„Bón mín er tækifæri til að sýna fordæmi og taka afstöðu gegn spillingu og arðráni. Gerðu það, ekki veita slíku skjól með beinni aðstoð þinni,“ segir í opnu bréfi leiðtoga namibísku stjórnarandstöðunnar til forsætisráðherra Íslands, sem sent var föstudaginn 10. nóvember. Þar er skorað á Katrínu Jakobsdóttur að beita sér fyrir því að Samherji hf og stjórnendur þess, verði látnir taka ábyrgð á verkum sínum í Namibíu.
McHenry Venaani, formaður stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins, PDM, segir í bréfi sínu að Samherji hafi gengt mikilvægu hlutverki í stærsta spillingarmáli í sögu namibísku þjóðarinnar, sem hafi hagt ómældan skaða í för með sér. Fyrirtækið eigi að bæta það tjón sem það hafi valdið auk þess að gera upp við sjómenn sem dæmdar hafa verið bætur eftir vinnu á skipi Samherja í Namibíu.
Í bréfinu segir Venaani að honum og fleirum blöskri það að heyra fréttir af því að íslensk stjórnvöld séu að styrkja Samherja um 100 milljónir króna, í gegnum framlög Orkusjóðs, á sama tíma og fyrirtækið og fjöldi stjórnenda og starfsmanna þess sé til rannsóknar vegna alvarlegra spillingarásakana í Namibíu og víðar. Hann skorar því jafnframt á Katrínu að draga styrk ríkisins til Samherja til baka.
Bréfið var sent síðastliðinn föstudag. Ekki hafa fengist upplýsingar um það frá forsætisráðherra hvort og þá hvernig brugðist verður við því, en þar óskar Venaani einnig eftir samtali og samstarfi um málið, sem hann hefur gagnrýnt að hafi skort af hálfu íslenskra stjórnvalda, frá því málið kom upp.
Fjögurra ára „afmæli“ Namibíumáls
Fyrr í þessum mánuði voru liðin fjögur ár síðan Kveikur og forveri Heimildarinnar, Stundin, greindu frá umfangsmikilli rannsókn sinni í samstarfi við Wikileaks, Samherjaskjölin svokölluðu, eða Fishrot á ensku. Þar steig fram Jóhannes Stefánsson, fyrrum lykilstarfsmaður Samherja í Namibíu og greindi frá hátt í eins og hálfs milljarðs króna greiðslum Samherja til stjórnmála- og áhrifamanna í Namibíu, á árunum 2012-2019, sem vitnisburður Jóhannes og fleiri gögn bentu til að væru mútur.
Tæplega helmingur þessara greiðslna fór fram eftir að Jóhannes lét af störfum hjá Samherja árið 2016. Rannsókn yfirvalda í Namibíu og á Íslandi hefur síðan leitt í ljós að ætlaðar ólöglegar greiðslur Samherja til hóps ráðherra, venslafólks þeirra og forsvarsmanna ríkisfyrirtækisins Fishcor í Namibíu, hafi numið allt að tveimur milljörðum króna á þessum sjö árum.
Í kjölfar uppljóstrunar málsins hófu yfirvöld hér á landi að rannsaka málið. Sú rannsókn stendur enn og hafa níu fyrrverandi og núverandi starfsmenn og stjórnendur Samherja stöðu sakbornings í þeirri rannsókn. Meðal annars Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og aðaleigandi Samherja, Jóhannes Stefánsson, Arna McClure, lögfræðingur Samherja og Aðalsteinn Helgason fyrrum stjórnarmaður í Samherja og framkvæmdastjóri afríkuútgerðar Samherja.
Í Namibíu hafði rannsók hafist ári fyrr, árið 2018, en hún varð til þess að þegar málið komst í hámæli voru alls tíu Namibíumenn handteknir og hafa síðan setið í varðhaldi og beðið þess að fara fyrir dóm, ákærðir fyrir fjölmörg brot, múturþægni, spillingu, fjársvik, skattsvik og brot í opinberu starfi. Í þeim hópi eru tveir fyrrum ráðherrar í ríkisstjórn Namibíu, forstjóri ríkisútgerðarinnar Fishcor og stjórnarformaður sömu útgerðar.
Réttarhöld yfir þeim eiga að hefjast í byrjun næsta árs, en samkvæmt nýlegum yfirlýsingum ríkissaksóknara í Namibíu, heldur hún enn í vonina um að henni takist að bæta þremur Íslendingum við á sakamannabekk fyrir þann tíma. Þrjá fyrrum stjórnendur Samherja í Namibíu, sem hún vill saksækja fyrir lögbrot í Namibíu. Forsenda þess er hins vegar sú að mennirnir þrír annað hvort komi sjálfviljugir fyrir dóm eða verði framseldir suðureftir.
Nokkuð sem telst harla ólíklegt. Formleg framsalskrafa hefur ekki verið lögð fram, að sögn vegna þess að enn hefur ekki verið að fullu lokið endanlega við rannsókn á mögulegum brotum Samherja og þætti stjórnenda félagsins í þeim, til að mynda vegna meintra skattalaga- og gjaldeyrisbrota í Namibíu.
Bréf namibíska stjórnarandstöðuleiðtogans til forsætisráðherra Íslands, sem barst næstum upp á dag, fjórum árum eftir að þessi mál komust í hámæli, er birt hér í heild sinni.
„Ég vona að þetta bréf hitti þig vel fyrir. Ég skrifa þér, í krafti stöðu minnar sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar á namibíska þjóðþinginu. Ég biðla til samvisku þinnar og með mikilli virðingu fyrir þínu virðulega embætti, þegar ég hvet þig til að endurskoða áður tilkynnt áform ríkisstjórnar þinnar um að veita útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Samherja 100 milljóna króna styrk til nýtingar á endurnýjanlegri orku.
Ég hef þungar áhyggjur af þætti Samherja í fjölmörgum spillingarmálum í Namibíu og hef því samband við þig. Fyrirtækið sætir ásökunum um að hafa greitt umtalsverðar upphæðir í mútur allt frá árinu 2012 til að tryggja sér óeðlilegt forskot í namibískum sjávarútvegi. Sú háttsemi fyrirtækisins hefur verið skilgreind sem mikilvægur þáttur í máli því sem nú er þekkt sem „Fishrot Saga“ á alþjóðavísu. Fórnarkostnaður þeirrar sögu er hár og sárin sem hún skóp eru enn opin í hjörtum ótal saklausra Namibíumanna. Vegna óheftrar græðgi og lögbrota Samherja hafa þúsundir sjómanna tapað atvinnu sinni og ramba á barmi örbirgðar. Áhrif þessa hafa aukist enn frekar af vegna núverandi heimsfaraldurs og eru fjölskyldur og heilu samfélögin skilin eftir í gríðarlega erfiðri stöðu.
Bón mín er tækifæri til að sýna fordæmi og taka afstöðu gegn spillingu og arðráni. Gerðu það, ekki veita slíku skjól með beinni aðstoð þinni. Þess í stað hvet ég þig til að krefjast þess að Samherji greiði þeim óteljandi namibísku sjómönnum sem misstu lífsviðurværi sitt vegna siðlausra aðgerða fyrirtækisins viðeigandi bætur. Fishrot-málið hefur haft mikil áhrif á ótal Namibíumenn. Sjómenn hafa misst vinnuna, samfélög hafa verið lögð í rúst og orðstír landsins skaðast. Umfang spillingarinnar er hreinlega yfirþyrmandi og ljóst að Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli.
Frú forsætisráðherra, ég hvet þig til að sýna siðferðilega forystu og krefjast þess að Samherji greiði bætur til þúsunda namibískra sjómanna sem misstu vinnuna vegna græðgi og lögbrota útgerðarinnar. Ég hvet þig líka til að gera allt sem í þínu valdi stendur til að tryggja að Samherji verði dreginn til ábyrgðar fyrir gjörðir sínar.
Namibíska þjóðin á skilið réttlæti. Hún á það skilið að fá það á hreint að íslensk stjórnvöld muni ekki þola spillingu. Ég hvet þig til að gera það sem er rétt og krefjast þess sem er sanngjarnt og réttlátt fyrir namibísku þjóðina. Við vonum að ríkisstjórn þín – sem er þekkt fyrir að standa að málum með ábyrgum hætti og samkvæmt góðum venjum, endurskoði ákvörðun sína – beiti sér fyrir því sem er sanngjarnt og réttlátt, og leiti bóta til handa namibísku þjóðinni sem hefur þurft að þjást vegna vítaverðrar framkomu Samherja.
Forsætisráðherra, ég leyfi mér að ítreka að ég met þig mikils og bíð eftir jákvæðum viðbrögðum þínum í þessum efnum.“
Athugasemdir (4)