Mynd: Austurfrétt/Gunnar

Vinstri græn mælast með minnst fylgi allra flokka á Alþingi

Mið­flokk­ur­inn mælist nú stærri en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem hefur ekki mælst minni í þrjú ár. Rétt um þriðj­ungur lands­manna styður rík­is­stjórn­ar­flokk­anna sem er ein­ungis sex pró­sentu­stigum meira en fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar um þessar mundir. Rík­is­stjórn hefur því þing­vet­ur­inn í mik­illi brekku.

Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist með 5,9 pró­sent fylgi í nýj­ustu skoð­ana­könnun Gallup sem RÚV birti í gær­kvöldi. Bætt staða ann­arra flokka milli mán­aða og fylgis­tap Vinstri grænna gerir það að verkum að flokk­ur­inn er nú sá flokkur á Alþingi sem mælist með minnst fylgi. Það hefur ekki gerst síðan í des­em­ber 2015 að Vinstri græn vermi það sæti, en þá voru líka fimm flokkar á þingi. Í dag eru þeir átta. Eini flokk­ur­inn sem mælist með fylgi í könn­unni sem færri segj­ast ætla að kjósa er Sós­í­alista­flokkur Íslands, með 4,4 pró­sent fylgi, en hann náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum. 

Fylgi Vinstri grænna hefur nú verið undir tveggja stafa tölu síðan í maí í fyrra í könn­unum Gallup og mælist í annað skipti í sög­unni undir sex pró­sentu­stigum. Fyrra skiptið var í maí á þessu ári þegar Vinstri græn fengu verstu mæl­ingu sína frá upp­hafi, en þá sögð­ust ein­ungis 5,7 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa flokk­inn. Vinstri græn eru nú ansi nálægt fimm pró­sent mark­inu, en ef flokkar fara undir það þá fá þeir ekki upp­bót­ar­þing­menn þótt ekki sé úti­lokað að slíkt fylgi geti skilað kjör­dæma­kjörnum þing­manni.

Staða hinna stjórn­ar­flokk­anna er heldur ekki beysin enda hefur sam­eig­in­legt fylgi Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks aldrei mælst lægra síðan að þeir mynd­uðu rík­is­stjórn haustið 2017. Í dag segj­ast 34,5 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa þessa þrjá flokka ef kosið yrði í dag. Það 19,8 pró­sentu­stigum minna fylgi en þeir fengu sam­an­lagt í kosn­ing­unum 2021. Stjórn­ar­flokk­arnir hafa því tapað 36 pró­sent af fylgi sínu á fyrstu tveimur árum kjör­tíma­bils­ins, sem er hálfnað síðar í þessum mán­uði.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nán­ast sá sami og sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna sem hana mynda, eða 34 pró­sent. 

Ekki lengur best að kjósa Framsókn

Það þarf að leita þrjú ár aftur í tím­ann, til sept­em­ber 2020, til að finna jafn slaka mæl­ingu á fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins og í ágúst. Nú segj­ast 7,5 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa flokk­inn sem fékk 17,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum. Það þýðir að hann hefur tapað 9,8 pró­sentu­stigum af fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. 

Annað sem vekur athygli er að fylgi Mið­flokks­ins – flokks sem stofn­aður var utan um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir að hann tap­aði for­manns­slag þar – mælist nú meira en fylgið Fram­sóknar, eða 8,7 pró­sent. Það er mesta fylgi sem sá flokkur hefur mælst með síðan í des­em­ber 2020 sem var líka síð­asta skiptið sem flokkur Sig­mundar Davíðs mæld­ist stærri en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í könnun Gallup. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var að mæl­ast í kringum kjör­fylgi í fyrra haust, þegar kann­anir Gallup sýndu hann enn stærsta flokk lands­ins með í kringum 24 pró­sent fylgi. Það hefur hins vegar dalað á þessu ári og nú mælist hann reglu­lega með 21-22 pró­sent fylgi hjá Gallup. Í nýj­ustu könn­un­inni var það 21,1 pró­sent. 

Samfylkingin stöðugt stærst

Áttunda mán­uð­inn í röð mælist Sam­fylk­ingin stærsti flokkur lands­ins. Fylgi hennar stendur nán­ast í stað milli mán­aða og mælist 28,5 pró­sent. Fylgi flokks Kristrúnar Frosta­dóttur er nú meira en sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna og nán­ast það sama og sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar. Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig 18,6 pró­sentu­stigum af fylgi á fyrri hluta kjör­tíma­bils­ins sem er litlu minna en það fylgi sem stjórn­ar­flokk­arnir hafa sam­eig­in­lega tapað á sama tíma. Önnur leið til að líta á stöð­una er að horfa á að Sam­fylk­ingin mælist nú með ein­ungis sex pró­sentu­stigum minna fylgi en allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír til sam­ans.

Eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn, utan áður­nefndra Mið­flokks og Sam­fylk­ingar, sem mælist með meira fylgi í dag en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum eru Píratar. Sú aukn­ing er þó lítið, flokk­ur­inn fékk 8,6 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber­lok 2021 en mælist nú með 10,3 pró­sent. Mið­flokk­ur­inn, sem virð­ist sækja fylg­is­aukn­ingu til kjós­enda­hópa sem áður studdu Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hefur hins vegar aukið fylgi sitt um rúm­lega 60 pró­sent á tveimur árum. 

Viðreisn virð­ist nokkuð föst í 7-8 pró­sent fylgi – síð­asta mæl­ing skilar flokknum 7,2 pró­sentum – sem er undir kjör­fylgi. Sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem hefur tapað mestu fylgi á kjör­tíma­bil­inu, 2,5 pró­sentu­stigum, er Flokkur fólks­ins sem mælist nú með 6,3 pró­sent fylgi. Það er þó mesta fylgi sem flokkur Ingu Sæland hefur mælst með á þessu ári. 

Fjögurra flokka stjórn sennilegust

Frá byrjun tíunda ára­tug­ar­ins og fram til árs­ins 2016 voru allar rík­is­stjórnir sem mynd­aðar voru á Íslandi tveggja flokka. Breytt póli­tískt lands­lag á síð­ustu árum, sem leitt hefur af sér að flokkar á þingi eru nú átta, og einn til við­bótar mælist við þrösk­uld þess að bæt­ast í hóp­inn, gerði það að verkum að eftir síð­ustu þrjár kosn­ingar hafa þrír flokkar deilt með sér völdum. 

Ef síð­asta könnun Gallup kæmi upp úr kjör­köss­unum þá væri fjög­urra flokka stjórn í kort­unum. Rík­is­stjórn með svo mörgum flokkum hefur ekki verið mynduð síðan að stjórn Stein­gríms Her­manns­sonar sat að völdum seint á níunda ára­tugnum og í byrjun þess tíunda. Sú stjórn inni­hélt raunar um tíma fimm flokka. 

Næsta rík­is­stjórn þyrfti alltaf að inni­halda annað hvort Sam­fylk­ingu eða Sjálf­stæð­is­flokk, tvo stærstu flokka lands­ins. Nær úti­lokað þykir að Sam­fylk­ingin myndi vilja mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og því þyrfti síð­ar­nefndi flokk­ur­inn að finna fjóra aðra sam­starfs­flokka til að ná meiri­hluta miðað við núver­andi fylgi. Í ljósi þess að Píratar myndu aldrei leiða hug­ann að slíku rík­is­stjórn­ar­sam­starfi er senni­leg­asta leið Sjálf­stæð­is­flokks­ins að völdum fimm flokka stjórn með Mið­flokki, Viðreisn, Framsókn og annað hvort Flokki fólks­ins eða Vinstri grænum, með 50,4 til 50,8 pró­sent atkvæða á bak­við sig og mjög tæpan þing­meiri­hluta. Afar ósenni­legt verður að telj­ast að slík stjórn­ar­myndun sé raun­hæf. Því er, sem stendur, erfitt að sjá raun­hæfa leið fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að völdum að nýju ef mið er tekið af stöðu mála í könn­unum. 

Sam­fylk­ingin á fleiri mögu­leika í stöð­unni. Ef hluti atkvæða myndi falla niður dauður, í þeim skiln­ingi að þau yrðu greidd flokki sem næði ekki inn á þing, þá gæti flokk­ur­inn senni­lega myndað þriggja flokka stjórn með Pírötum og annað hvort Framsókn eða Viðreisn, en með minni­hluta atkvæða á bak­við sig. Til að búa til sterk­ari meiri­hluta gæti Sam­fylk­ingin valið að vinna til vinstri í fjög­urra flokka stjórn með Pírötum, Framsókn og Vinstri grænum eða til hægri með því að skipta Vinstri grænum út fyrir Viðreisn. Erfitt er að sjá að Sam­fylk­ingin muni leiða hug­ann að sam­starfi með Flokki fólks­ins eða Mið­flokknum.

Könnun Þjóð­ar­púls Gallup var fram­kvæmd á bil­inu fyrsta til 31. ágúst og var net­könnun.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GEK
    Guðrún Emilía Karlsdóttir skrifaði
    Þurfum að losna við þessa auðlindaþjófa
    0
  • Björn Ólafsson skrifaði
    Eina í stöðunni er að XS styrkist enn. Núverandi stjórnarflokkar eiga ekki að koma nálægt næstu ríkisstjórn. Þessi stjórn er örugglega sú aumasta frá lýðveldisstofnun!
    1
  • AT
    Auður Traustadóttir skrifaði
    Jæja er ekki best að skila lyklunum?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár