Grindavík á mörkum þess að vera of hættulegur staður til að vinna á

Grindavík á mörkum þess að vera of hættulegur staður til að vinna á

Pípu­lagn­inga­meist­ar­inn Þor­steinn Ein­ars­son seg­ist ekk­ert rosa­lega bjart­sýnn með stöð­una í Grinda­vík en hann hefur unnið þar á nán­ast hverjum ein­asta degi síðan 14. nóv­em­ber.

Ekki er svo langt síðan Þor­steinn Ein­ars­son, pípu­lagn­inga­meist­ari og Grind­vík­ingur, var á leið inn í hús í Grinda­vík sem hann þurfti að vinna í, þegar gang­stéttin sem hann gekk eftir hrundi undan honum og stór hola mynd­að­ist. 

„Holan var stór en ekki það djúp, það hefði aldrei farið illa,“ segir Þor­steinn. Frá 14. nóv­em­ber hefur hann mætt til vinnu í Grinda­vík nán­ast á hverjum ein­asta degi, í gulum vinnugalla, með örygg­is­hjálm og sig­belti í bílnum ef hann þarf að fara ofan í sprungu að vinna. Hann hefur þurft að gera það og tekur dæmi af stórri sprungu sem hann var að vinna við. „Maður vissi að þetta væri stór sprunga, en hafði ekki hug­mynd um að hún væri svona stór, eða það væri svona mik­ill hellir undir okkur öllum.“

„Núna er bara hola undir hús­inu“

Í kjöl­far þess að gang­stéttin hrundi undan honum við húsið, ræddi hann við son eig­and­ans sem tjáði honum að húsið hefði á sínum tíma verið byggt ofan á sprungu. „Það var bara fyllt upp í sprung­una svo grunn­ur­inn yrði extra sterkur, en núna er bara hola undir hús­inu,“ útskýrir hann. 

Þor­steinn við vinnu„Fólk er búið að missa trú á að þetta verði ein­hvern tím­ann bær aftur,“ segir Þor­steinn Ein­ars­son pípu­lagn­inga­meist­ar­inn sem hefur unnið í Grinda­vík nán­ast dag­lega síðan 14. nóv­em­ber.

Hann seg­ist nú ekki hafa mik­inn tíma til að velta sér upp úr hætt­unni sem fylgir því að vinna á svæð­inu. „Við erum bara búnir að vera á fullu við að laga það sem aflaga fór í fyrstu skjálft­unum. Það er ekki fyrr en bara núna sem ég finn að mönnum stendur kannski ekki alveg á sama,“ segir hann. Þrátt fyrir það hefur eng­inn sem er á launa­skrá hjá honum í Lagna­þjón­ustu Þor­steins ehf. hætt við að mæta til vinnu vegna þess. Eða aðrir sem eru að vinnu á svæð­inu, ef út í það er farið. „Ég hef verið með­vit­aður um þau svæði sem eru hættu­leg. Það hefur verið kapp hjá mér og mínum mönnum að reyna að gera sem mest gagn og koma hlut­unum í lag,“ segir hann. Konan hans biður hann samt á hverjum degi að fara var­lega þegar hann fer af stað. „Henni stendur ekki alveg á sama.“ 

Á nýju hættu­mat­skorti Veð­ur­stofu Íslands kemur fram að enn séu miklar hættur taldar leyn­ast innan bæj­ar­markanna. Engin vinna fór til dæmis fram á fimmtu­dag, 18. jan­úar, vegna gasmeng­unar. Þor­steinn hefur fundið vonda lykt í lofti og óbragð í munni, segir hann. Það var þegar þeir voru að vinna rétt við hraunjað­ar­inn, við að end­ur­nýja stofn­lagnir. „En við vorum með mæla og þeir píptu ekk­ert. Það kom aldrei fram nein brenni­steins­mengun.“

Fólk er að missa trúna

Íbúa­fundur fyrir Grind­vík­inga fór fram á þriðju­dag. Þor­steinn komst ekki, því hann var fastur við vinnu allan dag­inn og fram á kvöld. Hann heyrir nú samt á sínu fólki að það er beygur í því, eins og hann orðar það. „Fólk er búið að missa trú á að þetta verði ein­hvern tím­ann bær aftur,“ segir hann og bætir við: „Þetta er orðið gríð­ar­legt sprungu­svæði, eftir síð­ustu ham­farir. Og það báðum megin í bænum.“

„Þetta er ekk­ert yfir­staðið“

Sjálfur seg­ist hann far­inn að hall­ast að því að fara ekki aftur heim í bráð. „Því miður. Þetta er ekk­ert yfir­staðið.“ Fyrst þurfi jarð­hrær­ing­arnar að ná jafn­vægi og síðan þurfi að laga allt sem laga þarf og gæta þess að allt verði öruggt að nýju.  Hann sér jafn­vel fram á að vinna að því næstu árin. „Ég veit ekki hvað verður en býð fram mína krafta ef þess þarf.“

Aðspurður hversu hættu­legt svæðið þyrfti að vera til að því yrði alveg lokað, svarar hann: „Þetta er á mörk­unum eins og staðan er núna. Það eru enn þá að opn­ast sprungur. Svo er talað um að það sé að safn­ast í kviku­gang­inn og það gæti komið gos innan bæj­ar­markanna. Ég er ekk­ert rosa­lega bjart­sýnn orð­inn í dag.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár