bílar á Sæbraut­inni sam­tals í báðar áttir á sól­ar­hring á þessum slóðum. Þannig að það hefur klár­lega áhrif þegar prógram­mið er ekki að virka eins og það á að gera.“ Hún segir þó umferð­ina á Sæbraut­inni iðu­lega þunga á háanna­tíma – hvort sem skynjar­arnir virka eða ekki. 

Umferð í sama horf og áður – eða jafnvel betra

Guðbjörg Lilja gerir ráð fyrir því að sú gíf­ur­lega umferð sem verið hefur á Sæbraut­inni und­an­farið muni lag­ast þegar skynjar­arnir kom­ast í lag. Umferðin kom­ist í svipað, eða jafn­vel aðeins betra, horf en var áður en þeir bil­uðu. „Við vorum að end­ur­nýja umferð­ar­ljósa­bún­að­inn og fjölga skynj­ur­unum. Þannig að við höfum meiri stjórn á því hvernig bún­að­ur­inn hérna spilar saman með umferð­inni,“ segir hún. 

Er eitt­hvað fleira sem hefur verið reynt til að leysa úr þess­ari teppu annað en að koma ljós­unum í gagnið?

„Nei, ég get eig­in­lega ekki sagt það.“ Guðbjörg Lilja segir þó að borgin hafi reynt að skoða hvernig hægt sé að bregð­ast við því þegar mörg verk­efni koma upp í umferð­inni. „Hvernig við getum tek­ist á við þau hraðar og betur. Þannig að ef eitt­hvað við­líka kemur upp aftur að það þurfi ekki að líða svona langur tími.“ 

Hver er ástæðan fyrir því að það líður svona langur tími? Vissuð þið ekki af vanda­mál­inu eða skrif­ast þetta á for­gangs­röðun verk­efna? 

„Það eru mörg verk­efni sem eru í hæsta for­gangi eins og þetta verk­efni. Við höfum verið frekar fáliðuð og veik­indi bæst ofan á.“ Guðbjörg Lilja segir verk­efnin hafa verið óvenju­lega mörg upp á síðkastið. „Það ger­ist þegar snjóar svona mikið eins og núna.“ Nefnir hún sem dæmi þegar bílar aka á umferð­ar­ljós og verk­efni tengd snjó­ruðn­ingi. 

Vel yfir klukkutíma tafir hjá Strætó

Jóhannes Svavar Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó bs., segir fyr­ir­tækið hafa fundið mikið fyrir umferð­ar­tepp­unni síð­ustu vikur. Er það þrátt fyrir að aðeins ein leið Strætó keyri eftir göt­unni.

FastirFjórir vagnar sátu fastir á Sæbraut kl. 18.09 þann 5. febr­úar.

„Við sáum seink­anir vel yfir klukku­tíma – sér­stak­lega síð­degis – á Sæbraut­inni. Í ein­hverjum til­vikum voru bara nokkuð margir vagnar fastir þarna í röðum. Með nokk­urra tuga metra milli­bili. Þetta er búið að vera mjög erfitt ástand. Þetta var liggur við dag eftir dag.“

Jóhannes Svavar segir Sæbraut­ina yfir­leitt erf­iða en síð­ustu vikur hafi verið ein­stak­lega slæmar. Fullt af kvört­unum hafi borist Strætó vegna þessa. „Alveg fullt af þeim – og eðli­lega,“ segir hann. Vagn­arnir keyri þó í almennri umferð sem ekki sé hægt að ráða við. „Þetta hefur verið mjög erfitt [að keyra í austur].“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár