Heil stétt sem breytist úr þýðendum í yfirlesara

Kristínu Eiríks­dóttur rit­höf­undi fannst eft­ir­tekt­ar­vert, hvað bók­mennta­árið varð­aði, að Storytel ætl­aði að láta vélar þýða bækur, og séu jafn­vel þegar byrjuð á því. Fyrir henni er starf þýð­enda list­grein og þýð­ing­arnar sjálfar líf­ríki.

Heil stétt sem breytist úr þýðendum í yfirlesara
Kristín Eiríks­dóttir Mynd: Hordur Sveinsson

Kristín Eiríks­dóttir rit­höf­undur gekk hratt um gólf þegar hún heyrði af því að sænska hljóð­bóka­fyr­ir­tækið Storytel ætl­aði sér að fá vélar, gervi­greind, til að þýða bæku og að íslenski armur þess tæki vel í hug­mynd­ina. Henni fannst frétt­irnar svaka­legar og stórar. „Það er heil stétt þarna sem breyt­ist úr þýð­endum í yfir­les­ara fyrir tölvu,“ sagði Kristín í Jóla­bóka­boði Heim­ild­ar­innar. 

Í júní þessa árs birt­ust fréttir þess efnis að gervi­greind­arraddir til við­bótar „upp­les­inna mennskra radda bjóð­ast við­skipta­vinum Storytel innan skamms,“ eins og það var orðað í frétt Rík­is­út­varps­ins. Dan Panas, sam­skipta­stjóri Storytel, sagði í við­tali við frétta­stofu RÚV að gervi­greind­arradd­irnar ættu alls ekki að koma í stað þess að „raun­veru­legt fólk lesi upp bæk­urnar“ en að við­bótin þýddi minni fram­leiðslu­kostnað á hljóð­bókum.

Hann sagði svo að fólk ætti að hafa val …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Margrét Jónsdóttir skrifaði
    Að nýta sér þá heibrigðisþjónustu sem í boði er, t.d. með því að þiggja bólusetningu til að vernda viðkvæman, dauðlegan mannslíkamann, gera vélar einmitt ekki. Það gerir skynsamt fólk.
    1
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Færeyska orðið "vitlíki" lýsir fyrirbærinu mun betur en hið íslenska "gervigreind". Alvöru gervigreind er allt annað.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár