Mánaðarlöng þögn ráðuneytisins og Sjúkratrygginga

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Willums Þórs Þórs­sonar og Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafa látið ógert að svara spurn­ingum um einka­væð­ingu lið­skipta­að­gerða í einn mánuð. Nú stendur fyrir dyrum að fram­lengja samn­ing­inn um lið­skipta­að­gerð­irnar fyrir lok þessa árs og fá sér­staka fjár­veit­ingu til þess.

Mánaðarlöng þögn ráðuneytisins og Sjúkratrygginga
Engin svör í einn mánuð Heil­brigð­is­ráðu­neyti Willums Þórs Þórs­sonar og Sjúkra­trygg­ingar Íslands, sem Sigurður Þór Helgason stýrir, hafa ekki svarað spurn­ingum Heim­ild­ar­innar um einka­væð­ingu lið­skipta­að­gerða og tengd mál í einn mánuð.

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Willums Þórs Þórs­sonar og rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafa ekki svarað spurn­ingum um einka­væð­ingu lið­skipta­að­gerða með greiðslu­þátt­töku rík­is­ins, og önnur tengd mál, í einn mánuð. Heim­ildin sendi spurn­ingar til þess­ara rík­is­stofn­ana þann 17. nóv­em­ber og 23. des­em­ber síð­ast­lið­inn og hafa þessir aðilar ekki svarað þeim ennþá þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir þar um. Spurn­ing­arnar voru sendar vegna umfjöll­unar  um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu sem birst hefur í Heim­ild­inni en hún snýst meðal ann­ars um einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíník­ina. 

„Sjúkra­trygg­ingar hafa í skoðun hvort mögu­legt sé að fram­lengja núgild­andi samn­inga um fram­kvæmda lið­skipta­að­gerða á grund­velli fjár­veit­ingar í fjár­lögum árs­ins 2024.“
Úr bréfi Sjúkra­trygg­inga Íslands

Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu í lok mars samn­ing við Klíník­ina og fyr­ir­tækið Cosan, sem er í eigu bækl­un­ar­skurð­lækna á Land­spít­al­anum, um að þau fengju að gera 700 lið­skipta­að­gerðir með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og þar með íslenska rík­is­ins. Um var að ræða fyrsta slíka samn­ing­inn sem gerður hefur verið á Íslandi þar sem lið­skipta­að­gerðir fara í útboð til einka­að­ila. Þessi samn­ingur var umdeildur, meðal ann­ars hjá for­svars­mönnum Cosan sem höfðu tak­mark­aðan tíma til að und­ir­búa til boð fyrir útboðið þar sem það var ekki vel kynnt opin­ber­lega. 

Umræða fer nú fram í rík­is­rekna heil­brigð­is­kerf­inu að verið sé að stýra aðgerðum í auknum mæli til Klíník­ur­innar. 

Framlenging á  bak við tjöldin

Nú stendur til að fram­lengja þennan samn­ing við Klíník­ina og Cosan, eins og Heim­ildin hefur greint frá, og stendur til að miða við að hvort fyr­ir­tæki fái að gera hlut­falls­lega eins margar lið­skipta­að­gerðir með greiðslu­þátt­töku rík­is­ins á fyrstu fjórum mán­uðum næsta árs og þær gerðu á þessu ári. Sjúkra­trygg­ingar hafa sent erindi um þetta til fyr­ir­tækj­anna, sam­kvæmt heim­ildum.

Í erind­inu sagði: „Sjúkra­trygg­ingar hafa í skoðun hvort mögu­legt sé að fram­lengja núgild­andi samn­inga um fram­kvæmda lið­skipta­að­gerða á grund­velli fjár­veit­ingar í fjár­lögum  árs­ins 2024, þar til hægt er að ljúka nýju inn­kaupa­ferli. Með þessu væru núgild­andi samn­ingar fram­lengdir til allt að 31. mars 2024, með til­teknum breyt­ingum. Fjöldi umsam­inna aðgerða myndi taka mið af fram­leiðslu og fram­leiðslu­getu verk­sala hingað til, þó þannig að umsam­inn fjöldi aðgerða yrði að jafn­aði lægri á mán­uði en hefur verið á árinu 2023.“

Til að af þessu verði þarf að sam­þykkja fjár­veit­ingu þess efnis á fjár­lögum næsta árs. 

Heim­ildin birtir hér fyrir neðan spurn­ing­arnar sem blaðið hefur sent til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og Sjúkra­trygg­inga Íslands.  

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Willum opnar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Þannig aukum við skil­virkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.

11 mín. lestur

FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu: Fram­lengja umdeildan samn­ing við Klíník­ina á grund­velli aðgerð­a­r­eynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár