Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistarlífið

Bjarni Thor Krist­ins­son starfar aðal­lega við óperu­söng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­um­hverfi sitt við Thelmu Hrönn Sig­ur­dórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rann­sókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í sam­vinnu við Nýsköp­un­ar­sjóð og Heim­ild­ina – um starfs­um­hverfi fag­lærða söngv­ara á Íslandi.

Hann er djúpi bass­inn sem vakti athygli fyrir dag­bók­ar­færslur sínar, Dagbók óperu­söngv­ara, í sótt­kví í miðjum Covid-far­aldri. Bjarni Thor Krist­ins­son starfar þó aðal­lega við óperu­söng erlendis. Hann hélt nýverið upp á 25 ára söngafmæli á sviði, en hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn.

Bjarni kemur úr Garðinum, fékk leik­hús­bakt­er­í­una snemma og steig fyrst á svið 10 ára. Hann spil­aði á gítar og söng í kór en hugs­aði aldrei um að verða söngv­ari. „Ég var í stjórn­mála­fræði, stúd­entapóli­tík, kenna í grunn­skóla, eign­ast börn og söng­ur­inn var svo þarna líka.“ 

Óperusviðið kveikti áhugann á söngnum

Bjarni lærði söng hjá Ragn­heiði Guð­munds­dóttur og fylgdi henni síðar í Söng­skól­ann í Reykja­vík. Þar heyrði hann af áheyrn­arprufu fyrir Messías eftir Handel á Lista­há­tíð árið 1992 undir stjórn Jóns Stef­áns­sonar. Bjarni gekk kok­hraustur í áheyrnaprufu sem gekk ekki alveg sem skyldi. „Ég var svo stress­aður í pruf­unni að ég komst ekki í gegnum fyrsta langa fra­s­ann, fékk að byrja aftur, klikk­aði í þriðja sinn og labb­aði út. Ég sat síðan fyrir utan og hlust­aði á vini mína og aðra syngja og er á leið­inni út þegar ég hugsa, „ja, ég var ekki alveg það góður – en ég er ekki alveg svona lélegur Þannig að ég fór aftur inn, söng aftur og land­aði hlut­verk­inu.“

Þetta varð þetta til þess að Bjarni tók þá ákvörðun að reyna að verða atvinnu­söngv­ari og fór tveimur árum síðar í óperu­nám í Tón­list­ar­há­skól­anum í Vín. Fljót­lega eftir að hann byrj­aði í skól­anum fór hann að vinna sem atvinnu­söngv­ari og átt­aði sig á því að hann hefði eitt­hvað í þetta. „Þegar ég fann óperu­sviðið kvikn­aði áhug­inn.“ Bjarna var boðin fast­ráðn­ing hjá Þjóð­ar­óp­er­unni (Volksoper) í Vín og þar starf­aði hann í þrjú ár sem aðal­bassi. „Ég var hepp­inn með tíma­setn­ingu og það sem rak á mínar fjörur.“

Erfitt í harkinu

Bjarni flutti út til Vínar með fjöl­skyld­una, en hún flutti fljót­lega aftur heim. „Eldri dóttir mín er með downs [heil­kenni] og þessi félags­legi pakki er bara ekki nógu góður þarna úti.“ Þegar hann lauk fast­ráðn­ingu í Þjóð­ar­óp­er­unni ákvað hann að starfa frekar í lausa­mennsku þrátt fyrir mörg boð um fast­ráðn­ingar. „Ég valdi þessa braut. Mig langar að búa hérna heima og þá er eng­inn annar mögu­leiki en að vera í lausa­mennsku.“ Bjarni segir það erfitt að vera í hark­inu. „Íslenskt sam­fé­lag togar mig heim, en ekki tón­list­ar­lífið.“

 Bjarni segir að það geti verið kostn­að­ar­samt að starfa í lausa­mennsku. Und­ir­bún­ingur fyrir hlut­verk sé algjör­lega á kostnað söngv­ar­anna, hvort heldur þeir geri það sjálfir eða með aðstoð ann­arra. Fast­ráðnir söngv­arar við óperu­hús fá þessa þjón­ustu frá sjálfu hús­inu. Kost­ur­inn sé hins vegar sá að í lausa­mennsku geti maður frekar valið sér hlut­verk, en fast­ráðnir söngv­arar séu settir í hlut­verk.

25 ár á sviðiBjarni Thor starfar aðal­lega við óperu­söng erlendis. Hann hélt nýverið upp á 25 ára söngafmæli á sviði, en hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn.

Barbapabbi á sviði

„Ég er óperu­söngv­ari, sem er minn miði inn í tón­list­ar­heim­inn, en ég brenn fyrir leik­hús­hlið­inni á söngnum,“ segir Bjarni sem fór að hugsa um sjálfan sig eins og Bar­bapabba á sviði. „Hann gat breytt sér í allt. Það gat verið góður eig­in­leiki að vera þú sjálfur, en geta lagað þig að aðstæðum á hverju sviði.“ Þessi eig­in­leiki hefur nýst Bjarna vel í starfi. Leik­stjórar eru mis­jafnir og áherslur hverrar sýn­ingar mis­mun­andi. Sjálfur hefur Bjarni leik­stýrt þó nokkrum sýn­ingum hér heima og finnst það ákaf­lega skemmti­leg áskorun. „Það er þetta með leik­hús­bakt­er­í­una,“ segir hann kím­inn. 

 Það mætti segja að Bjarni sé ansi snar í snún­ingi og fljótur að laga sig að nýjum aðstæðum. „Ég hef gert tölu­vert af inn­stökki og oft sungið í sýn­ingum án þess að fá æfingu. Þá horfir maður á upp­töku af sýn­ing­unni og lærir hlut­verkið í flug­vél á leið­inni, en það er mjög gaman og þá eru allir með þér í liði.“

Fastagestur í Berlín í fimmtán ár

Fyrst stökk Bjarni fyr­ir­vara­laust inn í hlut­verk í Berlín árið 1998. „Þá var ég nýbú­inn að syngja stórt hlut­verk Volksoper í óper­unni Zar und Zimmermann, sem inni­heldur mikla tón­list og mik­inn texta. Þegar ég kem heim bíða mín svo skila­boð frá Rík­is­óp­er­unni í Berlín um að söngv­ar­inn þeirra verði mögu­lega veikur dag­inn eftir og ég segi strax já! Ég var svo eig­in­lega að von­ast dag­inn eftir að þetta yrði ekki því þetta var allt önnur upp­færsla af Zar und Zimmermann.“ Bjarni var mættur 2–3 tímum fyrir sýn­ingu, sá leik­mynd­ina, hitti hljóm­sveit­ina, söngv­ara og aðstoð­ar­leik­stjór­ann. „Svo náði ég bara að spinna í þrjá klukku­tíma,“ segir Bjarni. „En þetta gekk ótrú­lega vel og ég var fasta­gestur í Berlín næstu fimmtán árin.“

Óperuhús á heims­vísu skipt­ast í A, B og C flokka eftir stærð hljóm­sveita. Það er reynsla Bjarna að gæðin séu ekki meiri þótt húsin séu stærri, því oft þegar húsin eru orðin stór og með meiri pen­ing, sé þetta orðið svo mik­ill business. „Stærra hús, meiri pen­ingur og meiri mögu­leiki á alls konar dirty business. Þá fer sjálf listin að mjakast niður.“ Bjarni hefur aldrei sungið í minna en A húsi en þó aldrei sungið á Metropolitan Opera, Staatsopera eða Royal Opera House í Covent Garden. „En ég hef stokkið inn í hlut­verk í La Scala og hef eig­in­lega sungið í öllum öðrum húsum sem skipta máli.“ Bjarni hefur sungið víða á Ítalíu. „Ég hélt að Scala væri mun betra en hin húsin á Ítalíu en þar var bara sama skipu­lags­leysið,“ segir hann hlæj­andi.

„Íslenska óperan hefði mögu­lega aldrei átt að flytja í Hörpu, því þar er ekki pláss fyrir hana og þar skortir annan sal með leik­hússviði.“

Óperan orðin eins og skúffufyrirtæki

Bjarni syngur tölu­vert á Íslandi, m.a. með Íslensku óper­unni. „Ég söng með öllum óperu­stjórum Íslensku óper­unnar, m.a. í sýn­ing­unum Évgení Onegin, Galdra­lofti, Brott­nám­inu úr kvenna­búr­inu, Ást­ar­drykknum, Töfraflaut­unni, Rak­ar­anum í Sevilla og Carmen.“ Þegar Íslenska óperan er borin saman við önnur óperu­hús sem Bjarni hefur starfað við segir hann að þeir sem stofn­uðu hana hafi gert vel, bæði stjórn­endur og val þeirra á list­rænu starfs­fólki. Hins vegar sé hún nú orðin eins og eitt­hvert skúffu­fyr­ir­tæki. „Íslenska óperan hefði mögu­lega aldrei átt að flytja í Hörpu, því þar er ekki pláss fyrir hana og þar skortir annan sal með leik­hússviði. Hér vantar not­hæft óperu­hús til fram­búðar.“

„Það er fárán­legt að halda það að það sé bundið í gen­unum okkar að fíla ekki lengur klass­íska tón­list.“

Hlutverk Ríkisútvarpsins að styrkja klassíska tónlist

Bjarni hefur það á til­finn­ing­unni að það séu fáir sem lifi á því að syngja á Íslandi og þeir sem geri það séu með alla anga úti. Þannig sé varla hægt að tala um starfs­um­hverfi söngv­ara. Bjarni segir að margir velti því fyrir sér af hverju að eyða pen­ingum í list­form sem almenn­ingur hefur ekki mikil tengsl við. En hann ítrekar að óperu­söngur sé gam­alt list­form sem þarf að hugsa ef til vill upp á nýtt, en þar gilda samt önnur lög­mál heldur en í því sem er hipp og kúl í dæg­ur­menn­ing­unni. Bjarni segir að í mörgum löndum sem við berum okkur saman við er settur pen­ingur í listir þrátt fyrir að hún sé ekki vin­sælasta formið þessa stund­ina. Hlutverk Rík­is­út­varps­ins er að styrkja klass­íska tón­list en hún er ekki lengur valin í besta útsend­ing­ar­tím­ann, þar sem hún var áður. „Þetta hangir líka saman við það að það er ekki nógu mikið að ger­ast í íslenska óperu­heim­inum eða jafn­vel líka klass­íska heim­inum til þess að fjöl­miðl­arnir og sjón­varpið sér­stak­lega finn­ist rétt­mætt að sýna það.“

 Bjarni telur að það sé dvín­andi áhugi á klass­ískum söngv­urum með nýrri kyn­slóð, en það eigi ekki að vera meit­lað í stein að það sé svo­leiðis. „Hið opin­bera hefur stór tæki­færi til að nýta allt þetta fólk sem er að stunda þetta og það er fárán­legt að halda að það sé bundið í gen­unum okkar að fíla ekki lengur klass­íska tón­list.“ Bjarni segir Íslend­inga upp til hópa elska leik­hús og það séu mörg sókn­ar­færi fyrir klass­íska tón­list, en það sem ger­ist oft þegar þessi umræða fer í gang er að háværar raddir þröng­sýnna eldri kyn­slóða vilji óper­una í gamla sama form­inu. Að hans mati þurfi Óperan að end­ur­skoða erindi sitt við almenn­ing í nútím­anum.

 Bjarni segir vanta atvinnu­söng­kór. Hann bendir á að Sin­fón­ían velji sér reglu­lega sam­starf við áhuga­manna­kóra og borgi þá ekki atvinnu­fólki fyrir. „Væri hið sama gert fyrir önnur hljóð­færi?“ spyr Bjarni. „Ég þekki fjórar systur sem kunna á fiðlu. Þær geta komið án þess að fá greitt. Er þetta boð­legt?“ Bjarna finnst að atvinnu­kór ætti að vera til hér á landi eins og alls staðar ann­ars staðar og söngv­arar að eiga mögu­leika á fast­ráðn­ingu. „En það þarf að setja skýrar línur, hvað er þessi kór? Atvinnu­kór hefur marga vett­vanga.“

„Ég þekki fjórar systur sem kunna á fiðlu. Þær geta komið án þess að fá greitt. Er þetta boð­legt?“

Styrkir snúast um að skapa gott starfsumhverfi

„Ein­hverra hluta vegna virð­ast styrkir og list­sköpun ekki ná saman hjá ákveð­inni kyn­slóð.“ Síðustu ár hefur aðeins verið bætt í styrkja­kerfið og lista­menn hafa að auki sam­ein­ast í verk­efnum, segir Bjarni. Honum finnst meiri sátt um að dreifa þurfi styrkjum hjá söngv­urum annað en hjá rit­höf­undum þar sem menn sitja mjög fastir á sínu. „En það þarf svo sann­ar­lega að blása í seglin í okkar sam­fé­lagi ef þetta á yfir höfuð að verða eitt­hvað og það er póli­tísk ákvörðun. Ef Þjóð­ar­óperan verður stofnuð og allt fer af stað, þá verður gras­rótin að eiga aðgang að fé þótt hann verði aldrei áskrift­ar­pen­ingur, ann­ars er það ekki gras­rót.“ Bjarni segir styrki snú­ast um að skapa gott starfs­um­hverfi. Að gefa fólki tíma og séns sem er að sinna list­inni fyrir sam­fé­lagið. 

 Bjarni Thor og sam­býl­is­kona hans, Lilja Guð­munds­dóttir söng­kona, eign­uð­ust stúlku, Ísafold Heiðu, á síð­asta ári og því ætlar hann að minnka við sig ferða­lög á næstu miss­erum og fara í harkið hér heima. Bassinn hljóm­mikli mun þó ferð­ast til Kína þar sem á að flytja allan Nifl­unga­hring­inn í nokkrum lotum til árs­ins 2026. Sökum Covid hefur þurft að fresta sýn­ingum þar nokkuð oft en Bjarni er von­góður um að hann verði fasta­gestur í aust­ur­vegi næstu árin.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Starfsumhverfi klassískra söngvara

Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu
ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Fáránleg ákvörðun fyrir klass­íska söng­konu

Björk Níels­dóttir er söng­kona, trompet­leik­ari, jazzari, popp­ari, rokk­ari, klassíker, þjóð­laga­grúsk­ari, tón­smiður og sviðs­leik­kona. Hún ræðir hér starfs­um­hverfi sitt við Thelmu Hrönn Sig­ur­dórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rann­sókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í sam­vinnu við Nýsköp­un­ar­sjóð og Heim­ild­ina – um starfs­um­hverfi fag­lærða söngv­ara á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár