Hagstofan leitar að „lífsmörkum“ til að fá réttan fólksfjölda í landinu

Nýrri aðferð verður beitt við að reikna út mann­fjölda á Íslandi. Í mann­tali sem fram­kvæmt var 2021 kom fram að fólks­fjöldi á Íslandi hafi verið ofmet­inn um 10.000 manns.

Hagstofan leitar að „lífsmörkum“ til að fá réttan fólksfjölda í landinu
Ofmat á fjölda íbúa Tölu­verður munur er á mann­fjölda­tölum Hagstofu og Þjóð­skrár. Mynd: Golli

Hagstofa Íslands mun gefa út mann­fjölda­tölur byggðar á end­ur­bættri aðferð í mars 2024 þar sem við­mið­un­ar­tím­inn er 1. jan­úar 2024. Er það vegna þró­unar á nýjum aðferðum við að fá rétt­ari nið­ur­stöður á fjölda íbúa á land­inu.

Nýja aðferðin sem Hagstofa not­ast við verður kynnt í mars. „Hún felur í sér að við höfum sam­band við fleiri stofn­anir og erum að grafa upp snert­ingar,“ segir Þor­steinn Þor­steins­son, deild­ar­stjóri sam­skipta og miðl­unar hjá Hagstofu Íslands. Hagstofa muni kanna „lífs­mörk“ eða snert­ingar ein­stak­linga með nokkrum mis­mun­andi aðferðum eins og með upp­lýs­ingum úr opin­berum skrám.

„Til við­bótar við Þjóðskrá nýtum við gögn frá Skatt­inum og nem­enda­skrár af öllum skóla­stigum frá leik­skóla til háskóla auk fjöl­skyldu­teng­inga sem við fáum úr þjóð­skránni. Ef engin „lífs­merki“ eða hreyf­ing er í þessum skrám fyrir við­kom­andi eða fjöl­skyldu þeirra yfir 6 mán­aða tíma­bil lítum við svo á að við­kom­andi sé búsett(ur) erlendis,“ segir í skrif­legu svari frá Steini Kára Steins­son, sér­fræð­ingur á grein­ing­ar­sviði hjá Hagstofu.

Mögu­legar ástæður þess að fólk skrái sig ekki úr landi getur verið vegna sterks hvata „fyrir fólk að skrá sig inn í landið þegar það flytur til Íslands heldur en að til­kynna flutn­ing úr landi þegar það flytur burt. Þetta er vegna þess að kennitalan er nauð­syn­leg til að geta nýtt ýmsa þjón­ustu en það hefur engar nei­kvæðar afleið­ingar fyrir fólk ef það flytur burt án þess að til­kynna flutn­ing­inn,“ segir Steinn Kári.

Tölurnar verða aldrei alveg 100% réttar

Ein­stak­lingar sem eru í námi erlendis en vinna á sumur og jól á Íslandi geta talist með sem íbúar í land­inu, þrátt fyrir að búa erlendis. Þjóðskrá heldur utan um fjölda Íslend­inga meðal ann­ars með skrán­ingu á lög­heim­ili en ein­stak­lingar í námi erlendis geta haldið sínu lög­heim­ili á Íslandi. „Við tökum þessa ein­stak­linga til hliðar því við erum að tala um íbúa, þá sem að búa í land­inu og náms­menn sem búa erlendis eru sann­ar­lega fólk sem býr ekki í land­inu,“ segir Þor­steinn.

Mann­fjölda­tölur með við­mið­un­ar­dag­setn­ingu 1. jan­úar 2024 verða gefnar út í mars á þessu ári. „Við erum að vinna í þess­ari aðferð og erum að fín­pússa hana, þess vegna dregst þetta.“ Þor­steinn segir að töl­urnar verði aldrei alveg 100% réttar. „Þetta er nær því sem er rétt. Við erum að skoða ein­stak­linga sem að koma ekki fram í kerf­inu í ein­hverja mán­uði. Þá tökum við út því að það eru mestar líkur á að þeir séu ekki á land­inu,“ segir Þor­steinn. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár