Bæjarstjóri Árborgar var með um 95 milljónir króna í tekjur í fyrra

Fjóla Stein­dóra Krist­ins­dóttir er sá kjörni full­trúi sem var með hæstu tekj­urnar sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrá Skatts­ins. Hún segir að fjár­magnstekj­urnar sem færðar eru á hana séu vegna arð­greiðslna úr félögum sem maki hennar á hlut í.

Bæjarstjóri Árborgar var með um 95 milljónir króna í tekjur í fyrra
Fjár­magnstekjur Uppi­staðan í þeim tekjum sem taldar eru fram í nafni Fjólu eru fjár­magnstekjur. Hún er í 379. sæti á hátekju­list­anum í ár. Mynd: Valgarður Gíslason

Fjóla Stein­dóra Krist­ins­dóttir, bæj­ar­stjóri Árborgar, var sá kjörni full­trúi á Íslandi sem var með hæstar tekjur á síð­asta ári. Alls voru árs­tekjur hennar 94,5 millj­ónir króna. Launa­tekjur Fjólu voru 973 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði í fyrra en hún hafði hins vegar umtals­verðar fjár­magnstekjur, sam­tals 82,8 millj­ónir króna. Þessar tekjur skila Fjólu í 379. sæti á hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár. Að hennar sögn er um að ræða fjár­magnstekjur maka hennar, Snorra Sig­urðs­sonar fast­eigna­sala, vegna arð­greiðslna úr félögum sem hann er hlut­hafi í. 

Samkvæmt yfir­liti úr Creditinfo teng­ist Snorri alls tíu félögum sem auk fast­eigna­sölu hafa þann til­gang að reka hótel- og gisti­starf­semi og stunda bygg­ingu íbúðar- og atvinnu­starf­semi. Það félag sem átti mestar eignir, og hefur skilað bestri afkomu á síð­ustu árum, er félagið Akur­hólar ehf., sem rekur bygg­inga­starf­semi á Selfossi, en Snorri á helm­ings­hlut í því. Rekstr­ar­tekjur þess félags voru 974 millj­ónir króna á árinu 2021, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár