Á síðustu mánuðum hefur verið þörf umræða um skólastarf á Íslandi. Stundum óvægin og þá jafnvel sótt að skólakerfinu og starfsfólki vegna alþjóðlegs samanburðar PISA. Efalítið má margt bæta, en ástæða er einnig til að benda á það sem vel hefur verið gert.
Árið 2006 fékkst í gegn fyrir hvatningu Félags lesblindra á Íslandi, að tekin var upp skimun og lesblindugreiningar í skólakerfinu. Það var mikilvægur áfangi, að jöfn tækifæri allra í skólakerfinu væru tryggð og aukið jafnrétti til náms. Þar lagði félagið áherslu á að skimun hæfist við 10 ára aldur. Tveimur árum síðar var kveðið á um það með lögum um grunnskóla að allir nemendur ættu rétt á kennslu við hæfi og komið væri til móts við sértæka námsörðugleika, þar með talda lesblindu. Þessi breyting hefur skilað miklum árangri þótt enn sé nokkuð í land.
Félag lesblindra vinnur að hagsmunamálum lesblindra og markmiðið er að jafna tækifæri til menntunar, starfs og lífsgæða. Frá stofnun félagsins, árið 2003, hefur það unnið markvisst að því að auka vitund og þekkingu á lesblindu. Félagið hefur unnið að hagsmunum ríflega 2.000 félagsmanna, aðstoðað lesblinda, unnið með aðstandendum, kennurum, skólastarfsfólki, yfirmönnum og samstarfsfélögum. Félag lesblindra eru frjáls félagasamtök, rekin eingöngu á sjálfsaflafé án opinberra framlaga.
Fimmti hver er lesblindur
Það er ástæða til að rifja upp viðamikla þriggja ára rannsókn sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Félag lesblindra á Íslandi meðal barna og ungmenna. Niðurstaða rannsóknarinnar var mjög afgerandi þegar kom að kvíða: Einn af hverjum 10 nemendum í efri bekkjum grunnskóla segir að lesblinda hafi mikil eða mjög mikil áhrif á frammistöðu í námi. Þessar niðurstöðurnar eru sláandi og staðfesta sterk tengsl lestrarörðugleika og kvíða, lágs sjálfsmats og óöryggis. Þessi vanlíðan dregur úr námsáhuga og takmarkar tækifæri og eykur hættu á áhættuhegðun. Kvíði hefur áhrif á lífsgæði barna og ungmenna og getur haft áhrif á hvernig þeim gengur að takast á við verkefni lífsins. Því ber að taka kvíða alvarlega og taka vandamálið föstum tökum.
Að sama skapi kom fram að fimmti hver nemandi á aldrinum 18-24 ára hefur fengið lesblindugreiningu. Sú staðreynd að rúm tuttugu prósent nemenda eigi við alvarlega lesörðugleika að stríða er mikil áskorun fyrir skólakerfið. Við bætist að líklegra er að hópurinn sé stærri því greiningu fá frekar nemendur sem eru í verulegum vandræðum vegna lesblindu.
Skólarnir verða að mæta þessu, bæði hvað varðar kennsluhætti sem og skilum á verkefnum og prófum. Taka þarf tillit til þess að hópurinn, einkum stúlkur, eigi við mikinn kvíða að etja. Að greinast seint hefur mikil neikvæð áhrif á skólagöngu lesblindra, sérstaklega stúlkna til lengri tíma. Lesblindir viðmælendur upplifðu vanmátt gagnvart bekkjarfélögum og efasemdir um eigin hæfni til náms.
Mikilvægi Félags lesblindra
Rannsóknin undirstrikaði mikilvægi Félags lesblindra á Íslandi þegar kemur að skólakerfinu. Félagið hefur skilað miklum árangri í baráttu sinni fyrir skimum og greiningum. Þannig hefur verið dregið úr kvíða nemenda. Niðurstöðurnar sýna mikilvægi þess að lesblindugreining sé framkvæmd á 10. aldursári en ekki því 15. Þannig er hægt að styðja betur og þá sem mest þurfa á því að halda.
Við eigum að slá skjaldborg um skólakerfið, kennara og skólastjórnendur og hvetja þá til góðra verka. Þar þarf að byggja á jöfnum tækifærum, lesblindra sem annarra.
Burðarstólpi skólakerfisins er texti, allir skulu vera fluglæsir og skrifandi. Núverandi textatækni skólakerfisins veldur lesblindum erfiðleikum. Í stað hennar mætti byggja upp þekkingu á annan máta, svo sem í framsögu og auknu aðgengi lesblindra að upplýsingum.
Íslenskt menntakerfi ætti að bjóða upp á mismunandi textatækni með aukum vægi stafræns texta í námi. Nýtum betur stórkostlegar framfarir hljóðtækni og gervigreindar sem vex nú ásmegin og styður lesblinda. Aukið stafrænt textaumhverfi auðveldar fleirum nám. Þá sitja lesblindir við sama borð og aðrir. Það ætti að verða okkur skýrt markmið.
Núverandi textatækni skólakerfisins veldur lesblindum erfiðleikum. Aukið stafrænt textaumhverfi auðveldar fleirum nám.
Athugasemdir