Vill virkjun í Vatnsfirði til að slökkva olíubálið

Ef fram fer sem horfir verða brenndar 3,4 millj­ónir lítra af olíu á Vest­fjörðum til vors vegna skerð­inga Lands­virkj­unar á raf­orku. Kostn­að­ur­inn er gríð­ar­legur og orku­bús­stjóri vill virkjun í Vatns­firði til að hafa grænt vara­afl til reiðu. Aðrir hafa bent á aðrar leiðir. Meðal ann­ars aðra virkj­ana­kosti.

Vill virkjun í Vatnsfirði til að slökkva olíubálið
Náttúran Forn birki­skógur og ein­stakar lands­lags­heildir eru meðal þess sem nú nýtur verndar í Vatns­firði. Mynd: Elva Björg Einarsdóttir

Allar umsagnir um þá beiðni Orkubús Vest­fjarða að frið­lýs­ing­ar­skil­málum Vatns­fjarðar verði breytt svo þar megi reisa virkjun eru komnar til ráð­herra umhverfis-, orku- og lofts­lags. Ekki liggur fyrir hvenær nið­ur­stöðu hans er að vænta en umsagn­ar­að­ilar, m.a. Nátt­úru­fræði­stofnun, Umhverf­is­stofnun og Vest­ur­byggð, voru á því að ekki séu for­sendur fyrir hendi til að hrófla við frið­lýs­ing­unni.

Elías Jón­atans­son orku­bús­stjóri segir við Heim­ild­ina að ekk­ert í umsögn­unum hafi komið honum sér­stak­lega á óvart. Eins og gefi að skilja hafi þær fyrst og fremst snúið að umhverf­is­legum þáttum „en minna að þeim jákvæðu sam­fé­lags­legu þáttum sem snúa meðal ann­ars að upp­bygg­ingu atvinnu­lífs og byggðar á Vest­fjörðum“. Orkubúið sé enn að fara yfir efni umsagn­anna og vill hann því ekki tjá sig frekar um þær að svo stöddu.

Per­sónu­lega finn­ist honum þó „full lítið“ gert úr vinnu tveggja starfs­hópa sem fjallað hafa um orku­mál og efl­ingu sam­fé­lags­ins á Vest­fjörðum síð­ustu miss­eri. Annar hóp­ur­inn var skip­aður af ráð­herra orku­mála 2021 og hafði það hlut­verk að skoða raf­orku­mál a Vest­fjörðum. Hinn hóp­ur­inn var skip­aður af umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra árið 2022 og fjall­aði um leiðir til að efla sam­fé­lagið á Vest­fjörðum. Í skýrslum hópanna tveggja er að mati Elíasar ítar­leg grein­ing á núver­andi stöðu og fram­tíð­ar­sýn auk þess sem fram séu sett mark­mið um afhend­ingar­ör­yggi og sjálf­bærni í orku­málum Vest­firð­inga. Þá séu einnig settar fram leiðir að þeim mark­miðum. Í því sam­hengi sé virkjun í Vatns­firði nefnd sem mik­il­vægur kostur, bæði fyrir afhend­ingar­ör­yggi raf­orku og minnkun á olíu­notkun vara­afls.

Árið 2022, er Lands­virkjun skerti afhend­ingu á raf­orku til aðila sem voru með skerð­an­lega samn­inga, voru rúm­lega 2 millj­ónir lítra af olíu not­aðar til að knýja raf­kyntar hita­veitur Vest­fjarða. For­gangsorka, sem hægt er að semja um, er það dýr að Orkubúið telur samn­inga um slíkt ekki ger­lega.

Nú er svipuð staða komin upp hjá Lands­virkjun, meiri eft­ir­spurn er eftir raf­magni en fram­boð í augna­blik­inu, og því er orka skert til þeirra sem eru með skerð­an­lega samn­inga, þar með talið til Orkubús Vest­fjarða. Og aftur er olía brennd og að sögn Elísar er útlit fyrir að brenndir verði 3,4 millj­ónir lítrar af olíu til vors. Auka­kostn­aður vegna þess­ara aðgerða gæti numið um 520 millj­ónum króna eða um 74 þús­und krónum á hvern Vest­firð­ing. „Þá er ótal­inn umhverfis­kostn­að­ur­inn sem felst í brennslu olíu á tímum lofts­lags­breyt­inga þar sem öll áhersla er á mik­il­vægi orku­skipta.“

Virkj­un­ar­á­formHugmynd Orkubús Vest­fjarða er að stífla vötn á Glámu­há­lend­inu og leiða vatnið niður í stöðv­ar­hús í Vatnsdal í Vatn­firði. Þetta myndi leiða til veru­legrar skerð­ingar í rennsli áa um dal­inn.

Orkubúið vill fá að reisa vatns­afls­virkjun í Vatns­firði, á svæði sem notið hefur frið­unar vegna nátt­úru og sögu í hálfa öld, í þeim til­gangi að auka fram­boð raf­orku á svæð­inu, til að tryggja betur afhend­ingar­ör­yggi hennar og til þess að hafa aðgang að „grænu vara­afli“. Umsagn­ar­að­ilar um málið benda hins vegar sumir hverjir á að leita ætti ann­arra leiða til að ná sömu mark­miðum. Benda þeir m.a. á tvö­földun einu flutn­ings­lín­unnar inn á Vest­firði til að auka afhend­ingar­ör­yggi sem og á aðra virkj­un­ar­kosti sem þegar eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar. Þá er í gangi leit að heitu vatni á nokkrum stöðum sem gæti leyst raf­kynd­ingu hita­veitna, að minnsta kosti að stórum hluta, af hólmi í fram­tíð­inni.

„Við erum hóf­lega bjart­sýn á að okkur tak­ist að finna jarð­hita í þeim mæli að nýta megi á mið­læga varma­dælu á Pat­reks­firði fyrir núver­andi notkun og hugs­an­lega stækkun veit­unnar,“ segir Elías spurður um árangur jarð­hita­leitar sum­ars­ins. Á Ísafirði sé ennþá verið að bora rann­sókn­ar­holur og því of snemmt að segja til um árangur. Það gæti orðið nið­ur­staðan að bæði á Ísafirði og á Pat­reks­firði yrði um varma­dælu­lausn að ræða. Það þýðir að sögn Elíasar að í stað þess að hægt verði að fasa út 12 MW af þeim 16 MW sem í dag eru notuð í raf­kyntar hita­veitur þá yrði hægt að fasa út helm­ingi aflsins. „Óraun­hæft er að gera ráð fyrir að slíkar varma­dælu­lausnir gætu orðið til­búnar fyrr en á árinu 2027.“ 

Meðal þess sem umsagn­ar­að­ilar benda á er að vernd­ar­gildi nátt­úr­unnar í Vatns­firði hafi ekki rýrnað, líkt og telja má til raka með því að breyta frið­lýs­ing­ar­skil­málum, heldur auk­ist á síð­ustu ára­tugum. Virkjun á heiðum ofan fjarð­ar­ins myndi skerða óbyggð víð­erni sem eru að verða fágæti í ver­öld­inni og auk þess hafa áhrif á ár, vötn, fjörur og líf­ríki.

Að teknu til­liti til alls þess sem fram kom í skýrslum starfs­hópanna sem fyrr eru nefndir sem og þeirra ábend­inga sem koma fram í umsögn­unum væri að mati Elíasar „heppi­legt fyrir málið“ að virkj­un­ar­kostur í Vatns­firði yrði tek­inn til umfjöll­unar í ramma­á­ætlun og færi síðan í umhverf­is­mat sem kallar á frek­ari rann­sóknir. „Það eru einmitt þau verk­færi sem við höfum í dag til að tryggja að nýt­ing land­svæða þar sem er að finna virkj­un­ar­kosti bygg­ist á lang­tíma­sjón­ar­miðum og heild­stæðu hags­muna­mati þar sem til­lit er tekið til vernd­ar­gildis nátt­úru og menn­ing­ar­sögu­legra minja, hag­kvæmni og arð­semi og ann­arra gilda sem varða þjóð­ar­hag, með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi, eins og segir í lögum um ramma­á­ætlun.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Friðlandið í Vatnsfirði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár