„Íslensk stjórnvöld eru ekki að gera nóg“

Hópur nem­enda úr Haga­skóla fóru í „skóla­verk­fall“ síð­ast­lið­inn þriðju­dag og mót­mæltu á Aust­ur­velli. Mótmæltu þau aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í mál­efnum Palest­ínu fyrir framan Alþing­is­húsið. Mótmælin voru að mestu frið­sæl en lög­reglan þurfti að hafa afskipti af nokk­urum ung­mennum sem tóku upp á því að kasta eggjum í þing­húsið.

„Íslensk stjórnvöld eru ekki að gera nóg“
Krakka­mót­mæli Fjöldi nem­enda úr grunn- og mennta­skólum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins tóku þátt í „skóla­verk­fall­inu“. Tilefni mót­mæl­anna var að styðja við Palest­ínu. Mynd: Golli

„Mér fannst þetta bara ganga vel,“ segir Birta Hall, nem­andi í 8. bekk í Haga­skóla og einn skipu­leggj­enda krakka­mót­mæl­anna sem fóru fram á þriðju­dag og höfðu þann til­gang að styðja við Palest­ínu. Fjöldi nem­enda úr grunn- og mennta­skólum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins tóku þátt í „skóla­verk­fall­inu“ þar sem þau mættu á Aust­ur­völl til að mót­mæla. „Við vorum alveg að búast við fólki en ég veit ekki alveg hvort við höfum búist við svona mörgum.“

Vopnahlé strax„Ég held það hafi allir mætt fyrir réttu ástæð­urnar, alla­vega eng­inn sem ætl­aði bara að skrópa í skól­anum,“ segir Birta Hall, nem­andi í Haga­skóli sem sá um skipu­lag mót­mæl­anna.

Hug­myndin að verk­fall­inu spratt upp þegar Birta, ásamt vinum sínum, kíkti í heim­sókn í tjald­búð­irnar á Aust­ur­velli, þar sem palest­ínskir feður kröfð­ust þess að fjöl­skyldur þeirra á Gaza yrðu fluttar til Íslands. Atlas Másson, vinur Birtu, spurði vina­hóp­inn, þegar þau sátu í tjald­inu, hvort þau ættu …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár