Flokkur útlagans Puigdemont með framtíð ríkisstjórnarinnar í hendi sér

Pedro Sánchez þarf að sækja stuðn­ing úr mörg­um átt­um til að halda í embætti sitt sem for­sæt­is­ráð­herra Spán­ar eft­ir ný­af­staðn­ar kosn­ing­ar. Rót­tæk­asti flokk­ur katalónskra sjálf­stæð­issinna er í lyk­il­stöðu þrátt fyr­ir að hafa ein­ung­is feng­ið sjö þing­sæti af 350.

Flokkur útlagans Puigdemont með framtíð ríkisstjórnarinnar í hendi sér
Stofnandinn Carles Puigdemont er stofnandi flokksins Junts sem berst fyrir sjálfstæði Katalóníu. Mynd: AFP

Upp er komin sú staða að flokkkur Carles Puigdemont, Saman fyrir Katalóníu eða Junts, gæti haft úrslitaáhrif um það hvort að forsætisráðherra Spánar Pedro Sánchez geti setið áfram í embætti eða ekki. Þessi miklu áhrif Junts eru tilkomin þrátt fyrir það að flokkurinn hafi einungis fengið sjö þingsæti í nýafstöðnum kosningum af 350.

Fyrir kosningar var útlit fyrir að öfgahægriflokkurinn Vox yrði í bílstjórasætinu að kosningunum loknum. Skoðanakannanir gáfu til kynna að hinn íhaldssami Lýðflokkur, Partido Popular, gæti náð í meirihluta þingsæta í félagi við Vox. Lýðflokkurinn fékk flest sæti allra flokka í kosningunum, 136 talsins. Vox beið aftur á móti afhroð í kosningunum, hlaut 33 þingsæti en hafði 52 fyrir. Samanlagður þingstyrkur þessara tveggja flokka dugir því ekki til að ná hreinum meirihluta, hægri blokkin hefur 169 sæti en þarf 176.

Þingstyrkur Sósíalista og samstarfsflokks hans sem nefnist Sumar er öllu minni. Sósíalistaflokkurinn hlaut 122 sæti í nýafstöðnum kosningum og er næststærsti flokkur Spánar. Sumar hefur 31 sæti og samtals ráða flokkarnir tveir því yfir 153 sætum.

Torfæruleið Sánchez greiðari en leið hægri blokkarinnar

Þrátt fyrir þennan mun telja stjórnmálaskýrendur að það muni reynast auðveldara fyrir Sánchez heldur en hægri blokkinni að afla sér stuðnings frá öðrum flokkum, líkt og greint er frá í umfjöllun the Financial Times. Flokkarnir sem helst eru nefndir í því samhengi eru flokkar sem berjast fyrir sjálfstæði Katalóníu og Baskalands, flokkar sem hafa verið á bandi Sánchez frá því 2018.

Mikilvægasta púslið í þessu púsluspili Sánchez er flokkur Puigdemont, Junts, en margt þarf að ganga upp fyrir Sánchez ætli hann sér að vinna sér inn stuðnings flokksins, líkt og fram kemur í umfjöllun The Guardian. „Við munum ekki gera Pedro Sánchez að forsætisráðherra í skiptum fyrir ekki neitt,“ sagði Míriam Nogueras en hún er einn af leiðtogum Junts eftir kosningarnar. Puigdemont sagði flokkinn ekki skulda neinum neitt nema kjósendum.

Á kjördagPedro Sánchez ræðir við fjölmiðla áður en hann heldur inn á kjörstað.

Af þeim sjálfsstæðissinnuðu stjórnmálaflokkum Baska og Katalóna sem Sánchez þarf að reiða sig á rekur Junts hörðustu stefnuna fyrir sjálfstæði. Þannig hefur aðalritari Junts, Jordi Turull, sagt að flokkurinn krefjist þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfsákvörðunarrétt Katalóníu og sakaruppgjöf fyrir öll þau sem hafa verið ákærð eða sæta rannsókn í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fór fram árið 2017. Sú atkvæðagreiðsla var dæmd ólögleg af hæstarétti Spánar og það var í kjölfar hennar sem Puigdemont fór í sjálfskipaða útlegð í Belgíu.

Líkja samsteypustjórn Sánchez við skrímsli Frankensteins

Það er ekki hlaupið að því fyrir Sánchez að verða við þessum kröfum. Til að mynda stendur stjórnarskrá Spánar í vegi fyrir því hann geti boðað þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfsákvörðunarrétt Katalóníu.

Takist Sánchez aftur á móti að tryggja sér stuðning Junts, sem og annarra flokka sjálfstæðissinna, gæti hann tryggt sér meirihluta stuðning innan spænska þingsins. Önnur leið sem gæti verið Sánchez fær er að treysta á að Junts taki ekki afstöðu í þinginu. Þá þyrfti Sánchez stuðning 172 þingmanna. Fái hann stuðning annarra sjálfstæðissinna í Katalóníu, Galisíu og Baskalandi er það raunhæfur möguleiki.

Í kosningabaráttu sinni baunaði Lýðflokkurinn á Sánchez fyrir bútasauminn sem hann hefur þurft að stunda til að halda í meirihluta sinn. Líkti Lýðflokkurinn stjórninni við skrímsli Frankensteins og átaldi Sánchez fyrir að hafa klastrað saman samsteypustjórn með róttækum aðskilnaðarsinnum á vinstri vængnum. Ljóst er að viðbót Junts í hópinn mun einungis auka á gagnrýnina frá flokkunum á hægri vængnum. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    If you can't beat them, then join them.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
1
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Huldu­fé bak við fund Sig­mund­ar Dav­íðs og Re­públi­kana

Jane Mayer, blaða­mað­ur hjá The New Yor­ker, seg­ir millj­arða­mær­inga fjár­magna sam­tök­in Turn­ing Po­int sem borg­uðu Norð­ur­landa­ferð hóps Re­públi­kana að hitta formann Mið­flokks­ins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængn­um. Hún hef­ur rann­sak­að net Char­les Koch sem nær til Ís­lands. Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son hef­ur ekki svar­að því hver greiddi ferð hans.
Ungt Miðflokksfólk í alþjóðastarfi tengdu MAGA-hreyfingunni
3
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Ungt Mið­flokks­fólk í al­þjóð­a­starfi tengdu MAGA-hreyf­ing­unni

Ungt Mið­flokks­fólk hef­ur sótt við­burði er­lend­is tengda neti hægris­inn­aðra hug­veitna. Fram­bjóð­andi til borg­ar­stjórn­ar fór fyr­ir hönd Mið­flokks­ins á ráð­stefnu með Trump-áhrifa­vald­in­um James O’Keefe og hol­lensk­um aktíf­ista sem varð þekkt­ur fyr­ir hómó­fób­ísk fúkyrði og að syngja nas­ista­söngva.
Auður Jónsdóttir
6
Pistill

Auður Jónsdóttir

Al­þjóða­lög og ást – okk­ar eina von

For­sæt­is­ráð­herra Spán­ar, Pedro Sánchez Pér­ez-Ca­stejón, og Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir eiga það sam­eig­in­legt að trúa á gildi al­þjóða­laga, nú á tím­um óvissu, ólgu og ótta – þeg­ar rétt­indi full­valda ríkja verða sí­fellt óljós­ari. Eru ráða­menn í Evr­ópu of hrædd­ir við Banda­rík­in? Eða bara til í að funda með full­trú­um MAGA í boði síð­ar­nefndra?

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
1
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár