Allir fiskarnir sárugir eða dauðir hjá Arctic Fish: „Það hefur enginn séð svona áður“

Veiga Grét­ars­dóttir, kajakræð­ari og nátt­úru­vernd­ar­sinni, tók mynd­bönd af lús- og bakt­er­íuétnum löxum í sjó­kvíum Arctic Fish í Tálkna­firði. Hún vissi ekki hvernig ástandið í kví­unum væri þegar hún byrj­aði að mynda við­brögð Arctic Fish við laxalúsafar­aldri í firð­inum nú í haust. Karl Steinar Ósk­ars­son, hjá MAST segir sam­bæri­legar aðstæður aldrei hafa komið upp í íslensku sjó­kvía­eldi.

Sýktir, deyjandi, dauðir Myndbönd Veigu Grétarsdóttur sýna að allir eldislaxarnir í sjókví Arctic Fish voru sýktir af lús og eð sár ofan á hausnum. Sumir voru augljóslega deyjandi - eins og laxinn sem liggur á hliðinni fyrir miðri mynd - á meðan aðrir voru dauðir.

„Þess vegna er verið að farga þeim öllum. Það hefur eng­inn séð svona áður. Það er norskur dýra­læknir sem hefur verið að vinna hér á landi út af þessu og hann hefur aldrei séð svona á 30 ára ferli sínum,“ segir Karl Steinar Ósk­ars­son, sviðs­stjóri fisk­eldis hjá Mat­væla­stofnun (MAST) aðspurður um mynd­bönd sem sýna stöð­una á sjó­kvíum Arctic Fish í Tálkna­firði. Allir eld­is­lax­arnir í sjó­kví­unum eru sárugir vegna laxalúsar og bakt­ería sem kom­ast í sárin á roði fiskanna og éta þá upp þar til þeir verða veik­burða og drep­ast á end­anum. 

Heim­ildin birtir hér hluta mynd­band­anna af dauða­stríði eld­is­lax­anna sem Veiga Grét­ars­dóttir tók í Tálkna­firði fyrir nokkrum dögum. 

Fór í sjokk þegar hún sá mynd­böndinVeiga Grét­ars­dóttir vissi ekki að ástand eld­is­lax­anna í sjó­kvíum Arctic Fish væri svona slæmt þegar hún byrj­aði að taka mynd­böndin upp. Hún seg­ist hafa farið í sjokk þegar hún átt­aði sig á því að allir eld­is­lax­arnir voru sárugir eða dauðir.

Að minnsta kosti milljón laxar hafa drepist eða verið fargað

Um milljón eld­is­laxar hafa drep­ist, eða þeim hefur verið fargað, vegna laxalús­ar­innar sem kom upp í sjó­kvíum hjá Arctic Fish og Arn­ar­laxi í Tálkna­firði, segir Karl Steinar. Fyr­ir­tækin hafa sjálf greint frá því að þau séu að berj­ast við afleið­ingar laxalús­ar­innar. Karl Steinar segir að um sé að ræða fyrsta til­fellið í sögu íslensks lax­eldis þar sem slíkt laxalúsa­vanda­mál hefur komið upp. „Þetta er fyrsta skipti og menn hafa aldrei séð þetta áður. Menn eru bara að reyna að bregð­ast við eins og þeir geta.“ 

Karl Steinar segir að engar stað­festar upp­lýs­ingar liggi fyrir um hvernig laxalúsin komst í kví­arnar hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum. Eitt sem er til skoð­unar er hvort hún hafi borist með hnúð­laxi en að ekk­ert sé hægt að full­yrða um þetta að svo stöddu. 

Heim­ildin sendi Daníel Jak­obs­syni hjá Arctic Fish spurn­ingar um laxalús­ina og -dauð­ann í Tálkna­firði en hann svar­aði þeim ekki. Eina svarið sem kom frá Arctic Fish var að vegna lúsa­á­lags í Tálkna­firði hefði fyr­ir­tækið einnig hafið slátrun á eld­is­laxi á annarri stöð fyr­ir­tæk­is­ins í Tálkna­firði.

Enn er að verið að farga upp úr lúsa­sýktum kvíum Arctic Fish í Tálkna­firði - búið er að klára förgun hjá Arn­ar­laxi - segir Karl Steinar. Búist er að við að förgun á eld­is­löx­unum vegna lús­ar­innar ljúki fyrir helgi, segir hann. 

Hröð atburðarás í október

Karl Steinar segir að end­an­legar tölur um dauða eld­is­laxa vegna lús­ar­innar muni ekki liggja fyrir fyrr en um miðjan nóv­em­ber en að í lok sept­em­ber hafi verið um milljón eld­is­laxar í kví­unum þar sem laxalúsin kom upp. 

Karl Steinar segir að þessi þróun hjá Arctic Fish hafi verið mjög hröð nú októ­ber. „Í þessi sár sem að laxalúsin veldur koma bakt­er­íur sem vinna mjög hratt á fisknum. Fisk­ur­inn verður mátt­lít­ill og deyr. Þetta ger­ist á tveggja vikna kafla í októ­ber. Hann er sára­laus en tveimur vikum seinna er hann orð­inn svona. Það er því ekki bara lúsin sem étur fisk­inn inn að beini heldur er þetta sam­bland af laxa­lús og bakt­er­íum.“

Hann segir að vegna þess hversu hröð atburða­rásin var hafi Mat­væla­stofnun heim­ilað Arctic Fish að fá hingað til lands dælu­skipið Hordafor frá Noregi til dæla dauðum eld­is­laxi upp úr kví­unum og farga lax­inum þar sem útbreiðsla laxalús­ar­innar er sem mest. 

„Þeir eru étnir lif­andi þarna í þús­unda­tali“
Veiga Grét­ars­dóttir,
kajakræð­ari og nátt­úru­vernd­ar­sinni sem tók mynd­böndin

Myndböndin sem sýna laxadauðann

Veiga Grét­ars­dóttir, kajakræð­ari og nátt­úru­vernd­ar­sinni sem á í sam­starfi við nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Icelandic Wildlife Fund og Vernd­ar­sjóð villtra laxa­stofna (NASF), var í Tálkna­firði í lok síð­ustu viku og tók upp mynd­bönd af laxa­dauð­anum og -förg­un­inni hjá Arctic Fish. „Ég var í Tálkna­firði, sirka þrjá kíló­metra frá kví­unum, setti drón­ann á loft og byrj­aði bara að fljúga yfir þær. Ég var með dróna sem er með þremur linsum, meðal ann­ars tvær zoom-linsur, og gat bara verið í hæfi­legri fjar­lægð frá kví­unum,“ segir Veiga þegar hún lýsir því hvernig hún tók mynd­bönd af lús- og bakt­er­íuétnum eld­is­löxum í kví Arctic Fish í Tálkna­firði. Hún seg­ist hafa flogið drón­anum niður í 100 metra hæð yfir sjó­kví­unum til að ná myndefn­inu.

Veiga hefur áður tekið mynd­bönd af sköð­uðum eld­is­löxum í sjó­kvíum á Íslandi og einnig af hafs­botn­inum undir sjó­kvíum hér við land. 

Laxinn fer í dýrafóður

Þegar hún kom í Tálkna­fjörð sá hún báta við kví­arnar, meðal ann­ars erlent dælu­skip, Hordafor, sem notað hefur verið ítrekað til að taka dauðan eld­is­lax úr sjó­kvíum hér við land, sigla með hann til Noregs þar sem melta - dýra­fóður - er gert úr honum. Dælu­skipið vinnur þannig að barki er settur ofan í kvínna og dauðum fiski sem leggst á botn neta­pokans er dælt upp og í skipið. Vegna þess að svo mikið er af dauðum laxi í kví­unum sem Veiga tók mynd­bönd af þá kemur fita og grútur upp á yfir­borðið og sést þetta vel á mynd­bönd­unum frá henni.

Karl Steinar segir að bannað sé að nota fisk sem er sjálf­dauður eða hefur verið fargað til mann­eldis. Hann segir að lax­inn séu not­aður í dýra­fóður eftir að Hordafor hefur flutt hann í burtu til vinnslu. Sjálf­dauði lax­inn er not­aður í loð­dýra­fóður á meðan lax­inn sem er fargað fer í gælu­dýra­mat. 

„Sjokkið“ þegar hún sá ástandið í kvíunum

Veiga vissi hins vegar ekki neitt um það hvernig myndefnið sem hún næði myndi vera þegar hún byrj­aði að taka upp með drón­anum. „Nei, nei, nei. Ég vissi bara að það var verið að slátra og dæla fiski upp úr kvíum. Svo kom bara þetta sjokk.“ 

„Sjokkið“ sem hún vísar til að hún hafi orðið fyrir, er vegna þess að „allir“ eld­is­lax­arnir sem sjást á mynd­skeið­unum voru lús- og bakt­er­íuétnir. „Hver og einn ein­asti. Þegar ég sá þetta zoomaði ég alltaf lengra og lengra inn. Ég gat bara ekki hætt að mynda, þetta var svo skelfi­legt. Ég man ekki eftir því að hafa séð einn heil­brigðan fisk. Ég hef aldrei séð annað eins. Þarna voru fiskar að synda hver á annan, fiskar að synda utan í kvínna og svo voru dauðir fiskar,“ segir Veiga. 

Þrjú stig dauðaferlisins

Eitt af því sem merki­legt við mynd­böndin frá Veigu er að eld­is­lax­arnir eru á þremur mis­mun­andi stigum dauða­ferl­is­ins. Enginn þeirra er heil­brigður og ósár­ugur.  „Þeir eru étnir lif­andi þarna í þús­unda­tali,“ segir hún.

Mikill meiri­hluti eld­is­lax­anna sést synd­andi um með sár eftir laxa­lús ofan á höfð­inu.

Svo sjást eld­is­laxar sem eru í dauða­teygj­unum, eru byrj­aðir að snú­ast á hlið­ina og missa mátt þannig að kvið­ur­inn á þeim er allur sýni­legur á dróna­skot­unum. 

Loks sjást dauðir eld­is­laxar fljót­andi á yfir­borð­inu eða rétt undir því.

Það sem mynd­böndin geta hins vegar ekki sýnt eru dauðu lax­arnir sem hafa sokkið til botns og liggja á botni kví­ar­innar. Sá dauði er undir yfir­borð­inu. 

Karl Steinar segir aðspurður að vinna sé hafin hjá MAST til að tryggja að slíkar aðstæður komi ekki aftur upp í íslensku lax­eldi. „Við munum leggja til leiðir til að tryggja það að svona lagað ger­ist ekki aftur. Meðal þeirra er að lax­eld­is­fyr­ir­tækin komi sér upp betri bún­aði til að bregð­ast við laxalúsinni ef hún kemur upp.“

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Græðgi.is
    0
  • Laurence Brown skrifaði
    There is NO efficient way to control sea lice in farmed salmon in open sea pens. Mowi have been farming salmon in Scottish waters since the 1980's and destroying the native salmon populations as a result. Just look at Scottish salmon fishing returns over the last 40 years.
    Mowi have tried pouring toxic chemicals such as Formalin over the salmon, introducing lump fish and wrasse to eat them and passing the fish through warm water treatments all in a vain attempt to control sea lice. The fact is that any animal farmed so intensively will promote the multiplication of parasites within the system. These sea lice do not only damage and kill the farmed salmon, their progeny disperse into the environment and attach to juvenile salmon (smolts) causing them to die also.
    Scotland has failed to do anything to control the environmental damage caused by salmon farming in it's own territorial waters and the recreational salmon fishing industry in Scotland has been decimated as a result. I find it unbelievable that Iceland with it's pristine environment and when recreational salmon fishing bring in such economic advantages to the country, has allowed salmon farming to be started.
    You have already seen escaped farmed salmon entering your salmon rivers this year and doing untold damage to the genetics of the native salmon population.
    This has probably been happening in Scotland for years as well, but unfortunately our rivers are not as crystal clear to be able to witness it.
    Kick these environmental terrorists out of your territorial waters before your salmon populations go the same way as Scotlands!
    4
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er greinilegt að það er slælega fylgst með fiskinum í kvíunum. Líklega ekki í verkahring áhafnanna á fóðurprömmunum.
    1
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Sorgarsaga um flumbrugang Íslendinga.
    3
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Djöfuls ógeð að sjá þetta
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Meiri hryllingurinn!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár