Þingmaður mætti undir áhrifum í þáttinn

Egill Helgason henti einu sinni klukku út í sal eftir að lokað var fyrir útsend­ingu á Silfri Egils. Guðni Ágústs­son keyrði Egil heim eftir á og róaði hann.

Þingmaður mætti undir áhrifum í þáttinn
Hringdi í for­mann Einhvern tím­ann þurfti Egill að hringja í flokks­for­mann og biðja hann um að leysa af þing­mann sem kom í þátt­inn til hans undir áhrifum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ýmislegt gerð­ist við fram­leiðslu á Silfri Egils, sem síðar tók upp nafnið Silfrið þegar umsjón­ar­mönnum þátt­ar­ins fjölg­aði, sem rataði ekki fyrir framan mynda­vél­arnar. 

Egill Helgason, sem hefur stýrt þætt­inum frá upp­hafi, en er nú hættur, segir frá því í for­síðu­við­tali við Heim­ild­ina að eft­ir­minni­leg­ustu upp­á­komurnar, góðar og slæmar, hafi verið þegar hann varð sjálfum sér til skammar á ein­hvern hátt. „Þegar ég var á Skjá einum skáru þeir á þátt­inn því hann var orð­inn of langur. Það var aldrei hægt að fá mig til að fara úr loft­inu svo þeir bara lok­uðu allt í einu. Í reiði­kasti henti ég út í sal klukku og könnu sem brotn­aði, og Guðni Ágústs­son keyrði mig heim og róaði mig,“ en Guðni hafði verið gestur í þætt­inum.

Síðan kom fyrir að fólk mætti í settið undir áhrifum áfengis. „Ég man eftir fólki sem kom fullt. Það gerð­ist alveg fyrstu árin að fólk mætti kannski undir áhrifum frá því kvöldið áður. Þetta var svo­lítið villt þarna á Skjá einum. Einhvern tím­ann þurfti ég að hringja í flokks­for­mann og biðja hann um að leysa af þing­mann sem kom undir áhrifum,“ segir Egill, sem vill ekki nefna nein nöfn. Þetta hafi síðan verið mun sett­legra þegar þátt­ur­inn var kom­inn á RÚV og engum datt í hug að mæta fullur þangað. 

Eftir hrunið var Silfrið mik­ill brenni­punktur fyrir alla umræðu því tengdu. Egill segir það hafa verið spenn­andi og skemmti­legan tíma. „Það var upp­gjör í gangi. Ég myndi aldrei segja að allt sem maður hafi gert á þessum tíma hafi verið full­komið, því margt var gert í hita leiks­ins og þegar ég horfi til baka var kannski ekki allt stór­kost­lega snið­ugt. En þetta var spenn­andi tími og í raun var svo­lítið erfitt þegar honum lauk. Þegar þreytan kom. Eftir 2013 var komin mikil þreyta. Þá voru þegar orðin mikil von­brigði með vinstri stjórn­ina, og allt ein­hvern veg­inn end­aði í þreytu og stagli. Þarna voru sam­fé­lags­miðl­arnir líka komnir inn með sína teg­und af póli­tískri umræðu sem eitr­aði póli­tík­ina, pólaríser­aði hana og lok­aði fólk inni í sínum berg­máls­hellum. Ég sakna tím­ans fyrir þessa umbreyt­ingu. Fólk er lokað af í sínum heimi og þessir heimar tala lítið saman. Fyrir vikið verður umræðan svo lít­il­fjör­leg og bara leið­in­leg.“

Áskrif­endur geta lesið við­talið við Egil í heild sinni hér. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Viðtal

„Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur“

Egill Helgason er á tíma­mótum. Hann er hættur með Silfrið sem lengi var kennt við hann sjálfan, helsta póli­tíska umræðu­þátt lands­ins. Hann seg­ist í upp­hafi hafa skolfið eins og lauf í vindi þegar hann var í sjón­varpi en elski nú að vera í beinni. Egill kynnt­ist eig­in­konu sinni á nekt­ar­stað og þau eign­uð­ust son ári síðar. Hann rifjar upp þegar ölv­aður þing­maður mætti til hans í settið og þegar hann fleygði vatns­könnu út í sal í reiði­kasti. Egill hefur háð sína glímu við kvíða og þung­lyndi, og upp­lifði sinn versta tíma þegar Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

16 mín. lestur

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár