Lífríki og ásýnd yrði fyrir „stórskaða“ með brú yfir sundin

Íbúa­sam­tök Graf­ar­vogs segj­ast fagna því að loks­ins eigi að hefj­ast handa við gerð Sunda­brautar en eru afar ósátt við að Vega­gerðin setji aðeins fram einn val­kost, þver­anir víka og voga á fyll­ingum og brúm, á við­kvæm­asta hluta leið­ar­innar. Þau krefj­ast þess að göng alla leið verði tekin til skoð­unar.

Lífríki og ásýnd yrði fyrir „stórskaða“ með brú yfir sundin
Þverun sund­anna Þverun á fyll­ingum og brú er eini val­kost­ur­inn sem Vega­gerðin setur fram fyrir Sunda­braut allt frá Gufunesi og yfir á Kjal­ar­nes. Mynd þessi var sýnd á kynn­ing­ar­fundum um fram­kvæmd­ina í haust. Hún byggir á eldri hug­myndum um útfærslur en getur þó, að sögn Vega­gerð­ar­innar, gefið ein­hverja hug­mynd um umfang mann­virkja. Mynd: Vegagerðin

Íbúa­sam­tök Graf­ar­vogs krefj­ast þess að umhverf­is­á­hrif jarð­ganga frá Gufunesi og yfir á Álfsnes verði metin til jafns við þver­anir og brýr í umhverf­is­mati Sunda­brautar. Vega­gerðin rifjar hins vegar upp í nýrri mats­á­ætlun að mögu­leikar á jarð­göngum á þeirri leið hafi verið metnir áður og að hæð­ar­lega þeirra hafi reynst mjög erfið. Jarð­ganga­lausnir séu því aðeins taldar koma til greina undir Klepps­vík. Þá sé kostn­aður við jarð­göng 2,5-3,5 sinnum hærri en fyrir veg á yfir­borði. „Lausn­irnar eru því mjög dýrar og því lík­lega með nei­kvæða arð­semi,“ segir í mats­á­ætl­un­inni.

Enda er vegur á yfir­borði allt frá Gufunesi og yfir Kolla­fjörð, á landi, land­fyll­ingum og brúm, eini val­kost­ur­inn sem Vega­gerðin áformar að taka til mats á umhverf­is­á­hrifum Sunda­brautar.

„Um leið og við fögnum því að loks­ins eigi að hefja gerð Sunda­brautar viljum við gera alvar­legar athuga­semdir að ekki sé gert ráð fyrir öðru en þver­unum frá Gufunesi í Gunnunes sem ögrar miklu nátt­úru­vernda­gildi svæð­is­ins, enda er það frið­lýst, sem og lífs­gæðum íbúa,“ segir í ítar­legri umsögn Íbúa­sam­taka Graf­ar­vogs við mats­á­ætl­un­ina.  

Samtökin benda á að á sínum tíma, er Sunda­braut var síð­ast til alvar­legrar skoð­unar fyrir hrun, hafi þau átt full­trúa í sam­ráðs­hópi um verk­efnið. Þá hafi hins vegar 2. og 3. hluti fram­kvæmd­ar­innar, þ.e. frá Gufunesi að Kjal­ar­nesi, aldrei verið kynntir. Hluti þeirrar leiðar er einmitt innan vin­sælla úti­vist­ar­svæða í Graf­ar­vogi sem og um Geld­inga­nes sem einnig er í dag nýtt til úti­vistar. Gera sam­tökin alvar­legar athuga­semdir við áformin nú, gefa þurfi líf­ríki og ásýnd svæð­is­ins gaum enda gæti það orðið fyrir „stór­skaða“ ef málin verða ekki skoðuð til hlítar.

Í umsögn sam­tak­anna er rifjað upp að í sam­ráðs­hópnum á sínum tíma hafi verið unnið arð­sem­is­mat sem „sýndi svart á hvítu“ að jarð­göng frá Gufunesi og undir Klepps­vík, sem kæmu upp við Kirkju­sand, væru arð­bær­ust. „Það sem hefur gerst í milli­tíð­inni er að borg­ar­yf­ir­völd hafa gert allt til að koma í veg fyrir að besta leiðin væri farin,“ segja sam­tökin.

Eins segj­ast sam­tökin ítrekað hafa gert athuga­semdir við að borg­ar­yf­ir­völd virð­ist mark­visst hafa unnið að því að koma í veg fyrir Sunda­braut með að skipu­leggja íbúða­byggð í áform­uðu vegstæði hennar í Gufunesi. „Þannig að nú á að etja íbúum saman sem kjósa bíl­lausan lífs­stíl við þjóð­braut,“ skrifa sam­tökin í umsögn sinni. „Þetta vissi borgin.“

Göng eða brúÁ kort­unum eru sýndir val­kostir um leiðir Sunda­brautar um Gufufnes eftir því hvort göng eða brú yfir Klepps­vík yrði fyrir val­inu. Brautin færi svo, sam­kvæmt eina val­kosti Vega­gerð­ar­innar, á fyll­ingu út í Geld­inga­nes og á fyll­ingu og brú yfir í Gunnunes.

Ein helsta athuga­semd íbúa­sam­tak­anna snýr að skorti á val­kostum á við­kvæm­asta hluta fram­kvæmd­ar­innar, þ.e. út í Geld­inga­nes og þaðan á fyll­ingum og brúm út í Gunnunes. „Að þar sem að mest áhrif hefur á umhverfið sé ein­ungis gert ráð fyrir þver­unum og brúm, versta mögu­lega kosti ólíkt því sem á við um fyrsta verk­hlut­ann.“

Samtökin leggja því til að Skipu­lags­stofnun geri kröfu um að í næsta skrefi umhverf­is­mats verði áhrif jarð­ganga til jafns við þver­anir og brýr tekin til mats.

Við mat á umhverf­is­á­hrifum Sunda­brautar frá Gufunesi í Gunnunes sé nauð­syn­legt að horfa til tveggja þátta: Nátt­úru­verndar og mik­il­vægi hennar fyrir íbúa  og hljóð­vistar byggð­anna við fram­kvæmda­svæði í Gufunesi, Borgum, Víkum, Stað­ar­hverfi og Mos­fellsbæ. „Nátt­úru­vernd er hvergi mik­il­væg­ari en í nágrenni við þétt­býli,“ segir svo í umsögn­inni. „Gildi óspilltrar nátt­úru fyrir lífs­gæði íbúa og vellíðan verða seint ofmetin og er það stutt fjölda rann­sókna.“

Munni á Laug­ar­nesiMeðal kosta sem skoð­aðir hafa verið, og Íbúa­sam­tök Graf­ar­vogs skilja ekki í að komi ei lengur til greina, er að munni Sunda­ganga kæmi upp á land­fyll­ingu við Kirkju­sand.

Blika­staða­kró og Leiru­vogur hafi verið frið­lýst árið 2022 eftir ára­langa bar­áttu íbúa og ann­arra vel­unn­ara.  Svæðið sé alþjóð­lega mik­il­vægt fugla­svæði, þar búi um 20 land­selir og að auki sé það eitt helsta róðr­ar­svæði íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu enda Kayakklúbb­ur­inn með aðstöðu í nágrenn­inu. Góðir göngu­stígar umlyki frið­lýsta svæðið þar sem þús­undir manna njóta návistar við nátt­úr­una án umferð­ar­skarkala. „Allir þessir þættir munu verða fyrir miklum nei­kvæðum og óaft­ur­kræfum afleið­ingum af þver­unum,“ segja Íbúsamtök Graf­ar­vogs. „Með því að leggja Sunda­braut með þver­unum og brúm er hljóð­vist íbúa ógnað þar sem umferð­ar­há­vaði magn­ast við að skella á hafflet­inum.“

Loks benda sam­tökin á þau nei­kvæðu áhrif sem þver­anir fjarða, víka og voga hafa á líf­ríki innan þeirra þar þær loki fyrir eðli­leg sjó­skipti á sjáv­ar­föllum. „Slíkt hefði sér­stak­lega alvar­legar afleið­ingar í Blika­staða­kró og Leiru­vogi vegna þess hversu grunnar vík­urnar eru.“

Með til­liti til allra þess­ara þátta gera íbúa­sam­tök Graf­ar­vogs kröfu um að umhverf­is­á­hrif jarð­ganga verði metin til jafns við þver­anir og brýr í umhverf­is­mati Sunda­brautar.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Þessi áætlun virðist ekki taka fyrir samfélagslega þætti.
    Það vekur furðu að hin ótrúlega nýting og upphefð samfélags í Gufunesi skuli ekki metið að verðleikum.
    Þar á ég við kvikmyndaver á heimsmælikvarða sem hefur gert ótrúlega hluti fyrir samfélagið og við fengið að njóta í mörgum viðburðum. Fyrir utan starfsemi sem hefur halað ómældu inn í samfélagið, þá má ekki gleyma því sem mörlandinn virðist njóta, Eurovision.
    En hvers vegna borgin reisti húsnæði fyrir þurfandi í nándinni veit ég ekki.
    Þó svo að örugglega flestir hafi leynda getu til ýmissa verka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sundabraut

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár