Leyst upp eftir dauðann

Ný aðferð við meðhöndlun jarðneskra leifa, sem sögð er umhverfis­vænni en aðrar leiðir, ryður sér nú til rúms. Bretar hafa nýverið breytt lögum til þess að heimila að lík séu leyst upp í brennheitri blöndu efna og vatns. Beinin standa eftir, eru möluð og sett í duftker. Einungis má greftra eða brenna lík á Íslandi og eru bálfarir orðnar yfir 60 prósent útfara á höfuð­borgar­svæðinu.

Tankur
Tankur Hér má sjá þrýstitank á borð við þá sem not­aðir eru við upp­lausn­ar­að­ferð­ina. Mynd: Bio Response Solutions

Nú geta Bretar valið um annað en að láta ýmist grafa sig eða brenna eftir dauðann, en ný aðferð við að meðhöndla lík var lögleidd í Bretlandi fyrr í sumar. Hún felst í því að lík eru leyst upp í efna­blönduðu vatni, sem nær 160 gráðu hita, í þrýsti­tanki sem sérstak­lega er hannaður til verksins.

Eftir að líkaminn hefur mallað í þrjá til fjóra tíma í efna­blöndunni standa eftir ber beinin, sem eru mulin og afhent aðstand­endum í duftkeri. Líkamsleifa­blöndunni er hins vegar veitt í frárennsli.

Þessi aðferð er ekki ný af nálinni, en hún hefur þegar verið lögleidd í mörgum ríkjum Banda­ríkjanna, í Kanada og í Suður-Afríku, auk þess sem nefna má að norska þingið réðst í laga­breytingar í fyrra til þess að heimila tilraunir með aðferðina.

Notkun upplausnar­aðferðarinnar er þó ekki útbreidd og vitneskja um hana virðist það ekki heldur, þó að aðeins hafi verið fjallað um aðferðina í fjöl­miðlum. Það vakti til dæmis nokkra athygli fjölmiðla er aðferðin var notuð við útför suður-afríska biskupsins Desmonds Tutu í upphafi síðasta árs. Hann hafði haft þá ósk við dauða sinn að gengið yrði frá jarðneskum leifum hans á eins umhverfis­vænan hátt og hægt væri.

Talsmenn þessarar aðferðar við meðhöndlun jarðneskra leifa hafa einmitt bent á að þetta sé umhverfis­vænna en líkbrennsla, þar sem minni orku þurfi til að „sjóða“ en brenna lík, auk þess sem engar gróðurhúsa­loft­tegundir losni út í andrúms­loftið þegar lík eru leyst upp í vatni.

Í frétt breska blaðsins Guardian var sagt frá því að í skoðana­könnun sem gerð var meðal bresks almennings sögðust nær engir svarendur þekkja til þessarar aðferðar, en heil 29 prósent sögðu, eftir að hafa fengið kynningu á henni, að þeir myndu velja að láta leysa sig upp ef sá kostur væri fyrir hendi.

Kom af fjöllum á bálstofunni

Heimildin ákvað að hafa samband á bálstofuna sem Kirkju­garðar Reykja­víkur­prófasts­dæmis reka í Foss­voginum og athuga hvort þar væri einhver vitneskja um þessa aðferð. Svo reyndist ekki vera, en María Benedikts­dóttir, umsjónar­maður bálstofunnar, sagði blaða­manni að hún kæmi alveg af fjöllum. 

„Ég hef bara ekkert heyrt um þetta, svo þú ert alveg að segja mér nýjar fréttir,“ sagði hún, en nefndi þó að henni þætti áhugavert að heyra af upplausnar­aðferðinni.

Í Foss­voginum er hins vegar einungis verið að brenna.

„Við brennum bara alla hér í ofninum hjá okkur, í kistu og inn í ofn,“ segir María og bætir við að mikil aukning hafi orðið á bálförum undan­farin ár, en hlutfall bálfara er nú orðið um 60 prósent á móti kistu­gröfum á höfuð­borgar­svæðinu. 

BálstofaLík­brennslu­ofn í Fossvogi. Það tekur á bil­inu eina til tvær klukku­stundir að brenna hvert lík, ásamt kistu.

„Þetta hefur verið rosalega mikil aukning og fer bara vaxandi,“ segir María, sem reiknar með því að fólk kjósi bálfarir sökum þess að þá taki gröfin minna pláss og aðferðin sé umhverfis­vænni.

„Síðasta ár voru 1.107 brennslur og þar áður voru níuhundruð og eitthvað. Það verður svo pottþétt enn meira í ár, árið hefur farið vel af stað. Þetta er alltaf að aukast, það er nóg að gera hjá mér, það vantar ekki. Það vantar eiginlega bara meiri vinnutíma, við erum að brenna svona 5-6 á dag,“ segir María Benedikts­dóttir, á bálstofunni í Fossvogi.

Fyrsta bálförin á Íslandi fór fram 31. júlí árið 1948, er dr. Gunnlaugur Claessen var brenndur. Gunnlaugur hafði verið framá­maður varðandi bálfarir á Íslandi og var til dæmis fyrsti formaður Bálfarar­félags Íslands, sem stofnað var árið 1934. Hann lést rúmri viku áður en bálstofan var vígð.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    Reikningur frá útfararstofu vegna nýlegrar útfarar var upp á rúmlega 800 þúsund. Þar spurði ég útfararstjórann hvort ávallt væri brennt í forláta kistum og hann kvað svo vera.
    0
  • Unnsteinn Sigurgeirsson skrifaði
    Hvernig væri að brenna bara líkið ekki kistuna
    3
    • Íris Arthúrsdóttir skrifaði
      Ég fékk þau svör hjá útfararþjónustu kirkjugarðanna á sínum tíma að það yrði að vera kista til að það væri einhver eldiviður í ofninum. Mér var gefið upp hátt verð á kistunni og sagt að það væri það ódýrasta sem til væri en þegar ég kannaði málið fann ég mjög ódýrar kistur hjá öðrum söluaðila. Það er auðvelt að maka krókinn þegar viðskiptavinirnir eiga í fullu fangi með að takast á við sáran missi oft á tíðum. Það er nóg af timbri til hér í landinu sem fer í förgun, skil ekki af hverju þarf að brenna dýrar kistur með hverjum manni núna á tímum umhverfisvitundar þar sem krafan um að draga úr sóun verður sífellt hærri. Mér finnst líka ótrúverðugt að starfsmenn í brennslunni hafi ekki heyrt orð um þessa nýju aðferð sem er að ryðja sér til rúms í heiminum, ég hef lesið um þetta og starfa þó ekki í þessari grein.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár