Ísland gerði ekkert mat á starfsemi rannsóknarmiðstöðvar Kína út frá þjóðaröryggi

Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra segir að engar heimildir séu til í íslenskum lögum sem heimila eftirlit með rannsóknar­miðstöðvum eins og þeirri sem heimskauta­miðstöð Kína og Ísland reka á Kárhóli. Hún segir að samskipti Íslands við NATO um miðstöðina séu háð trúnaði.

Engar lagaheimildir
Engar laga­heim­ildir Þórdís Reyk­fjörð Gylfa­dóttir segir að engar heim­ildir séu til staðar í íslenskum lögum sem geri íslenska rík­inu kleift að hafa eft­ir­lit með rann­sókn­ar­mið­stöð­inni á Kárhóli. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslenska ríkið framkvæmdi ekki sérstakt mat á starfsemi rannsóknar­miðstöðvar Heimskauta­stofnunar Kína á Kárhóli út frá þjóðar­öryggi áður en samningur um hana var gerður árið 2013. Þetta kemur fram í svari frá utan­ríkis­ráðherra, Þórdísi Gylfa­dóttur, við fyrir­spurn þingmanns Pírata, Andrésar Inga Jónssonar, um málið. 

Andrés Ingi spurði þrjá ráðherra spurninga um rannsóknar­miðstöðina og er síðasta svarið nú komið fram. 

Í svari utan­ríkis­ráðherra segir: „Á þessum tíma fór ekki fram sérstakt mat á starfsemi rannsókna­miðstöðvarinnar út frá mögulegum áhrifum á þjóðar­öryggi.“

„Þar að auki eru engar laga­heim­ildir til staðar í íslenskri lög­gjöf til að við­hafa sér­stakt eft­ir­lit...“
Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir,
utan­rík­is­ráð­herra

Engar laga­heimildir

Þá kemur einnig fram í svari ráðherrans að íslenska ríkið hafi ekki beint eftirlit með starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar.

Ástæðan fyrir þessu er sú að slíkar laga­heimildir eru ekki til …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kína og Ísland

FréttirKína og Ísland

Áhyggjur Norðmanna af njósnum Kína og spegil­myndin Ísland

Yfirvöld öryggis­mála í Noregi hafa áhyggjur af mögulegri misnotkun yfirvalda í Kína á samskipta­miðlinum TikTok. Inger Haugland hjá norsku öryggis­lögreglunni PST varar Norðmenn við að nota miðilinn. Ísland er eftir­bátur hinna Norður­landanna í varnar- og netöryggis­málum og er ekki með sams konar viðbúnað og þau gagnvart mögulegum njósnum erlendra ríkja eins og Kína og Rússlands.
FréttirKína og Ísland

Katrín: Starfsemi kínversku rannsóknar­miðstöðvarinnar aldrei farið fyrir þjóðar­öryggisráð

Málefni norðurljósa­rannsóknar­miðstöðvar Kínversku heimskauta­stofnunarinnar í Þing­eyjarsýslu hafa aldrei farið fyrir þjóðar­öryggisráð Íslands. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að eftirlit með rannsóknar­miðstöðinni sé hendi ráðherra háskóla­mála. NATO hefur meðal annars haft áhyggjur af rannsóknar­miðstöðinni.
FréttirKína og Ísland

Þingmaður spyr Katrínu um eftirlit með kínversku rannsóknar­miðstöðinni

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, hefur spurt Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra spurninga um kínversku rannsóknar­miðstöðina á Kárhóli í Þing­eyjarsýslu. NATO og nágranna­ríki Íslands hafa lýst yfir áhyggjum af starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar vegna mögulegra áhrifa á þjóðar­öryggi. Íslensk stjórn­völd hafa haft litla yfirsýn yfir starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar.
FréttirKína og Ísland

Önnur ríki hafa áhyggjur af norðurljósa­miðstöð Kína á Íslandi

Sérfræðingar í þjóðar­öryggis­málum fjalla um norðurljósa­rannsóknar­miðstöð Kína á Kárhóli í ritgerð. Einn af höfundunum, Gregory Falco, segir að stað­setning rannsóknar­miðstöðvarinnar á Íslandi sé of mikil tilviljun í hans huga. NATO og önnur ríki á norður­hveli jarðar hafa áhyggjur af því að Kína stundi eftirlit og njósnir á Íslandi í gegnum miðstöðina.
FréttirKína og Ísland

NATO hefur lýst áhyggjum af rannsóknar­miðstöð Kína um norður­ljósin

Norðurljósa­rannsóknar­miðstöð Íslands og Kína að Kárhóli í Þing­eyjarsýslu hefur verið vandræðamál inni í stjórn­kerfinu um nokkurra ára skeið. Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, furðaði sig á miðstöðinni eftir að hann varð utan­ríkis­ráðherra. Rannsóknar­miðstöðin virðist hafa verið ákveðin og byggð nánast án pólitískrar aðkomu eða eftirlits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár