Segja hafnir á horriminni í nýrri samgönguáætlun

Formaður stjórnar Hafna­sam­bands Íslands segir að þre­falda þurfi fjár­fram­lög til nýfram­kvæmda í höfnum lands­ins næstu fimm ár frá því sem gert er ráð fyrir í fram­kvæmda­á­ætlun sam­göngu­á­ætl­unar. Tómt mál sé að tala um raf­væð­ingu flot­ans nema veru­lega aukið fjár­magn komi til.

Segja hafnir á horriminni í nýrri samgönguáætlun
Kostar meira en fimmaur Ef raf­væða á skipa­flot­ann þarf fyrst að koma upp raf­teng­ingum í höfnum lands­ins og það kostar háar fjár­hæði, segir Lúðvík Geirsson, for­maður stjórnar Hafna­sam­bands Íslands.

Hafna­sam­band Íslands gerir alvar­legar athuga­semdir við drög að sam­göngu­á­ætlun Alþingis sem nú er til kynn­ingar. Er það fram­kvæmda­á­ætlun næstu fimm ára sem Hafna­sam­bandið er ósátt með en þar þykir stjórn­endum hafn­anna þær bera lítið úr býtum. Lúðvík Geirsson, for­maður stjórnar, segir að tómt mál sé að tala um raf­væð­ingu flot­ans verði fjár­magn ekki aukið og þar í ofaná­lag sé við­halds­þörf í mörgum höfnum orðin mjög veru­leg, svo veru­leg að það sé farið að hamla útgerð og annarri skipa­um­ferð og hafn­ar­tengdri þjón­ustu. „Þessi fjár­hæð þarf alveg að þre­fald­ast til að mæta brýn­ustu þörfum.“

Drög að sam­göngu­á­ætlun fyrir árin 2024-2038 var lögð fram til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 13. júní síð­ast­lið­inn og rann umsagn­ar­frestur vegna hennar út í gær, 31. júlí. Samhliða áætl­un­inni er lögð fram fram­kvæmda­á­ætlun til fyrstu fimm ára áætl­un­ar­innar. Í fram­kvæmda­á­ætl­un­inni er gert ráð fyrir veitt verði 6,1 millj­arði króna til nýfram­kvæmda í höfnum lands­ins. Það telur stjórn Hafna­sam­bands Íslands langt í frá nægi­legt enda hafi hafn­ar­sjóðir lands­ins þegar sótt um fram­lög upp á 36 millj­arða til brýnna fram­kvæmda, sem falli að meg­in­mark­miðum og áherslum sam­göngu­á­ætl­unar. „Það er því aug­ljóst að þarna vantar mikið upp á að hafnir lands­ins geti haldið áfram þeirri þróun og upp­bygg­ingu sem brýn þörf er á,“ segir í umsögn Hafna­sam­bands­ins.

Dýpka, endurnýja og rafvæða

Lúðvík Geirsson, for­maður stjórnar Hafna­sam­bands­ins, segir þörf­ina á auknum fjár­fram­lögum einkum fel­ast í þrennu. „Í fyrsta lagi er komin tími á tölu­vert miklar end­ur­bætur og end­ur­nýjun í höfn­unum. Þær eru margar hverjar komnar tölu­vert til ára sinna, stál­þil og við­legu­kantar.

„Það er ekk­ert eitt­hvað sem kostar fimmaur, það eru hund­ruðir millj­óna og millj­arðar sem liggja í því í stærri höfnum“
Lúðvík Geirsson
um raf­væð­ingu hafna

Í öðru lagi er skipa­flot­inn að stækka og því þarf dýpri, stærri og rúmbetri hafnir en áður voru, og það er verk­efni sem menn hafa verið að vinna í.

Svo bæt­ist við í þriðja lagi raf­væð­ing hafn­anna, sem er stóra umræðan í dag. Ef menn meina eitt­hvað með því að ætla sér að raf­væða flot­ann og tryggja að hægt sé að raf­tengja skipin, þá þarf auð­vitað að koma upp slíkum bún­aði í höfn­unum. Það er ekk­ert eitt­hvað sem kostar fimmaur, það eru hund­ruðir millj­óna og millj­arðar sem liggja í því í stærri höfnum.“

Finnst sem hafnirnar gleymist

Lúðvík við­ur­kennir að 36 millj­arðar séu tölu­vert há tala og segir að það séu ítr­ustu óskir og vænt­ingar sem liggja að baki þeirri upp­hæð. „Menn verða samt að átta sig á að þessar tölur eru engar risa­tölur miðað við það sem menn eru að horfa til í flug­velli og vega­kerfi. Það er eins og menn gleymi því alltaf að hafn­irnar eru líka mjög stór inn­viða­þáttur í sam­göngum. Þær hafa orðið útundan og það þarf að gera þar stór­á­tak til að við­halda þeim bún­aði og þeirri aðstöðu sem fyrir hendi er, og styrkja hana enn frekar. Um það snýst málið.“

Árið 2021 var gerð skýrsla fyrir Hafna­sam­bandið þar sem lagt var mat á nýfram­kvæmda- og við­halds­þörf hafna á tíu ára tíma­bili. Þar kom fram að við­halds­þörf hafna væri metin 12,3 millj­arðar króna árin 2021 til 2025 og að gert væri ráð fyrir nýfram­kvæmdum að upp­hæð ríf­lega 68 millj­arða til árs­ins 2031. Þar af var gert ráð fyrir nýfram­kvæmdum við raf­búnað vegna orku­skipta fyrir 16,6 millj­arða króna.

Landtengingarbúnaður þarf að koma fyrst

Lúðvík segir tómt mál að tala um raf­væð­ingu íslenska flot­ans næstu ár ef ekki komi til frek­ari fjár­munir í verk­efnið. „Það raf­væðir eng­inn flot­ann fyrir land­teng­ingu nema að land­teng­ing­ar­bún­aður sé til í höfn­unum. Það þarf að byrja á því að fara í það verk­efni. Það eru bara allra stærstu hafn­irnar sem eru farnar af stað í því, Hafn­ar­fjörður, Faxa­flóa­hafnir og Akureyri er með sitt í und­ir­bún­ingi. Annars staðar er ekk­ert að ger­ast, nema að Síld­ar­vinnslan í Nes­kaups­stað er farin af stað með sín verk­efni.“

Í sumar hefur mengun frá skemmti­ferða­skipum verið til tölu­verðrar umræðu enda hafa íbúar við Eyja­fjörð til að mynda þurft að þola bláan reyk yfir firð­inum sem skemmti­ferða­skip hafa spúið úr sér. Spurður hvort að raf­væð­ing hafna sé ekki nauð­syn­leg til þess einnig að hægt sé að land­tengja skemmti­ferða­skip og koma þar með í veg fyrir umrædda mengun svarar Lúðvík því ját­andi. „Jújú, sá bún­aður sem til er í stærstu höfnum í dag, hann dugar ein­göngu fyrir ísfisk­s­tog­ara og minni skip, hann dugar ekki einu sinni til frysti­skipin, hvað þá far­þega­skipin. Það er kom­inn fyrsti vísir að þessum land­teng­ingum í Hafn­ar­firði og Reykja­vík ætlar að tengja fyrsta skipið hjá sér, jafn­vel bara í næstu viku. Svo þetta er að ger­ast en það eru bara fyrstu skrefin.“

Treystir á að þingmenn þekki til í sínum kjördæmum

Lúðvík segir þá jafn­framt að þörfin á end­ur­nýjun, við­haldi og upp­bygg­ingu sé orðin ærið brýn víða, staðan sé þannig að hún sé farin að hamla útgerð og annarri skipa­um­ferð í ákveðnum plássum.  „Bæði vegna þess að það vantar meira dýpi og þilin eru komin á aldur. Til að mynda hafa menn miklar áhyggjur af þessu í Vest­manna­eyjum. Þetta eru verk­efni sem kosta sitt, taka ár og ára­tugi í fram­kvæmd og menn verða bara að vera í takt við tím­ann. Við erum að missa af lest­inni.“

„Þessi fjár­hæð þarf alveg að þre­fald­ast til að mæta brýn­ustu þörfum. Þetta þyrftu að vera 18 til 20 millj­arðar króna“
Lúðvík Geirsson
um fjár­muni til nýfram­kvæmda í höfnum.

Sem fyrr segir eru millj­arð­arnir 36 sem hafn­ar­sjóðir hafa þegar sótt um ítr­ustu kröfur. Lúðvík segir að hægt sé að kom­ast af með minna í fyrsta áfanga, þessi fyrstu fimm ár, en 6,1 millj­arður dugi hins vegar engan veg­inn til. „Þessi fjár­hæð þarf alveg að þre­fald­ast til að mæta brýn­ustu þörfum. Þetta þyrftu að vera 18 til 20 millj­arðar króna.“

Spurður hvort hann sé bjart­sýnn á að tekið verði til­lit til umsagnar Hafna­sam­bands­ins við frek­ari vinnu og útfærslu sam­göngu­á­ætl­unnar svarar Lúðvík: „Ég er alltaf bjart­sýnn. Ég held að þing­menn sem þekki til heima, hver í sinni sveit, þeir viti hvar skó­inn kreppir í þessum efnum.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Ríkisstjórnin stöðvaði strandveiðar 12 júlí og skrúfaði þar með fyrir fjármagn frá strandveiðibátum til hafna hringinn í kringum landið.
    Á því tapa allir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár