Útgerðarmenn loks tengdir sjálfum sér

Umtals­verðar breyt­ingar eru fyr­ir­sjá­an­legar á eign­ar­haldi stórra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, sam­kvæmt til­lögum starfs­hóps­ins Auð­lindin okkar. Herða á og skýra reglur um hámarks­kvóta­eign og tengda aðila. Samherji þarf að minnka hlut sinn og yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni í Nes­kaup­stað veru­lega frá því sem verið hefur. Það gæti Guð­mundur í Brimi líka þurft að gera við aðra hvora af sínum útgerðum.

Útgerðarmenn loks tengdir sjálfum sér

Töluverð upp­stokkun er á döf­inni hjá stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins, gangi eftir hug­myndir og til­lögur sem koma fram í nið­ur­stöðum vinnu­hópa Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra um að fella burt skil­grein­ingu á tengdum aðilum sem gilda sér­stak­lega fyrir sjáv­ar­út­veg einan. Þrír hópar fyr­ir­tækja, eða grúppur, sem sam­an­lagt halda á 45,6 pró­sent allra úthlut­aðra afhla­heim­ilda, hafa inn­byrðis eigna­tengsl sem ekki stæð­ust kröfur. 

Frá því fyrir alda­mót hafa verið í gildi lög sem koma áttu í veg fyrir að kvóti safn­að­ist á of fáar hendur. Þessi breyt­ing var ekki gerð að ástæðu­lausu. Vaxandi áhyggjur voru þá af því að fáir sterkir aðilar kæmust yfir stærsta hluta kvót­ans.

Þetta yrði til þess „að við­kom­andi fái mikil völd í þjóð­fé­lag­inu og staða þeirra sem ráða útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum geti orðið of sterk gagn­vart stjórn­völdum, lána­stofn­unum og starfs­fólki. Þeir sem væru fyrir í grein­inni gætu í raun ráðið hverjir kæmu nýir inn og gætu þannig komið í veg fyrir eðli­lega …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    MAFIA ER ÞAÐ OG MAFIA SKAL ÞAÐ HEITA Sagði Olafur Johanesson ur Pontu a Alþinhi um arið, Þaug orð eiga við um þessa fira sem þessi storgoða Grein her að ofan fjallar um, Þessi Mafia er með Ransfeng sem Þjoðin a, Kotakerfið er Kerfi sem taka þarf með lögum af þessu Hiski. En við lifum það ekki. Rikistjornin er ekki a leið i slika aðgerð. Við lifum við stjorn Verstu Rikistornar fra Lyðveldisstofnun matur hefur hækkað 85% fra aramotum og en Kvarta Bændur um Jolin 2023 verður su hækkun orðin 120%. Nei það er eitkvað mikið að. Ofurlaun Forstjora er eitt Æxlid sem þarf að skera a, Forstjori SKEL og Orkunar fær 23 miljonir i laun a manuði. Aðaleigandi Skel var 1 af Forsprökkum i Bankahruninu 2008. Kvað mistu margir Fasteignir ÞA og urðu FALIT. Heldur þessi Spilling afram-- Ja a meðan NAZISTAR stjorna heldur hun afram. I USA mindi Kota Mafian Islenska enda eins og Jimmy Hoffa------ Hoffa disappeared on July 30, 1975.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár