Leyst upp eftir dauðann

Ný aðferð við með­höndlun jarð­neskra leifa, sem sögð er umhverf­is­vænni en aðrar leiðir, ryður sér nú til rúms. Bretar hafa nýverið breytt lögum til þess að heim­ila að lík séu leyst upp í brenn­heitri blöndu efna og vatns. Beinin standa eftir, eru möluð og sett í duft­ker. Einungis má greftra eða brenna lík á Íslandi og eru bálfarir orðnar yfir 60 pró­sent útfara á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Tankur
Tankur Hér má sjá þrýstitank á borð við þá sem not­aðir eru við upp­lausn­ar­að­ferð­ina. Mynd: Bio Response Solutions

Nú geta Bretar valið um annað en að láta ýmist grafa sig eða brenna eftir dauð­ann, en ný aðferð við að með­höndla lík var lög­leidd í Bret­landi fyrr í sumar. Hún felst í því að lík eru leyst upp í efna­blönd­uðu vatni, sem nær 160 gráðu hita, í þrýstitanki sem sér­stak­lega er hann­aður til verks­ins.

Eftir að lík­am­inn hefur mallað í þrjá til fjóra tíma í efna­blönd­unni standa eftir ber beinin, sem eru mulin og afhent aðstand­endum í duft­keri. Lík­ams­leifa­blönd­unni er hins vegar veitt í frá­rennsli.

Þessi aðferð er ekki ný af nál­inni, en hún hefur þegar verið lög­leidd í mörgum ríkjum Banda­ríkj­anna, í Kanada og í Suður-Afríku, auk þess sem nefna má að norska þingið réðst í laga­breyt­ingar í fyrra til þess að heim­ila til­raunir með aðferð­ina.

Notkun upp­lausn­ar­að­ferð­ar­innar er þó ekki útbreidd og vit­neskja um hana virð­ist það ekki heldur, þó að aðeins hafi verið fjallað um aðferð­ina í fjöl­miðlum. Það vakti til dæmis nokkra athygli fjöl­miðla er aðferðin var notuð við útför suður-afríska bisk­ups­ins Desmonds Tutu í upp­hafi síð­asta árs. Hann hafði haft þá ósk við dauða sinn að gengið yrði frá jarð­neskum leifum hans á eins umhverf­is­vænan hátt og hægt væri.

Talsmenn þess­arar aðferðar við með­höndlun jarð­neskra leifa hafa einmitt bent á að þetta sé umhverf­is­vænna en lík­brennsla, þar sem minni orku þurfi til að „sjóða“ en brenna lík, auk þess sem engar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir losni út í and­rúms­loftið þegar lík eru leyst upp í vatni.

Í frétt breska blaðs­ins Guardian var sagt frá því að í skoð­ana­könnun sem gerð var meðal bresks almenn­ings sögð­ust nær engir svar­endur þekkja til þess­arar aðferðar, en heil 29 pró­sent sögðu, eftir að hafa fengið kynn­ingu á henni, að þeir myndu velja að láta leysa sig upp ef sá kostur væri fyrir hendi.

Kom af fjöllum á bálstofunni

Heim­ildin ákvað að hafa sam­band á bál­stof­una sem Kirkju­garðar Reykja­vík­ur­pró­fasts­dæmis reka í Foss­vog­inum og athuga hvort þar væri ein­hver vit­neskja um þessa aðferð. Svo reynd­ist ekki vera, en María Bene­dikts­dóttir, umsjón­ar­maður bál­stof­unnar, sagði blaða­manni að hún kæmi alveg af fjöllum. 

„Ég hef bara ekk­ert heyrt um þetta, svo þú ert alveg að segja mér nýjar fréttir,“ sagði hún, en nefndi þó að henni þætti áhuga­vert að heyra af upp­lausn­ar­að­ferð­inni.

Í Foss­vog­inum er hins vegar ein­ungis verið að brenna.

„Við brennum bara alla hér í ofn­inum hjá okkur, í kistu og inn í ofn,“ segir María og bætir við að mikil aukn­ing hafi orðið á bálförum und­an­farin ár, en hlut­fall bálfara er nú orðið um 60 pró­sent á móti kistu­gröfum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

BálstofaLík­brennslu­ofn í Fossvogi. Það tekur á bil­inu eina til tvær klukku­stundir að brenna hvert lík, ásamt kistu.

„Þetta hefur verið rosa­lega mikil aukn­ing og fer bara vax­andi,“ segir María, sem reiknar með því að fólk kjósi bálfarir sökum þess að þá taki gröfin minna pláss og aðferðin sé umhverf­is­vænni.

„Síðasta ár voru 1.107 brennslur og þar áður voru níu­hund­ruð og eitt­hvað. Það verður svo pott­þétt enn meira í ár, árið hefur farið vel af stað. Þetta er alltaf að aukast, það er nóg að gera hjá mér, það vantar ekki. Það vantar eig­in­lega bara meiri vinnu­tíma, við erum að brenna svona 5-6 á dag,“ segir María Bene­dikts­dóttir, á bál­stof­unni í Fossvogi.

Fyrsta bálförin á Íslandi fór fram 31. júlí árið 1948, er dr. Gunn­laugur Claessen var brenndur. Gunn­laugur hafði verið framá­maður varð­andi bálfarir á Íslandi og var til dæmis fyrsti for­maður Bálfar­ar­fé­lags Íslands, sem stofnað var árið 1934. Hann lést rúmri viku áður en bál­stofan var vígð.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    Reikningur frá útfararstofu vegna nýlegrar útfarar var upp á rúmlega 800 þúsund. Þar spurði ég útfararstjórann hvort ávallt væri brennt í forláta kistum og hann kvað svo vera.
    0
  • Unnsteinn Sigurgeirsson skrifaði
    Hvernig væri að brenna bara líkið ekki kistuna
    3
    • Íris Arthúrsdóttir skrifaði
      Ég fékk þau svör hjá útfararþjónustu kirkjugarðanna á sínum tíma að það yrði að vera kista til að það væri einhver eldiviður í ofninum. Mér var gefið upp hátt verð á kistunni og sagt að það væri það ódýrasta sem til væri en þegar ég kannaði málið fann ég mjög ódýrar kistur hjá öðrum söluaðila. Það er auðvelt að maka krókinn þegar viðskiptavinirnir eiga í fullu fangi með að takast á við sáran missi oft á tíðum. Það er nóg af timbri til hér í landinu sem fer í förgun, skil ekki af hverju þarf að brenna dýrar kistur með hverjum manni núna á tímum umhverfisvitundar þar sem krafan um að draga úr sóun verður sífellt hærri. Mér finnst líka ótrúverðugt að starfsmenn í brennslunni hafi ekki heyrt orð um þessa nýju aðferð sem er að ryðja sér til rúms í heiminum, ég hef lesið um þetta og starfa þó ekki í þessari grein.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár