Grun­sam­leg lán á Grund­ar­tanga Bæði Norðurál og Elkem fengu lán eftir að móð­ur­fé­lög þeirra nýttu sér fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans, með miklum afslætti. Ríkið telur lánin hafa haft þann eina til­gang að minnka skatt­skyldan hagnað fyr­ir­tækj­anna á Íslandi. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Stóriðjan í skotlínu skattsins

Á síð­ustu sex árum hefur eft­ir­lit Skatts­ins gert margra millj­arða króna kröfur á hendur fjórum stór­iðju­fyr­ir­tækjum á Íslandi, á for­sendum þess að þau hafi flutt hagnað úr landi fram­hjá sköttum. Bent hafði verið á nauð­syn þess að styrkja eft­ir­lit og bæta lög­gjöf í fjölda ára þegar það var loks­ins gert fyrir ára­tug.

Hagn­að­arsmygl, sem á ensku kall­ast profit shift­ing, er þekkt aðferð alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja til að koma hagn­aði út úr þeim löndum sem þau starfa í og í hag­stæð­ara skjól fyrir sköttum. Aðferðin byggir á því að stór­fyr­ir­tækið kaupir eða selur sjálfu sér vöru eða þjón­ustu fyrir óeðli­lega hátt eða lágt verð, allt til þess að færa ávinn­ing þangað sem minnst eða ekk­ert þarf að borga af honum í skatt. Með þessu kom­ast alþjóð­leg fyr­ir­tæki hjá þeirri skyldu sinni að greiða skatta og leggja til sam­fé­lags­ins, sem þau raun­veru­lega starfa í.

Þjóðir heims, með OECD í broddi fylk­ingar, hafa lengi bent á alvar­leika máls­ins og nauð­syn aðgerða. Þess vegna hafa flestar þjóðir breytt lögum og tekið upp hert eft­ir­lit vegna slíkra skattaund­an­skota sem sögð eru hlaupa á hund­ruðum millj­arða Banda­ríkja­dala.

Ísland er þar ekki und­an­tekn­ing, nema að því leyt­inu hve seint gekk að upp­færa lög og færa skatta­yf­ir­völdum í hendur tól og …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    27. ágúst 2023 23:27
    Þessi grein er A masterpiece, og við sem vorum ungir þegar Viðreisnarstjornin fell 1971 munum þan ljota viðskilnað sem þeir skildu eftir sig. Kreppa var og mikið af folki hafði fluið land aðarlega til Sviþjoðar i atvinnu leit. Kronan hafði verið feld Trekk i Trekk $ naði hæðstu hæðum eg man að Ford Bronko Bill sem kostaði 220.000 kr 1966 hann kostaði 1971 -650.000 kr Bilar fra USA hættu að koma. Burfellsvirkjun var bygð fyrir erlent Lan Skuldir vegna þess höfðu margfaldast. Alverið i Straumsvik Grædi mikið. Hjörleifur Guttormsson kom i Svonvarp og sagði Þjoðini að 1 mil kostaði i framleiðslu i Burfelli 11 kronur. Þegar það væri komið i Alverið i Straumsvik væri það selt a 7 kronur. Svona viðskipti eru Forkastanleg. Hann var spurður kver borgar Mismun, Honum er velt a Notendur i landinnu. Hann sagði Besta kostin að Rjufa Raforku til Alversins, ef þeir þrauðust við að koma að samninga borðinu. Þetta leit illa ut Islendingar höfðu samið af ser um verð til langs tima. Breskir Endurskoðendur sem serhæfðu sig i Alþjoðasamningum voru raðnir Mogginn for Hamförum og sakaði þetta Breska Felag um vond Vinnubrögði öðru landi. Það kemur fram her i Greinini að framan. Islendingar Unnu Malið. En i Næstu Alvers Samningum hafa Islendingar Samið aftur ILLA Glæpa Auðhringir fa enn að vaða uppi og Ræna Island. Þeim þarf að visa ur landi Okkur vantar Orkuna 80% er selt a lagu verði. STORIÐJA mengar 40% af mengun a ISLANDI.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það voru þeir Davíð og Hjörleifur Guttormsson þáverandi iðnaðarráðherra sem flettu ofan af hátterni eigenda álversins í Straumsvík á sinni tíð.
    ,,Fjörutíu ár eru síðan íslensk stjórnvöld uppgötvuðu að álverið í Straumsvík hafði stundað það að færa hagnað undan sköttum hérlendis. Í ljós kom að súrál sem móðurfélag álversins, Alusuisse, seldi íslenska félaginu til álframleiðslu hér og flutt var inn frá Ástralíu, hafði verið selt á óeðlilega háu verði. Fyrir vikið varð hagnaður álversins hér minni en hafði ella verið, ef markaðsverð hefði verið greitt fyrir súrálið.

    Erlendir sérfræðingar voru fengnir til að rannsaka málið og skila skýrslu, sem á endanum renndi stoðum undir framferði álrisans. Eftir langvinnar deilur var málið sent í gerðardóm í Hollandi, sem úrskurðaði að lokum að Alusuisse skyldi greiða íslenska ríkinu rúmlega einn milljarð króna að núvirði í sekt vegna málsins".

    En vandinn hér á landi er að það hefur aldrei verið neinn einhugur meðal íslenskra stjórnmála-manna um að taka á þessum blessuðu stóriðjufyrirtækjum sem sem fyrir gjafmildi gömlu valdaflokkana gagnvart þessum fyrirtækjum og svo er enn.

    Síðan hafa þessi fyrirtæki hagað sér með svipuðum hætti hér í landi eins og í þróunarríkjunum. Fyrirtækin hafa gjarnan ausið fé í eitt og annað hérlendis, nokkuð sem sumir hafa kallað hreinar mútur. Ekkert hefur verið rannsakað þótt rík ástæða væri til þess.
    3
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Þetta er fín grein sem og innlegg Kristbjörns Árnasonar. Sá sem rannsakaði viðskiptahætti Alusuisse hét Elías Davíðsson en ekki Davíð. Elías hafði sterkan grun um að álverið í Straumsvík væri að kaupa súrál og önnur aðföng á uppsprengdu verði. Það kom svo á daginn. Sú uppgötvun varð til þess að málflutningur Alusuissse um að þeir gætu ekki greitt skatta og eðlilegt raforkuverð vegna lélegrar afkomu varð hjákátlegur. Búið var að sanna að álverið í Straumsvík var ekki ómagi á fyrirtækinu heldur gullkista. Þetta nýtti Hjörleifur sér og þrátt fyrir það að pólitískir andstæðingar hans hafi ekki viljað styggja fyrirtækið, varð ekki aftur snúið. Alusuisse hafði verið staðið að svikum og alvarlegum samningsbrotum. Fyrirtækið neyddist því fljótlega til þess að samþykkja hækkun á raforkuverði, svo aftur hækkun og enn aftur. Þótt skatttekjurnar af fyrirtækinu hafi aukist um tíma munaði margfalt meira um tekjurnar af hækkun raforkuverðsins. Þrautseigja Elíasar Davíðssonar skilaði þannig ríkissjóði gífurlegum tekjum. Við eigum honum mikið að þakka
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stóriðjan í skotlínu skattsins

Skatturinn stendur yfir líkinu af Kalkþörungafélaginu
GreiningStóriðjan í skotlínu skattsins

Skatt­ur­inn stendur yfir lík­inu af Kalk­þör­unga­fé­lag­inu

Skatt­ur­inn er á góðri leið með að stór­skaða atvinnu­líf á Bíldudal og skilja Súð­vík­inga eftir með skuldir og sárt ennið, með óbil­girni, tudda­skap og af ann­ar­legum hvötum. Um þetta opn­aði fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækis sig fyrir fullum sal í Hörpu á dög­unum. Að fund­inum stóðu skatta­ráð­gjafar með stuðn­ingi alls atvinnu­lífs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár