Getum þakkað fyrir að mökkinn leggi ekki yfir Reykjanesbæ

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur vekur athygli á því að þakka megi fyrir hvernig vindar blása á suð­vest­ur­horn­inu í kvöld, nú þegar jörðin hefur opn­ast með nokkrum krafti norðan Grinda­víkur. Næsta þétt­býli á leið gos­gu­fanna er Þor­láks­höfn og gæti gasi slegið þar niður, en á morgun mun mökk­inn blása á haf út.

Getum þakkað fyrir að mökkinn leggi ekki yfir Reykjanesbæ
Gos Gosið sem hófst í kvöld, séð frá Krýsu­vík­ur­vegi. Mynd: Golli

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur segir að það megi telj­ast heppni að vindur stóð ekki af suð­austri í kvöld, er eld­gos hófst á nokk­urra kíló­metra langri sprungu norð­austan Grinda­víkur.

Ef svo hefði farið hefði gosmökk­inn „lagt bein­ustu leið yfir Reykja­nesbæ og Garð­skaga“ og Kefla­vík­ur­flug­völlur jafn­framt að öllum lík­indum lok­ast. 

Í stað­inn hefur vindur blásið úr vestri og mun vind­áttin hald­ast nokkuð stöðug til morg­uns. Næsta þétt­býli til aust­urs, sem gosmóðan leggur þá yfir, er Þor­láks­höfn. 

„V-átt er fremur heppi­leg vind­átt, en þó gæti slegið niður gasi í Þor­láks­höfn og neð­an­til í Ölfusinu. Eins á Eyr­ar­bakka og Stokks­eyri og e.t.v. víðar í lágsveitum Suð­ur­lands,“ skrif­aði Einar í færslu á Facebook í nótt.

Á morgun verður vind­áttin svo enn heppi­legri, eða norð­vest­an­átt með strekk­ings­vindi, sem þýðir að gosmökk­inn leggur yfir Krísu­vík­ur­bjarg og þaðan beint á haf út.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár