Svandís leggur fram drög um töluverðar breytingar á íslenskum sjávarútvegi

Tengdir aðilar verði skil­greindir með nýjum hætti í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og fyr­ir­tækjum sem skráð eru á markað verður leyft að eiga allt að 15 pró­sent af öllum afla­heim­ildum, gangi frum­varps­drög Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra eftir.

Svandís leggur fram drög um töluverðar breytingar á íslenskum sjávarútvegi
Boðar breyt­ingar Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra birti frum­varps­drögin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í dag. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Skil­greina á tengda aðila í sjáv­ar­út­vegi með sama hætti og gert er í Sam­keppn­is­lögum, gangi nýtt frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra eftir. Veiði­gjald af upp­sjáv­ar­fiski mun hækka en á móti fellur út 10 pró­sent álag sem lagt hefur verið á slíkan afla. Áætlað er að 800 millj­ónir króna til við­bótar við núver­andi tekjur af veiði­gjaldi munu skila sér í rík­is­sjóð, verði þessi breyt­ing gerð. Áætlaðar tekjur af veiði­gjöldum án afslátta er í ár 9,4 millj­arðar og 9,1 millj­arður á því næsta. 

„Stjórn­völd skortir heild­ar­yf­ir­sýn yfir það hvernig eigna- og stjórn­un­ar­tengslum er háttað milli fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.“
úr grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna

Frum­varps­drög voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í morgun. Breyt­ing­arnar sem drögin fela í sér eru umtals­verð og snerta margar hliðar þess fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfis sem nú er í gildi. Þau gera til að mynda ráð fyrir að hámarks­afla­hlut­deild útgerða geti farið upp í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár