Hryðjuverkamálið: „Ég er búinn að missa allan áhuga á skotvopnum“

Sindri Snær Birg­is­son er ákærður fyrir að leggja á ráðin um hryðju­verk og Ísidór Nathans­son fyrir hluteild í mál­inu. Þeir mættu báðir fyrir dóm í dag, báru af sér allar sakir og lýstu gríð­ar­legri van­líðan: „Það er búið að eyði­leggja líf mitt.“

Hryðjuverkamálið: „Ég er búinn að missa allan áhuga á skotvopnum“

Aðal­með­ferð í hryðju­verka­mál­inu svo­kall­aða fór fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Í því eru Sindri Snær Birg­is­son og Ísidór Nathans­son ákærðir, sá fyrr­nefndi fyrir til­raun til fremja hryðju­verk og sá síð­ar­nefndi fyrir hlut­deild í þeirri til­raun. Þeir báru báðir vitni í dag.

Sindri hefur játað sök að hluta og við­ur­kennir að hafa fram­leitt 40 þrí­vídd­ar­prent­aða parta í byssur. Hann seg­ist hafa selt fimm byssur sem búnar voru til úr þeim pörtum en að þær hafi ekki virkað vel. „Ein sem var vel smíðuð, allar hinar voru drasl.“  Hann sagði byss­urnar hafa sprungið í hönd­unum á sér. Sjálfur telur Sindri byss­urnar ekki hafa verið hættu­legar og neitar að hafa fram­leitt skot­færi í þær eða afhent þau.

Byss­urnar sem Sindri hafði milli­göngu um að selja segir hann að hafi allar farið til manna út í bæ. ,,Ég fram­leiddi þetta þannig að þetta myndi vilj­andi klikka.“ Hann sagði verðið fyrir hverja byssu hafa verið um hálfa milljón króna og að hann hafi fengið greitt í fíkni­efnum.

„Ég er búinn að missa allan áhuga á skot­vopnum,“ sagði Sindri fyrir dómi í dag.

Honum er líka gert að hafa keypt hljóð­deyfi, sem Sindri sagði að hafi verið olíu­sía sem hann keypti á Ali­ex­press, eða sam­bæri­legri vef­verslun.  Alls hefði hann keypt fjóra eða fimm slíka en að þeir hafi alls ekki virkað sem hljóð­deyfir á skot­vopn. „Það hefði örugg­lega haft sama „effect“ að hafa kodda fyrir framan.“

Átti ekki sjálfur byssurnar

Byss­urnar sem lög­regla fann í fórum Sindra voru að hans sögn byssur föður hans. Sindri hafið sjálfur ekki skot­vopna­leyfi. Þeir feðgar deild, að sögn Sindra, áhuga á byssum og byssu­skápur í eigu föður hans, sem er með skot­vopna­leyfi, var inni í svefn­her­bergi Sindra. Hann sagð­ist þó ekki hafa haft lykla að skápnum. Ástæða þess að byssu­skáp­ur­inn hefði verið í her­bergi Sindra væri sú að þeir feðgar hefðu búið saman og að fata­skápur Sindra væri stærri. Þess vegna hefði þótt til­hlýði­legt að geyma vopna­hirsl­una inni í honum fremur en í her­bergi föð­ur­ins. 

„Það hefur á engum tíma­punkti hvarflað af mér að það yrðu ein­hver voða­verk framin“
Ísidór Nathans­son

Mála­rekstur ákæru­valds­ins byggir meðal ann­ars á sam­skiptum sem Sindri og Ísidór áttu á sam­skipta­for­rit­inu Signal þar sem rætt var um að drepa ýmist þekkt og hátt­sett fólk í íslensku sam­fé­lagi og ásetn­ing Sindra um að fremja ýmis konar hryðju­verk. 

Við aðal­með­ferð­ina í dag sögð­ust þeir báðir sjá eftir þeim óvið­eig­andi skila­boðum sem fóru þeirra á milli. Hvorugur hafi meint það sem þeir skrif­uðu og þeir hafi sann­ar­lega ekki ætlað sér að drepa neinn. Þótt skoð­anir þeirra væru ólíkar skoð­unum þess fólks sem um var rætt þá stafi því fólki engin ógn af þeim. Um fífla­skap hafi verið að ræða, í ein­hverjum til­vikum eftir að umrætt fólk hafði verið í fréttum, hót­an­irnar því inn­an­tómar.

Ákærðu eru vinir og sendu myndir og hlekki af mynd­böndum sín á milli, sér til skemmt­unar. Talsmát­ann þeirra á milli þyrfti að skoða í því ljósi. Hann við­ur­kenndi að það væri furðu­legur húmor að senda á milli sín mynd­bönd af hryðju­verka­árásum og sagð­ist hafa skoðað slíkt efni af for­vitni og fróð­leiks­fýsn. „Það er erfitt að skynja kald­hæðni í rit­uðu máli,“ sagði Sindri fyrir dómi í dag. 

Sögðust vera fróðleiksfúsir

Í sam­skiptum sín á milli var þeim Sindra og Ísidóri tíð­rætt um ýmsa þekkta hryðju­verka­menn og fjöldamorð­ingja, til að mynda Anders Behring Breivik sem myrti 77 manns í hryðju­verka­árásum í Osló og Útey árið 2011. Fjöldamorðin framdi Breivik dul­bú­inn sem lög­reglu­maður til að fólk teldi sér ekki standa ógn af honum. Sindri og Ísidór ræddu sín á milli um skot­heldan fatnað og sagði Ísidór í skýrslu­töku fyrir dómi að honum þætti slíkur fatn­aður flottur og að hann hefði áhuga á honum. Hann gekkst við því að vera ein­angr­un­ar­sinni og ras­isti.

Í vörslum Sindra fannst stefnu­yf­ir­lýs­ing Breivik, svo­kallað man­i­festo. Hann sagði að hann hefði ekki lesið það ítar­lega og neit­aði fyrir að hann hafi nokkurn tím­ann sagt í alvöru að Breivik væri for­ingi hans. Það hefði verið sagt í gríni.

Talstöðvar ætlaðar í ferðaþjónustu

Samkvæmt ákæru sendi Sindri skila­boðin: „Þau munu fá það á trýnið,“ eftir að umsókn hans um skot­vopna­leyfi var hafnað. Átti hann þar við lög­regl­una, en hann afl­aði sér upp­lýs­inga um hvar árs­há­tíð lög­regl­unnar var hald­inn. Fyrir dómi sagði Sindri að það hafi tekið hann eina mín­útu að kom­ast að því hvar árs­há­tíðin var hald­inn með því að leita á Google. Setn­ingin sem vísað var til í skila­boð­unum væri til­vísun í lag, en tók ekki fram hvaða lag væri um að ræða. 

Mánu­dag­inn 1. ágúst 2022 ræddu þeir Ísidór um lög­reglu­búnað og lög­reglu­fatnað, og sendu á milli sín vef­slóðir þar sem hægt væri að kaupa slíkar vörur, sam­kvæmt ákæru: „Þetta með tetra tal­stöð væri svo spot on [...] 99% myndi trúa því að þú værir lögga ef þú segðir það upp­hátt í þessum galla [...] þau þurfa bara að trúa því í max 10 sek [...] það er eng­inn að fara að getað stoppað mig.“ Ísidór svarar: „jájá we get it Breivik.“

Seinna í ágúst­mán­uði sendi Sindri skila­boð til Ísidórs og bað hann að óska eftir lög­reglu­fatn­aði á sam­skipta­for­rit­inu Telegram: „Þá helst buxur, treyju, bolur og jakki.“ 

„Ég er búinn að missa allan áhuga á skot­vopnum“
Sindri Snær Birg­is­son

Í ákærunni kemur fram að hann hafi tekið ljós­mynd af ein­kenn­is­klæddum lög­reglu­manni og nær­mynd af skó­bún­aði hans og end­ur­skini á neð­an­verðum buxna­skálm­unum, og sendi Ísidóri slíka mynd. Þá leit­aði hann á net­inu að efni tengdu end­ur­skins­efni fyrir lög­reglu­menn, sams­konar því sem er á íslenska lög­reglu­bún­ingnum. Einnig hafi hann leitað að upp­lýs­ingum um skot­held vesti, aðgerða­búnað lög­reglu og Tetra hand­tal­stöðvar, og að Sindri og Ísidór hafi farið saman í verslun að skoða slíkar stöðvar. 

Fyrir dómi sagði Ísidór að meg­in­þema í sam­skiptum þeirra Sindra hafi verið að finna leið til tekju­öfl­unar. Það ætti til dæmis við um sölu á skot­vopnum. Þeir hefðu einnig rætt um fyr­ir­tækja­rekstur og það hafi verið þess vegna sem þeim vant­aði Tetra tal­stöðvar, en ekki til að þeir gætu dul­bú­ist sem lög­reglu­þjónar. Þeir hafi ætlað að reka ein­hvers­konar ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki og þar séu not­aðar tal­stöðvar, og sjúkra­bún­aður, sem þeir eiga einnig hafa skoðað. 

Í ákærunni segir einnig að Sindri hafi vistað skjá­skot úr stefnu­yf­irlý

sing­unni sem Breivik sendi frá sér fyrir fjöldamorðin, svoköll­uðu man­i­festo, þar sem fjallað er um ein­kenn­is­fatnað fyrir Breivik og þá sem aðhyll­ast hug­mynda­fræði hans. 

Aðspurður um mynd­bönd af hryðju­verka­árásum, skotárásum og ofbeld­is­fullum mynd­böndum sem fund­ust í tölvu hans hafði sagð­ist Sindri hafa þurft að vista mynd­bönd sem bár­ust frá Ísidór til að geta skoðað þau. Það sé ástæðan fyrir því að hann sé með fjölda mynd­banda í tölv­unni og hann taki ekki til í henni nema til að búa til pláss fyrir nýtt efni. Engin sér­stök ástæða hafi verið fyrir því að hann hafi geymt mynd­böndin í tölv­unni eða sím­anum sínum. 

Ísidór ját­aði að hafa sent mynd­böndin. Það hafi verið gert í gríni. 

Of erfitt verkefni

Fram kom að sunnu­dag­inn 28. ágúst sendi Sindri skila­boð þar sem hann lagði á ráðin til að nota dróna til sprengju­árása: „Ég var að fá svaaaa­aka hug­mynd,“ sagði hann við Ísidór sem svar­aði: „bring it“. 

Þá sagði Sindri: „Nú hættum við að prenta byssur og byrjum að prenda dro­nea - kaupum kína­sull í þá og sprengi­efni.“ Hann bætti síðan við: „úfff - það yrði sko frétta­efni.“ Ísidór svar­aði því til að þeir gætu sent dróna á Alþingi, lög­reglu­stöð­ina og heim til Gunnars Smára Egils­sonar. Dóms­mála­ráðu­neytið, bætti Sindri við. 

Samtalið hélt áfram og þeir vís­uðu til fyrri hryðju­verka­árása, sem framdar voru í Osló og í Nýja Sjálandi. 

Í þessu sam­hengi var Sindri var spurður út í fram­leiðslu á eit­ur­efn­inu ricin, en hann sendi upp­lýs­ingar um það á Ísidór, sagð­ist Sindri vera fróð­leiks­fús. Hann hafi verið for­vitin um slíka fram­leiðslu en ekki haft í hyggju að gera neitt í því. 

Þá sagði Sindri að það væri lík­lega flókið verk­efni að smíða dróna og hann treysti sér ekki til þess. Hann hafi aldrei haft neina raun­veru­lega löngun til að smíða einn slíkan heldur hafi hann flett upp upp­lýs­ingum um hvernig ætti að gera það fyrir for­vitn­issakir. Hann kvaðst hafa opnað hlekk á síðu með leið­bein­ingum, rennt í gegnum upp­lýs­ing­arnar en lokað þessu síðan aftur. Hann hefði engan áhuga á sprengjum. 

Sindra var einnig gefið að sök að hafa und­ir­búið hryðju­verk á Hinsegin dögum í Reykja­vík. Í því skyni hafi hann farið á vett­vang, mælt lengd milli lok­ana og kannað hvort hægt væri að aka bíl þar á milli. Hann þvertók hins vegar fyrir það. 

Á þessum degi hafi hann farið í sund með kærust­unni og fengið sér að borða áður en þau fóru í pizzu og bjór í Hvera­gerði. Hann hafi komið hvergi nærri Gleði­göng­unni. 

Lýstu erfiðum tíma 

Sindri sagð­ist hafa átt ömur­legt ár. „Búið að vera frekar ömur­legt ár hjá mér“ Hann hafi að mestu verið sár og dapur, upp­lifað þung­lyndi. Eftir að málið hófst hafi hann ekki einu sinni gert til­raun til að sækja um starf, hann hafi ekki getað unnið en byrjað aftur í námi. Hann er þó enn í sam­bandi með unn­ustu sinni, sem býr í Svíþjóð. Hann tók fram að hann hafi ekki lent í neinu ves­eni við að ferð­ast þangað. 

Á þeim tíma sem lið­inn er frá því að málið hófst hafi hann upp­lifað þung­lyndi. „Það er búið að eyði­leggja líf mitt á allan máta,“ sagði Ísidór. Hann fái hvergi vinnu og faðir hans hafi misst vinn­una í Banda­ríkj­unum. Hann hafi verið yfir­heyrður af Homeland Security í þrí­gang og fái ekki lengur atvinnu­leyfi í Banda­ríkj­unum vegna máls­ins. Í dag sækir Ísidór AA-fundi og er í virkri end­ur­hæf­ingu. Hann er að reyna að mennta sig, en hann er nýorð­inn faðir með unn­ustu sinni sem hann hefur verið trú­lof­aður í sex ár. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár