Er ég orðin geðveik?

Konur vilja stundum ekki kann­ast við að vera með ein­kenni breyt­inga­skeiðs­ins. Sumar þjást í ein­rúmi og halda jafn­vel að þær séu að missa vitið. Hér er rýnt í ein­kennin og jafn­framt rætt við tvo sér­fræð­inga; Stein­unni Krist­björgu Zophoníasdóttur ljós­móður sem er sér­hæfð í breyt­inga­skeið­inu og líka Unni Önnu Valdi­mars­dóttur, aðal­rann­sak­anda lang­tíma­rann­sókn­ar­innar Áfalla­saga kvenna. Getur verið að konur með áfalla­sögu séu ber­skjald­aðri á breyt­inga­skeið­inu?

Er ég orðin geðveik?

Breyt­inga­skeiðið minnir að því leyti á kyn­þrosk­ann að umbreyt­ingar lík­am­ans geta koll­varpað vit­und­inni.

Kvíði læð­ist að konu, stundum svo ágengur að hann minnir á sæng­ur­kvenna­grát. Óróinn yfir­tekur hugs­anir og gerir þannig veru­leik­ann annan en hann var. Það rökkvar í huga ann­ars bjart­sýnnar mann­eskju.  

Allt í einu er konan hætt að geta sofnað á kvöldin, hún byltir sér and­vaka, í hita­kófi sem er eins og búið sé að stað­setja sánu­bað inni í lík­am­anum. Hún stress­ast ekki bara út af þrá­hyggjuk­endum hugs­unum knúnum áfram af kvíða, heldur líka þreytu­verkjum í vöðv­unum sem fá hana til að halda að hún sé komin með gigt. Þegar verst lætur líður henni eins og hún sé orðin 87 ára nema hún er ekki á öldr­un­ar­heim­ili að hvíla lúin bein. Þvert á móti bíða hennar krefj­andi verk­efni morg­u­dags­ins og til­hugs­unin um þau kyndir enn frekar undir kvíð­anum.

Heilaþoka og gleymska

Þegar konan vaknar á undan vekjara­klukk­unni, jafn­vel …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár