Kýpurfélag Lovísu sem tók yfir Tortólaeignir fjárfesti í breskum hjúkrunarheimilum

Sama félag og tók yfir Tortóla­eignir Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttur, eig­in­konu Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, slóst í hóp með Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra, og Annie Mist Þór­is­dóttur Crossfit-stjörnu og keypti ráð­andi hlut í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Kýpurfélag Lovísu sem tók yfir Tortólaeignir fjárfesti í breskum hjúkrunarheimilum
Færði félagið Í Kýp­ur­lek­anum kemur fram að Magnús hafi látið færa eign­ar­hluti af nafni eig­in­konu sinnar inn í félag í hen­anr umsjá. Stafræn fingraför hans finn­ast líka á samn­ingi um til­færsl­una. Mynd: Heimildin

Kýp­ur­fé­lag Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttir, eig­in­konu Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, sem tók yfir eign­ar­hluti hennar í Tortóla­fé­lag­inu Habitat Finance, eignum í stýr­ingu frá Sviss og arð­sömum fast­eigna­verk­efnum á Spáni, eign­að­ist árið 2018 líka hlut í breska félag­inu CHC Acquisition Limited. Félag sem stofnað var af starfs­fólki Kviku utan um fjár­fest­ingu í einka­reknum breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum. 

Það var stofnað 22. ágúst árið 2018 af Gunnari Sig­urðs­syni, starfs­manni Kviku Securities í London. Hlut­hafar í þessu breska félagi koma úr ólíkum áttum. Þar á meðal er Annie Mist Þór­is­dóttir Crossfit-stjarna, Baldur Guð­laugs­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri, sem fékk fang­els­is­dóm fyrir inn­herja­svik eftir að hafa selt hluta­bréf í Lands­bank­anum í aðdrag­anda hruns­ins, og Einar Páll Ind­riða­son, læknir og mágur Margeirs Pét­urs­sonar, stofn­anda MP banka, sem síðar sam­ein­að­ist öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og mynd­uðu Kviku banka. Til við­bótar eru í hlut­hafa­hópnum nokkur íslensk einka­hluta­fé­lög. Til að mynda félagið GT 1 ehf., dótt­ur­fé­lag GT One Trust, sem er …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leyndarmál Kýpur

Tortólasnúningur Hreiðars á Íslandi afhjúpaðist í Danmörku
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Tortóla­snún­ingur Hreiðars á Íslandi afhjúpað­ist í Danmörku

Sami maður sá um félag Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem afhjúpað­ist í Panama­skjöl­unum og fyrir Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, eig­in­konu hans, og tvær aðrar konur sem giftar eru fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum bank­ans. Ný gögn sýna hvernig pen­ingar úr aflands­fé­lögum á Tortóla flæddu í gegnum sjóðs­stýr­inga­fé­lag Arion banka og inn í íslenska ferða­þjón­ustu.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár