Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu

Björk Níels­dóttir er söng­kona, trompet­leik­ari, jazzari, popp­ari, rokk­ari, klassíker, þjóð­laga­grúsk­ari, tón­smiður og sviðs­leik­kona. Hún ræðir hér starfs­um­hverfi sitt við Thelmu Hrönn Sig­ur­dórs­dóttur. Viðtalið er sprottið af rann­sókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í sam­vinnu við Nýsköp­un­ar­sjóð og Heim­ild­ina – um starfs­um­hverfi fag­lærða söngv­ara á Íslandi.

Fáránleg ákvörðun fyrir klassíska söngkonu

Björk Níels­dóttir er söng­kona, trompet­leik­ari, jazzari, popp­ari, rokk­ari, klassíker, þjóð­laga­grúsk­ari, tón­smiður og sviðs­leik­kona. Hún var valin bjartasta vonin í flokknum sígild og sam­tímatón­list á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum árið 2019. Samt seg­ist hún oft þurfa að sanna að hún sé dug­leg og góð í öllu því sem hún gerir í stað þess að vera „bara söng­kona“.

Björk lærði á trompet til tví­tugs, en móðir hennar skráði hana í söng­nám á ung­lings­ár­unum og fljótt tók söng­ur­inn yfir. Hún söng í kórum en var mest­megnis í lúðra­hljóm­sveitum og hljóm­sveitum með vinum sínum. Björk tók mörg sumur þátt í skap­andi sum­ar­störfum í Hafn­ar­firði og flutti tón­list um víðan völl, skipu­lagði tón­list­ar­há­tíðir og annað slíkt. „Okkur var treyst fyrir ýmsu í tón­list­ar­miðlun, vorum ung og skap­andi ein­stak­lingar.“

Björk var aðeins tví­tug þegar hún fór á tveggja ára tón­leika­ferða­lag með Björk Guð­munds­dóttur sem trompet­leik­ari í íslenska kvenna­brass­band­inu Wonderbrass. Eftir það lang­aði hana að reyna á söng­inn og lá leiðin beint í klass­ískt söng­nám í Tón­list­ar­há­skól­anum í Amster­dam. 

Ég var algjör unglingur að fríka út

Björk féll fyrsta árið sitt í bakkalár­nám­inu og var sett í skammar­krók­inn. „Ég upp­lifði svo mikið frelsi, átti mik­inn pen­ing eftir túr­inn og var algjör ung­lingur að fríka út. Ég hafði alltaf verið svo stillt, en það er samt ekki afsökun fyrir að láta eins og bjáni.“ Eftir þessa reynslu tók hún námið mjög alvar­lega og setti stefn­una á að útskrif­ast með hæstu ein­kunn. Kennarar voru mjög strangir og vildu stýra því hvernig hún hag­aði sér, hverja hún umgekkst og hvernig hún átti að klæða sig. „Það var rosa­lega mikið verið að segja manni hvernig mann­eskja maður átti að vera,“ segir Björk. Eftir strangt bakkalár­nám hélt Björk áfram í skól­anum í meist­ara­nám í klass­ískum söng. „Meist­ara­námið  var mun opn­ara. Þá opn­uð­ust fleiri dyr og námið varð loks­ins mun skemmti­legra.“ 

Styrk­leiki Bjarkar sem tón­list­ar­maður er fjöl­breytni og hún ein­setti sér að kynn­ast ólíkum stílum í nám­inu þrátt fyrir að vera í klass­ísku tón­list­ar­námi. „Ég átti vini í öllum deildum og ég söng með þeim öllum, því ég var að prófa mig áfram. Jazz, blús, barokk, allt þótti mér skemmti­legt.“ Björk segir þó að að við­mótið í skól­anum hafi verið að maður ætti að ein­blína á einn stíl. Henni fannst hún fá lít­inn stuðn­ing frá söng­kenn­ara sínum sem kunni ekki að meta áherslur hennar á nútímatón­list. „Per­sónu­leg skoðun kenn­ar­ans á ekki að skipta máli þegar kemur að verk­efna­vali. Snobbið getur stundum flækst fyrir.“

„Per­sónu­leg skoðun kenn­ar­ans á ekki að skipta máli þegar kemur að verk­efna­vali. Snobbið getur stundum flækst fyrir.“

Björk útskrif­að­ist með láði, fékk sér­staka við­ur­kenn­ingu fyrir list­sköpun og söng­kenn­ar­inn bað hana afsök­unar. „Kenn­ar­inn end­aði á að segja, fyr­ir­gefðu Björk, þú ert eins og þú ert. Ég reyndi að breyta þér en það er ekki hægt.“ Björk reyndi að taka þessi orð ekki nærri sér. „Ég hugs­aði, whatever, en maður verður samt svo ást­fang­inn af kenn­ar­anum sínum þannig að í manni blundar eðli­lega smá sam­visku­bit.“ Söng­kenn­arar eiga það til að reyna að setja nem­endur sína í kassa. Í stað­inn fyrir að sýna pal­lettu af öllu sem hægt er að gera. Fókusinn virð­ist ekki alltaf vera á því að kenna manni að syngja. „Það tók mig langan tíma að fyr­ir­gefa sjálfri mér fyrir að vera eins og ég er,“ við­ur­kennir Björk.

Ever/ReveHér er Björk í sýn­ing­unni Ever/Reve.

Strategísk ákvörðun að lifa á tónlistinni

Fyrsta verk­efni Bjarkar eftir útskrift var tón­leika­ferð með hljóm­sveit­inni Florence and the Machine, sem bak­rödd og trompet­leik­ari. „Þetta var algjör­lega fárán­leg ákvörðun fyrir klass­íska söng­konu, en samt bara ofboðs­lega fínt því þá átti ég pen­ing og það varð þá stra­tegísk ákvörðun að lifa á tón­list­inni.“ Síð­ast­liðin sjö ár hefur hún túrað um alla Evrópu með spuna- og jazzhljómsveitinni Kaja Draksler Octet. Hún syngur einnig með sam­suðu­leik­hús­inu Silbersee og  jazzrokkbandinu Spinifex. „Við túruðum sl. sumar í Portúgal, hressandi að vera á svona rokk og ról túr. Þetta var svo sveitt!“ segir Björk hlæj­andi. „Við vorum ca 10 manns í bíl með enga loft­kæl­ingu, í hita­bylgju að keyra upp og niður Portúgal og end­uðum síðan sveitt á að taka upp plötu.“

Björk er nýflutt heim og seg­ist þessa stund­ina vera að athuga hvort það sé hægt að búa á Íslandi og ferð­ast út í verk­efni. Hún er öflug í íslenskri tón­list­ar­senu og brennur fyrir að skapa og flytja íslenska tón­list. Björk er með­limur í tón­list­ar­hópnum Stirnir Ensemble og gar­far í þjóð­lagatón­list með hljóm­sveit­inni Gadus Morhua. Einnig hafa hún og Þóra Margrét Sveins­dóttir víólu­leik­ari skapað saman tón­list undir nafn­inu Dúplum Dúó. Björk segir að hún elski að koma heim en starfs­um­hverfið sé erfitt. „Það er eng­inn atvinnu­kór, eng­inn söngv­ari með fasta stöðu. Íslenska óperan er eitt stórt spurn­ing­ar­merki fyrir okkur öll. Enginn fyr­ir­söngur [VJ5], engin stefna og ekk­ert menn­ing­ar­pró­gramm fyrir börn til að kynn­ast klass­ískri tón­list. Ef börn læra ekki að kynn­ast söng­list og óperu frá unga aldri þá eru þau ekki að fara að mæta á tón­leika þegar þau eru eldri. Það eru glötuð tæki­færi þar.“

Söngvarar þurfa að berjast við margra ára fordóma

Björk finnst við­mótið á Íslandi gagn­vart söngv­urum und­ar­legt, meira að segja frá hljóð­færa­leik­urum. „Ég þarf svo oft að sanna að ég sé klár. Sýna að ég geti talið eða lesið tón­list. Hljóð­færa­leik­arar bera oft ekki virð­ingu fyrir söngv­ur­unum. Það er ein­hver óskilj­an­leg kergja í gangi.“ Söngv­arar eigi líka undir högg að sækja í leik­húsum. „Af hverju eru söngv­arar ekki ráðnir í leik­húsin? Við kunnum alveg að leika. Kannski ættu söngv­arar ekki að flytja Shakespe­are, en það eru oft flókin söng­hlut­verk sem leik­arar ættu að sleppa.“ Henni finnst almennt mikil tregða hjá menn­ing­ar­stofn­unum að ráða fólk í vinnu. „Þú getur tekið lán fyrir söng­námi á Íslandi en getur ekki fengið vinnu við það. Við erum að berj­ast við margra ára for­dóma gagn­vart söngv­urum allt frá mennta­stofn­unum, tón­list­ar­skólum og lista­há­skólum. Bara ef það væri menn­ing­ar­stofnun sem myndi virka fyrir söngv­ara og ráða íslenska söngv­ara til að sinna íslenskum verk­efnum.“

Björk segir erfitt að lifa á tón­list­inni á Íslandi nema maður sé á lista­manna­launum ásamt því að starfa erlendis og við athafnir. ,,Þú þarft að vera með alla anga úti, tengdur í öllum geirum og svaka­lega krea­tífur á hverju ári, en það er ekki hægt til lengdar.“ Björk segir það afleitt að Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands not­ist við áhuga­manna­kóra og greiði þar af leið­andi ekki laun, heldur litla summu í kór­sjóð. „Í Sin­fón­í­unni get­urðu vaxið í starfi, en fyrir söngv­ara er ekk­ert. Þú þarft bara að gera allt sjálfur og á end­anum dregur það úr þér og mögu­lega endarðu ann­ars staðar.“ Erlendis eru mörg dæmi um að atvinnu­kórar starfi í sam­starfi við aðrar menn­ing­ar­stofn­anir. Björk segir Íslend­inga þurfa að líta í þá átt. „Ég væri til í að sjá magn­aðan Kór Íslands, atvinnu­kór þar sem fólk má vaxa í starfi. Við erum að missa af svo miklu sem teng­ist söng­list.“

Myndband af Vor­nótt­inni úr óper­unni Þögnin eftir Árna Krist­jáns­son og Helga R. Ingv­ars­son.
„Gísli Marteinn fær enga klass­íska tón­list­ar­menn eða jazzara til að flytja tón­list. Það vantar meiri breidd, þver­skurð af tón­list­inni.“

RÚV ekki að sinna hlutverki sínu sem menningarstofnun

Að mati Bjarkar er RÚV ekki að sinna hlut­verki sínu sem menn­ing­ar­stofnun. Þar er eng­inn vett­vangur nema fyrir popptón­list­ar­menn. „Gísli Marteinn fær enga klass­íska tón­list­ar­menn eða jazzara til að flytja tón­list. Það vantar meiri breidd, þver­skurð af tón­list­inni. Sinfó fær stundum að vera í sjón­varp­inu og Klassíkin okkar er æðis­legt fyr­ir­bæri, en það þarf að vera dæg­ur­um­fjöllun um alls konar tón­list og vand­aðri umfjöllun.“ Íslend­ingar eru þekktir fyrir að vera bók­mennta­þjóð en það gleym­ist stundum að tala um hvað við erum mikil söng­þjóð. „Við ræðum tölu­vert um bók­menntir en af hverju erum við ekki að tala um plötur?“ Björk segir RÚV hafa verið öfl­ugt að taka upp tón­leika en vanda­mál sé varð­andi rétt­mætar greiðslur. „FÍH er þessa dag­ana að taka þetta mál fyrir og vinna að kjara­málum tón­list­ar­manna,“ segir hún spennt.

DúplumÞóra Margrét Sveins­dóttir og Björk Níels­dóttir.

Það er ýmis­legt á döf­inni hjá Björk sem er nýbúin að ljúka fjölda verk­efna á Myrkum mús­ík­dögum, m.a. Gleði­lega geð­rofs­leik­inn eftir Guðmund Stein Gunn­ars­son og frum­flutn­ing á verkum Kolbeins Bjarna­sonar með Stirni Ensemble. Fram undan eru fleiri verk­efni með Dúplum dúó, Cauda Collective og nýtt leik­verk Þórunnar Guð­munds­dóttur, Skoffín og skring­il­menni með leik­hópnum Hnoðri í norðri.

Það vantar ekki fram­taks­sem­ina hjá þessum fjöl­hæfa lista­manni sem er einnig að huga að hljóð­upp­tökum með Gadus mor­hua og Stirni Ensemble sem verða gefnar út á árinu. „Það er ekki dvín­andi áhugi á klass­ískri tón­list en það vantar pláss fyrir okkur innan rík­is­batt­er­ís­ins,“ segir Björk með bros á vör og slær hressi­lega í borðið.

„Ég vil sjá starfs­grund­völl fyrir söngv­ara.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Starfsumhverfi klassískra söngvara

Íslenskt samfélag togar mig heim, en ekki tónlistarlífið
ViðtalStarfsumhverfi klassískra söngvara

Íslenskt sam­fé­lag togar mig heim, en ekki tón­list­ar­lífið

Bjarni Thor Krist­ins­son starfar aðal­lega við óperu­söng erlendis en hann hefur þó verið mun lengur í sviðs­listum, alveg síðan hann var barn. Hann ræðir starfs­um­hverfi sitt við Thelmu Hrönn Sig­ur­dórs­dóttur. Viðtalið er sprottið upp úr rann­sókn sem Thelma og Guja Sandholt gerðu saman í sam­vinnu við Nýsköp­un­ar­sjóð og Heim­ild­ina – um starfs­um­hverfi fag­lærða söngv­ara á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár