María Antonetta drottning Loðvíks 16. á leið undir fallöxina í kvikmynd Ridleys Scotts um Napóleón. Allar líkur voru á að verðandi drottning Napóleons, Jósefína/Rose Tascher færi sömu leið.
María Ant­o­netta drottn­ing Loðvíks 16. á leið undir fal­l­öx­ina í kvik­mynd Ridleys Scotts um Napóleón. Allar líkur voru á að verð­andi drottn­ing Napól­e­ons, Jósefína/Rose Tascher færi sömu leið.

„Ég verð drottning Frakklands!“ staðhæfði Jósefína innan um rotturnar í fangelsi ógnarstjórnarinnar

Hún hélt að hún væri á leið undir fal­l­öx­ina, en þá sást gömul kona dansa fyrir utan fang­elsið.

Þar var komið sögu af Jósefínu Bónap­arte að sum­arið 1794 var hún enn nefnd Rose Tascher. Hún var þrí­tug og af gam­al­grónum aðal­sættum en þó í raun­inni blá­fá­tæk og franska stjórn­ar­bylt­ingin stóð sem hæst með öllum sínum við­sjám. Hún og eig­in­maður hennar, greif­inn Alex­andre de Beauharnais, höfðu í reynd slitið sam­bandi en í gegnum hann komst hún þó í sam­band við ýmsa vel stæða mektar- og valda­menn sem hún þáði af fé, greiða og uppi­hald nokkur miss­eri.

Hugðist flýja til Bretlands

Einhvern veg­inn varð Rose nátt­úr­lega að sjá fyrir sér og börn­unum, Eugène, 12 ára og Hortense, 11 ára. Snemma árs 1793 hafði kóng­ur­inn Loðvík 16. verið tek­inn af lífi af bylt­ing­ar­mönnum og þá voru róstur svo miklar í Frakk­landi að Rose hugð­ist senda börn sín til Bret­lands og flýja svo sjálf á eftir þeim en Alex­andre kom í veg fyrir það. Hann hafði þá náð miklum frama í röðum bylt­ing­ar­manna og stýrði stórum her á þeirra vegum við Rín­ar­fljót.

Ekki er ætl­unin að rekja hér sögu bylt­ing­ar­innar, svo merki­leg sem hún er. Í bili dugar að taka fram að und­an­farin miss­eri höfðu deilur farið mjög vax­andi milli bylt­ing­ar­manna um hvert stefna skyldi og hve hratt fara.

Þeir rót­tæk­ustu voru nefndir Jak­obínar og náðu helstu völdum í París og helstu borgum Frakk­lands sum­arið 1793. Þeir köll­uðu sig Nefnd um öryggi almenn­ings og töldu rétt­læt­an­legt að ná hinum göf­ugu mark­miðum bylt­ing­ar­innar með offorsi og ofbeldi. Upphófst þá sann­kölluð, með­vituð og mark­viss ógn­ar­stjórn þar sem sífellt hvein í fal­l­öx­inni og nokkrar tug­þús­undir „óvina bylt­ing­ar­innar“ voru gerðar höfð­inu styttri eða skotnar með fall­byssum og þurfti ekki miklar sakir til.

Stundum engar.

Ógnarstjórnin

Í tæpt ár varð ógn­ar­stjórn Jakobína sífellt ógn­ar­legri og yfir­þyrm­andi ótti lagð­ist yfir sam­fé­lagið. Um leið óx „sið­prýði“ mið- og yfir­stétt­anna því fólk vildi ekki taka mikla áhættu, hvorki í opin­beru né einka­lífi; aldrei að vita hvar kjafta­tífur og njósn­ar­fólk ógn­ar­stjórn­ar­innar leynd­ist. Hinn strangi og siða­vandi leið­togi Jakobína, Robespi­erre, leyfði hvorki léttúð né skiptar skoð­anir; þá blasti fal­l­öxin við.

Lamandi drungi lagð­ist yfir. Allir gengu um grá­klæddir í von um að eng­inn tæki eftir þeim. Fæðandi konur voru dregnar úr sæng­inni og út á Place de la Révolution þar sem fal­l­öxin beið. Óttinn var slíkur að þegar bylt­ing­ar­verðir komu og hand­tóku ein­hvern og tróðu upp á vagn til að flytja á torgið, þá komu ást­vinir hans sér fyrir á gang­stétt­inni og fögn­uðu sem mest þeir máttu að kom­ist hefði upp um „söku­dólg­inn“.

Því annað mátti túlka sem „stuðn­ing við harð­stjóra“ kon­ungs­veld­is­ins gamla 

David undirritaði handtökuskipan Alexandres

Í mars 1794 brá svo við að Alex­andre de Beauharnais hers­höfð­ingi var hand­tek­inn, sak­aður um land­ráð, því hann þótti hafa staðið sig hraksmán­ar­lega illa í stríði sem bylt­ing­ar­stjórnin átti þá í við óvini sína í Þýska­landi. Auk þess gerði aðals­tign hans hann nú sjálf­krafa tor­tryggi­legan í augum Jakobína.

Það var málar­inn víð­frægi David sem und­ir­rit­aði hand­töku­skipan Alex­andres. Hann var þá æstur Jakobíni og bylt­ing­ar­seggur þó síðar yrði hann hirð­mál­ari keis­ar­ans.

Rose skrif­aði örygg­is­nefnd­inni og bað eig­in­manni sínum griða. Þar með voru örlög hennar sjálfrar ráðin. Nefnd­inni barst kæra um að á heim­ili hennar kæmu stundum saman „grun­sam­legir aðilar“. Tveir menn á snærum nefnd­ar­innar leit­uðu í húsa­kynnum hennar og til­kynntu reyndar að þeir fyndu ekk­ert grun­sam­legt. En það breytti engu þegar myllur Robespi­erre voru teknar að mala. Bylt­ing­ar­verðir börðu snemma morg­uns að dyrum hjá Rose.

Hún gat ekki fengið af sér að vekja börnin sín til að kveðja þau.

„Ég gat ekki afborið að sjá þau gráta,“ sagði hún seinna.

Blóðugir veggir

Hún var flutt í ill­ræmdasta fang­elsi Parísar, Les Carmes, þar sem áður hafði verið klaustur. Tæpum tveim árum fyrr höfðu bylt­ing­ar­menn framið þar grimmi­leg fjöldamorð á mörg hund­ruð föngum sem voru grun­aðir um and­stöðu við bylt­ing­una. Þetta voru aðal­lega kirkj­unnar menn og enn mátti sjá blóð­slettur á veggjum fang­els­is­ins og för eftir sverð og lurka þar sem prestar og munkar og nunnur höfðu verið hökkuð í spað í nafni frelsis, jafn­réttis og bræðra­lags.

Þarna sátu nú hund­ruð lús­ugra nið­ur­brot­inna fanga innan um rottur og mýs, sumir nærri alls­berir huldir eigin skít, sinnu­litlir og von­lausir. Aðrir báru sig furðu vel og á sam­veru­stundum fang­anna síð­degis var siður að veifa glað­lega í kveðju­skyni til þeirra sem bylt­ing­ar­verð­irnir komu til að flytja undir fal­l­öx­ina þann dag­inn.

Varla nokkur maður lifði af vist í Les Carmes þessi miss­erin. Rose gat því ekki búist við öðru en vera flutt á hverri stundu á aftöku­stað. Hún deildi klefa með mörgum öðrum konum, allt frá götu­drósum til her­toga­ynja. Það hafði verið málað yfir alla glugga svo dags­birta komst varla inn.

En þrátt fyrir allan þennan ömur­leika þá kvikn­aði þó ást innan múr­anna.

Ást, eða hvað við viljum kalla það.

Ást í fangelsinu

Alex­andre átti illa vist í Les Carmes, hann var orð­inn fár­sjúkur og vissi vel að brátt fengi haus­inn að fjúka. Samt náði hann sér í kær­ustu þar inni og naut hennar síð­ustu vik­urnar. Og það gerði Rose líka. Þarna var einn fangi sem naut nokk­urrar sér­stöðu, var í eins manns klefa, fékk góðan mat og vín og ekki var víst að yrði á end­anum höggv­inn. Þetta var korn­ungur og frægur hers­höfð­ingi, Lazare Hoche, glæsi­legur sköru­legur maður og Rose lagði snörur sínar fyrir hann. Þeim árum sem hún hafði varið til að fín­pússa þá hæfi­leika að veiða valda­mikla og/eða auð­uga karl­menn í net sín til að tryggja sér og börn­unum við­ur­væri, þeim hafði verið vel varið og þau Hoche áttu ástríðu­fullar vikur í Les Carmes í sum­ar­byrjun 1794.

En svo var hann fluttur í annað fang­elsi svo örygg­is­nefndin ætti hæg­ara með að yfir­heyra hann. Allir vissu að ef Lazare Hoche slyppi lif­andi úr greipum nefnd­ar­innar ætti hann mik­inn frama í vændum, slíkir voru mann­kostir hans og per­sónu­töfrar. Af örlögum hans segir kannski síðar en nú var hann geng­inn Rose úr greipum og von­leysið lagð­ist aftur yfir hana, líkt og hina fang­ana.

Hundurinn bar skilaboð

Eina gleði hennar fólst í örstuttum bréfum sem hún fékk stöku sinnum frá börn­unum sínum en þau þjálf­uðu smá­hund­inn hennar Fortuné til að skjót­ast inn í fang­elsið, sneiða hjá risa­vöxnum rott­unum og finna hús­móður sína og færa henni bréf­miða, falda undir hálsól­inni. Einu sinni tókst Rose og Alex­andre að múta fanga­vörð­unum til að opna glugga á fang­els­is­múr­num svolitla stund og þá höfðu Eugène og Hortense komið sér fyrir í sjón­máli við þennan glugga og öll fjögur grétu af gleði og sorg.

Seint í júlí var Alex­andre leiddur undir fal­l­öx­ina. Hann vissi hvað til stóð og þessi armi þrjótur gerð­ist nú óvænt göf­ug­lynt stór­menni á sínum hinsta degi og skrif­aði Rose fal­legt kveðju­bréf þar sem hann bað hana fyrir börnin þeirra og fór fögrum orðum um mann­kosti hennar og vin­áttu þeirra. Þetta var örvænt­ing­ar­full til­raun dauða­dæmds manns til að bjarga lífi hennar, móður barn­anna hans, en allir máttu þó vita að það væri þýð­ing­ar­laust.

Því nú hafði Robespi­erre fellt úr gildi síð­ustu leif­arnar af rétt­ar­vernd fanga örygg­is­nefnd­ar­innar. Nú mátti drepa alla, bók­staf­lega alla, án þess nokkur mætti bera við að verja sig.

„Þú verður mín hefðarmær“

Nokkrum dögum síðar komu fanga­verðir í klefa Rose og hirtu rúmbekk­inn hennar. Einn klefa­nautur hennar, her­toga­ynjan d’Aguillon, spurði hvort hún fengi ekki skárra flet í stað­inn.

„Nei, hún þarf þess ekki,“ sagði fanga­vörð­ur­inn. „Það er búið að ákveða að hún fari í fal­l­öx­ina.“

„Nei, hún þarf þess ekki,“ sagði fanga­vörð­ur­inn. „Það er búið að ákveða að hún fari í fal­l­öx­ina.“

Konurnar brustu í grát – nema Rose Tascher. Svipur hennar var stilltur þegar hún sagði öllum til stórrar furðu: „Nei, ég mun ekki deyja. Þvert á móti verð ég drottn­ing Frakk­lands.“

Engin hug­mynd var frá­leit­ari þá en að þessi lús­uga, snoð­klippta dauða­dæmda drós yrði drottn­ing Frakk­lands. Her­toga­ynjan hélt að hún hefði skyndi­lega brjálast við fréttir fanga­varð­ar­ins og ætl­aði að taka þátt í leiknum með því að segja: „Jæja góða, og ertu búin að skipa í hirð þína?“

„Já, þú verður mín aðal hefð­ar­mær,“ svar­aði Rose Tascher rólega.

Konurnar grétu enn meir.

Gömul kona stígur dans

En síðar þann sama dag gerð­ust óvænt tíð­indi. Her­toga­ynjan og Rose fengu að gægj­ast út um glugga á fang­els­inu svolitla stund og sáu gamla konu í fjarska við óvænta iðju á göt­unni.

Fyrst lyfti hún pilsum sínum. Svo þreif hún upp stein af göt­unni og vafði inn í pilsið. Svo dró hún fingur yfir háls­inn og glotti.

Loks dans­aði hún eins og gleði­dans.

Eftir svolitla stund átt­uðu kon­urnar sig á því hvaða skila­boð gamla konan var að bera.

Pils – robe. Steinn – pétur, pierre. Fing­ur­inn, skorið á háls – dauði.

Robespi­erre var dauður.

Var furða þótt gamla konan dans­aði af gleði?

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Og hún var 6 árum eldri en Napoleon en slíkt fer auðvitað ekki vel í kvikmyndaiðnaðinn enda lagðist Ridley Scott svo lágt að velja leikkonu í hennar hlutverk sem er 14 árum yngri en leikarinn sem fer með hlutverk Napoleons.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár