Lát þína ásjónu lýsa yfir mig

Sófa­kartaflan rýnir í nýj­ustu þátta­röð­ina af Glow-Up ...

Lát þína ásjónu lýsa yfir mig

Áhuga­fólk um förðun og fag­urt hand­bragð athugið: Nýjasta þátta­röðin af Glow-Up er dottin í hús. Ótrúlegt hæfi­leika­fólk úr öllum borgum, sveitum og skírum Stóra-Bret­lands og Írlands er sam­an­komið í full­búnu smink­her­bergi. Öll eru þau til í slag­inn og spennt að keppa um tit­il­inn „Best í sminki“. Einn helsti kostur þátt­anna er sá að í Glow-up fá introvertar jafnt sem extrovertar og extra­extrovertar, stelpur, strákar og stálp, að láta ljós sitt skína í umhverfi þar sem þeirra kyn, kyn­vit­und og kyntján­ing eru jafn sjálf­sögð og fót­bolti og átt­haga­kórar í öðru umhverfi.

Dómarar þátt­anna eru sem endranær; smink­drottn­ingin Val Garland, yfir­skeggj­aði förð­un­ar­fræð­ing­ur­inn Dominic Skinner ásamt langri strollu af gesta­dóm­urum. Dokum þó aðeins við, getur verið að þetta sé fjórða sería og þriðji þátta­stjórn­and­inn tek­inn við? Hvað varð um hina geð­þekku ung­frú Jama? Einhver er nú starfs­manna­veltan hjá breska RÚV.

Fleiri mik­il­vægar spurn­ingar brenna á vörum áhorf­enda: Munu nýju kepp­end­urnir stand­ast álagið eða bug­ast? Ætlar Val að brjóta odd af oflæti sínu, píra augun bak við gler­augun og mæla töfra­orðin: „Ding, dong, dar­l­ing“ (DDD á Glow-up-ísku útleggst sem: „Vá, fram­úr­skar­andi vinnu­brögð!“)? Þessi upp­hrópun er af sama meiði og Hollywood handa­bandið úr þátt­unum The Great British Bake Off. Ef Paul Hollywood tekur í spað­ann á kepp­anda þýðir það að við­kom­andi hafi farið fram úr öllum vænt­ingum. Bretar virð­ast greini­lega vera mjög hrifnir af því að aðla fólk með ýmsu móti.

Þættir af þessu tagi eru flokk­aðir sem raun­veru­leika­þættir. Að mínu mati er raun­veru­leika­sjón­varp í sinni tær­ustu mynd þegar við fáum að fylgj­ast með lífi og lífs­ins sorgum fólks og stjörnur þátt­anna reyna að vera áhuga­vert sjón­varps­efni. Frægast er lík­lega mæðra­veldið Kar­dashian. Sú keppni snýst bara um áhorfs­tölur og kapp­hlaup lífs­gæð­anna. Glow-Up eru að mínu mati ekki meiri raun­veru­leika­þættir en til dæmis Gettu betur. Kepp­endur eru raun­veru­legt fólk í báðum til­vikum.

Við fáum að heyra bak­sögur þeirra á milli þess sem þeir leysa þrautir eða keppa í hæfni. Munurinn er aðal­lega sá að Gettu betur fólkið deilir ekki erf­iðum lífs­reynslu­sögum með áhorf­endum líkt og Glow-up kepp­endur gera. Kannski væri áhuga­vert að hlusta á áfalla­sögur á milli hraða­spurn­inga­hlut­ans og bjöllu­spurn­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár