Dyrnar á fangelsinu opnar en engin leið að ganga út um þær

Í dag eru tvö ár liðin síðan talí­banar náðu fullum völdum yfir heima­landi Zöhru Hussaini. Kyn­systrum hennar sem enn búa þar er neitað um sjálf­sögð mann­rétt­indi eins og ferða­frelsi, menntun og atvinnu. Á sama tíma hafa íslensk stjórn­völd hert útlend­inga­lög þannig að Íslend­ingar taka nú jafn illa á móti fólki á flótta og Íranir, að mati Zöhru sem sjálf dvaldi í Íran sem barn á flótta.

Dyrnar á fangelsinu opnar en engin leið að ganga út um þær
Ófriður „Lífi fyrir konur í Afganistan er lokið,“ segir Zahra sem lýsir veru­leika kvenna í Afganistan sem fang­elsi með opnar dyr. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Zahra Hussaini var stödd í vinnu á íslenskum leik­skóla þegar fréttir af yfir­töku talí­bana í Afganistan bár­ust fyrir tveimur árum síðan. Þó hún væri langt í burtu frá átök­unum í heima­land­inu brast hún í grát. Zahra vann ekki meira þann dag­inn. 

Í huga hennar fóru að spil­ast minn­ingar af því sem fjöl­skylda hennar hafði gengið í gegnum í heima­land­inu þegar þau bjuggu þar. Minn­ingar af stöð­ugum flótta undan talí­bönum, því að týn­ast í fjöll­unum á slíkum flótta og missa fjölda ást­vina í átök­unum. 

Hún ótt­að­ist um líf systk­ina sinna og vina sem voru enn úti. Sum þeirra höfðu starfað með erlendum aðilum og önnur verið aðgerða­sinnar. 

„Við misstum marga aktí­vista og ungt fólk í Afganistan því þau voru að vinna með útlend­ingum eða stjórn­völdum,“ segir Zahra.

Hún fór strax að aðstoða for­eldra sína og systk­ini að kom­ast til Íslands, en þá bjó hún hér …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár