Ofbeldishasar, gaslýsing og pez

Sófa­kartaflan rýnir í sum­ar­myndir og mælir með The Pez Outlaw á Netflix – sér­stak­lega fyrir fólk með þrá­hyggju.

Ofbeldishasar, gaslýsing og pez
Pez kall Pez-safn­ara­heim­ur­inn er eins og hver ann­ara nör­da­heimur.

Sófinn í stof­unni hefur ekki verið mikið brúk­aður í sumar en aftur á móti hef ég lufs­ast í bíó endrum og eins. Hér gefur að líta bíó­mynd­irnar frá bestu til verstu: Barbie, Indiana Jones, Fast & the Furious, Mission Impossi­ble. Mér finnst Cruise glat­aðri en Diesel en hef þó smá samúð með honum því hann lítur nú út eins og gam­all pabbi í úti­legu. Talandi um útlit, tölvu­teikn­aða and­litið á Harrison Ford í Indiana Jones er svo djúpt í uncanny valley að ég á eftir að fá martraðir. Ég er Phoebe Waller-Bridge aðdá­andi og þar sem hún leikur í mynd­inni og myndin er svo mikil Indiana Jones-mynd, mun ég sætta mig við nokkrar martraðir.

„Mér líður smá eins og ég hafi orðið fyrir menn­ing­ar­legri gas­lýs­ingu öll mín upp­vaxt­arár“

Í sumar end­ur­nýj­aði ég líka kynni mín við You’ve got Mail með Meg Ryan og Tom Hanks. Ég er ekki frá því að hún hafi elst mjög illa. Karakt­er­inn sem Hanks leikur stundar next level gas­lýs­ingu hálfa mynd­ina og ást­ar­sam­bandið sem myndin snýst um er full­kom­lega óskilj­an­legt. Einnig þótti mér sjokker­andi að mér hafi þótt Meg Ryan vera með flott hár. Mér er skapi næst að horfa á allar róm­an­tísku gam­an­myndir ung­lings­ára minna og sjá hvort ég geti hægt og rólega undið ofan af þeim hræði­legu áhrifum sem þær höfðu á sjálfs­mynd mína og hug­myndir um sam­bönd og sam­skipti. Mér líður smá eins og ég hafi orðið fyrir menn­ing­ar­legri gas­lýs­ingu öll mín upp­vaxt­arár.

En, þar sem ég efast um að fólk nenni að sjá allt þetta ofbeld­issorp sem ég taldi upp áðan, að Barbie und­an­skil­inni, þá langar mig að mæla með The Pez Outlaw á Netflix. Þetta er heim­ilda­mynd um skrýt­inn lít­inn kall sem blandar sér inn í Pez-safn­ara­heim­inn með ófyr­ir­séðum afleið­ingum. Pez-heim­ur­inn er eins og hver annar nör­da­heimur. Fólk með áráttur og þrá­hyggjur og skemmti­leg áhuga­mál og sér­þekk­ingu á ein­hverju sem fáir hafa áhuga á. Ástæðan fyrir því að ég horfði á hana er sú að fólk í kringum mig var alltaf að spyrja hvort ég væri ekki örugg­lega búin að sjá hana. Ef til vill sér fólk mig sem lít­inn skrýt­inn kall og ég er ekki 100% ósam­mála.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár